SKÝRSLAN: Lok, lok og læs hjá Crenshaw á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Held að það sé klárlega hægt að setja þetta Genevieve Jae Crenshaw, hún átti stórleik í kvöld og gjörsamlega læsti markinu. Framkonur áttu miklu hættulegri færi í kvöld og í raun óðu í dauðafærum, Sérstaklega í lok fyrri hálfleiks. Vel útfærð skyndisókn svo hjá Stólunum sem endaði með marki frá Makölu sá svo til þess að Stólarnir tóku stigin þrjú!
Bestu leikmenn
1. Genevieve Jae Crenshaw
Átti stórkostlegan leik í marki Tindastóls í kvöld, varði hvert dauðafærið á fætur öðru og sá svo sannarlega til þess að Tindastóll hélt hreinu og sigraði leikinn!
2. María Dögg Jóhannesdóttir
Var solid í vörn Tindastóls í kvöld! Stoppaði nokkrar skyndisóknir og kom í veg fyrir dauðafæri. Átti svo einnig stoðsendinguna á Makölu.
Atvikið
Set þetta á markið hjá Tindastól, Fram konur voru búnar að vera miklu hættulegri sóknarlega í fyrri hálfleiknum og markið kom svolítið gegn gangi leiksins.
Annars er líka vert að nefna rangstöðu markið sem Murielle skoraði, það hefði heldur betur getað hleypt upp leiknum
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Tindastóll hirða mjög mikilvæg þrjú stig í botnbaráttunni! Eru nú komin með 17 stig og því einungis 2 stigum á eftir Fram sem eftir leiki kvöldsins eru dottnar í 8. sætið.
Vondur dagur
Eiginlega ekki hægt að segja að það hafi verið sérstaklega vondur dagur hjá neinum þar sem Crenshaw átti stórleik en set þetta samt á sóknarmenn Fram, miðað við öll dauðafærin þá er eiginlega óskiljanlegt að ekki eitt hafi endað inni
Dómarinn - 8
Solid hjá tríóinu í kvöld, vel dæmt og ég hef bara ekkert út á þá að setja



