Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta-deild kvenna
Víkingsvöllur
3 - 2
Valur
Valur
Shaina Faiena Ashouri 2'1 - 0Shaina Faiena Ashouri 42'2 - 02 - 160' Fanndís Friðriksdóttir Emma Steinsen Jónsdóttir 70'3 - 13 - 271' Jordyn Rhodes
Dómari: Hreinn Magnússon

SKÝRSLAN: Víkingar taka 3 stig í mikilvægri fallbaráttu

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru mjög kraftmiklir og spiluðu mjög hraðann skyndisóknar fótbolta og verðskulduðu þessi stóru 3 stig, Valsstelpurnar voru töluvert meira með boltann en sköpuðu sér lítið af færum.

Bestu leikmenn

1. Shaina Faina Ashouri

Skoraði 2 mörk fyrir Víkinga og spilaði heilt yfir frábæran leik og kom sér í góð færi til þess að fullkomna þrennuna

2. Linda Líf Boama

Var mjög kröftug og gerði varnarmönnum Vals of lífið leitt

Atvikið

Mark Emmu Steinsen sem var skrautlegt átti að öllum líkindum að vera fyrirgjöf en fór yfir Tinnu og lá í netinu

Hvað þýða úrslitin?

Að Víkingur kemur sér uppí 6. sætið með 19 stig samt sem áður 2 stigum frá falli. Valur sitja ennþá í 4. sæti í Bestu deild kvenna með 24 stig

Vondur dagur

Fannst Tinna Brá í markinu hjá Val ekki eiga sinn besta dag og var frekar óörugg í dag

Dómarinn - 6

Fannst Hreinn Magnússon vera fínn lét leikinn fljóta mikið en svoldið mikið af vafa útá velli þegar það voru brot sem hann dæmdi ekki og einhverjar aukaspyrnur sem var minna í.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.