Fotbolti.net
Haraldur Ingi Ólafsson Morthens
Lengjudeild kvenna
Vivaldivöllurinn
Grótta
Grótta
3 - 0
Keflavík
Keflavík
Lovísa Davíðsdóttir Scheving (víti) 44'1 - 0Lovísa Davíðsdóttir Scheving 81'2 - 0Saga Líf Sigurðardóttir 82'3 - 0
Dómari: Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson
Leik lokið!
Þorfinnur hefur flautað leikinn af og 3-0 sigur Gróttu staðreynd.
Skýrsla kemur innan skamms.
92. mín
Keflavík fær horn
Grótta
90. mín
Gult spjald

Margrét Rún Stefánsdóttir

90. mín
Kristrún sleppur ein í gegn hjá Keflavík en Margrét kemur út og ver frábærlega frá henni
88. mín
Keflavík komast í góða stöðu en rangstaðan dæmd
Keflavík
82. mín
InnWatan Amal Fidudóttir
ÚtAnita Lind Daníelsdóttir
Keflavík
82. mín
InnThelma Sif Róbertsdóttir
ÚtHilda Rún Hafsteinsdóttir
Grótta
82. mín
MAAAARK!

Saga Líf Sigurðardóttir

Þær voru ekki lengi að bæta öðru marki við. Saga tekur aðra sleggju langt fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og í hornið.
Grótta
82. mín
InnDíana Ásta Guðmundsdóttir
ÚtKatrín Rut Kvaran
Grótta
82. mín
InnMaria Baska
ÚtMaría Lovísa Jónasdóttir
Grótta
81. mín
MAAAARK!

Lovísa Davíðsdóttir Scheving

Alvöru HAMAR frá Lovísu sem tekur skot langt fyrir utan teig sem ver í slánna og inn. Anna átti ekki séns í þennan
79. mín
Það má segja að það liggi mark í loftinu hjá Keflavík þessa stundina. Skot sem fer yfir.
78. mín
Boltinn dettur i teignum og Keflavík tekur skot sem er varið á línu. Keflavík fær horn
Keflavík
76. mín
InnJúlía Björk Jóhannesdóttir
ÚtMaría Rán Ágústsdóttir
73. mín
Leikmaður Keflavíkur liggur á vellinum og þarf aðhlynningu, ég sé ekki hver það er.
72. mín
Glæsileg aukaspyrna frá Haylee sem fer beint á Hildi sem skítur í utan vert hliðarnetið.
Grótta
70. mín
InnÞórdís Embla Sveinbjörnsdóttir
ÚtHulda Ösp Ágústsdóttir
Grótta
70. mín
InnMaría Björk Ómarsdóttir
ÚtSigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
68. mín
Keflavík fær góða stöðu eftir skyndisókn en Grótta nær að sparka boltanum frá markinu.
67. mín
Hulda er alveg að fara að sleppa í gegn þegar Kristrún nær frábærri tæklingu sem endar í horni
65. mín
Hræðileg sending frá Önnu úr marki Keflavíkur beint á Lovísu sem sendir á Katrínu sem á laust skot sem Annan nær að verja. Heppin þarna!
64. mín
Stórhættuleg sókn hjá Keflavík sem endar með fyrirgjöf sem Margrét missir úr höndunum og ég sá ekki alveg hver átti skot rétt framhjá markinu. Gróttukonur sluppu þarna.
Grótta
62. mín
InnHaylee Rae Spray
ÚtEmma Lake Nicholson
61. mín
Grótta með nokkrar fyrirgjafir í röð sem fer framhjá öllum
58. mín
Lítið að gerast um þessar mundir
54. mín
Keflavík fær horn
50. mín
Önnur skyndisókn hjá Gróttu sem endar með sendingu og tækla í horn
47. mín
Frábær skyndisókn hjá Gróttu sem endar á skoti frá Katrínu Rut en það er varið í horn.
46. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur farinn af stað og það eru heimakonur sem sparka þetta aftur af stað
45. mín
Hálfleikur
Þorfinnur flautar til hálfleiks. Gróttukonur leiða með einu marki.
45. mín
Keflavík vinnur horn
Grótta
44. mín
Mark úr víti!

Lovísa Davíðsdóttir Scheving

Lovísa fær boltan inn í teig og fær snertingu og dettur. Lovísa tekur það sjálf og skorar örugglega
39. mín
Aðeins búið að hægjast á leiknum og mikið af feil sendingum hjá báðum liðum.
34. mín
Skemmtileg útfærsla af horni sem Dominic er augljóslega búinn að vel sem endar á skoti framhjá frá Rekeli Lóu
33. mín
Skyndisókn hjá Gróttu sem endar á hættulegri fyrirgjöf frá Huldu en Keflavík nær að hreinsa í horn
31. mín
Keflavík fær góða sókn sem endar á hættulegri sendingu hjá Brynju sem Rakel Lóa skallar frá
29. mín
Álitleg sókn hjá Gróttu en það vantar upp á úrslitasendingu
25. mín
Keflavík fær fullt af tækifærum á hraðaupphlaupum en fara illa með þær með slökum sendingum innfyrir sem enda yfirleitt í höndunum á Margréti
22. mín
Lovísa á frábæra gabbhreyfingu og tekur Skot fyrir utan teig sem endar ofan á slánni
21. mín
Keflavík hafa nú reynt tvö Skota langt fyrir utan teig sem eru aldrei í neinni hættu fyrir Gróttukonur.
15. mín
Emma Lake fer framhjá tveimur og kemst í góða stöðu en skítur yfir. Gróttukonur byrja þetta sterkt.
13. mín
Boltinn berst hratt endana á milli þessa stundina. Skemmtileg byrjun á fótboltaleik!
12. mín
Grótta fær annað horn.
11. mín
Frábær sókn hjá Gróttu sem endar á fyrirgjöf og Hulda lítilli snertingu á boltann og ekki erfitt fyrir Önnu að verja.
10. mín
Grótta fær álitlega sókn sem endar með fyrirgjöf sem Anna grípur auðveldlega
9. mín
Gróttukonur eru aðeins að komast í gang og fá horn.
6. mín
Mikil barátta fyrstu mínúturnar og boltinn mikið að fara í innkast
2. mín
Fyrsta horn leiksins er komið á annarri mínútu og það er Keflavík sem fær það.
1. mín
Leikur hafinn
Leikur Hafinn
Þá er leikurinn farinn af stað!
Fyrir leik
Ungstirni
Á varamannabekk Keflavíkur eru tvær stelpur fæddar árið 2011, þær Telma Lind Kolbeinsdóttir og Eva Dís Sighvatsdóttir og eru því enn í 4. flokki. Þær spiluðu með liði RKVN á Rey Cup sem tapaði fyrir Bayern Munich í úrslitum.
Fyrir leik
Leikbönn
Emma Kelsey Starr hefur spilað allar mínútur Keflavíkur á tímabilinu. Emma fékk sitt fjórða gula spjald í seinasta leik gegn Grindavík/Njarðvík og er þar af leiðandi í banni í leik kvöldsins.
Guðrún Jóna þjálfari Keflavíkur er einnig í leikbanni.
Fyrir leik
Fyrri leikur liðanna
Fyrri leikurinn í Keflavík endaði með 1-2 sigri Gróttu.
Fyrir leik
Dómarateymið
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson verður á flautunni hér í dag og honum til aðstoðar verða Eydís Ragna Einarsdóttir og Alexander Elvar Young.
Fyrir leik
Keflavík
Keflavík situr í 8. sæti deildarinnar með 16 stig fyrir leikinn í dag. Þær eru þó ekki í neinni hættu á falla því Fylkir situr einu sæti fyrir neðan þær með 8 stig.
Keflavík hefur skorað 23 mörk og fengið á sig 27 mörk í 17 leikjum í sumar og eru með markatöluna -4.
Fyrir leik
Grótta
Grótta situr í 4. sæti deildarinnar með 34 stig fyrir leikinn í dag. Það eru jafn mörg stig og dugði í fyrra fyrir Fram til þess að fara upp í deild þeirra bestu en verður ekki nóg fyrir þær að vinna í dag til þess.
Grótta hefur skorað 35 mörk og fengið á sig 25 mörk í 17 leikjum í sumar og eru með markatöluna +10.
Fyrir leik
Verið velkomin í þráðbeina textalýsingu á Vivaldi vellinum
Lokaumferð Lengjudeild kvenna fer fram í dag og á Vivaldi vellinum tekur Grótta á móti Keflavík.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.