SKÝRSLAN: Hálf vankaðir Blikar en komnar áfram
Hvað réði úrslitum?
Mér fannst Breiðablik hálf vankaðar í dag og ekki þeirra besti leikur. Vantaði eitthvað upp á sóknarleikinn og voru ekki alveg nógu skapandi. Ágóðum degi ætti Blikaliðið að vinna þetta lið með allavega 3-4 mörkum. Spartak Subotic gerði hins vegar vel í sínum leik en þar var uppleggið greinilega að liggja aftarlega og sækja svo hratt þegar tækifæri gáfust, áttu nokkrar hættulegar skyndisóknir en Devine og varnarlína Blika gerðu þó vel.
Bestu leikmenn
1. Heiða Ragney Viðarsdóttir
Var flott í dag, setti markið fyrir Blikana og er síðan bara eins og herforingi inn á miðjunni þar sem hún er mjög klók bæði varnarlega og sóknarlega.
2. Heiðdís Lillýardóttir
Var flott í vörninni í dag og kom í veg fyrir slatta af skyndisóknum. Grimmur varnarmaður og örugg í öllum sínum aðgerðum. Kristín Dís átti sömuleiðis flottan leik og bjargaði í eitt skiptið á línu
Atvikið
Fyrsta mark leiksins, Soyi Kim fékk boltann frá Andrene, lagði hann fyrir sig og átti svo bara eitt stk. banger á markið. Færið kom úr gjörsamlega engu og Blikarnir höfðu átt góð færi trekk í trekk á undan.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Breiðablik vinnur einvígið samanlagt 5-1 og er komið áfram í næstu umferð Evrópu bikarsins en Spartak Subotica sitja eftir með sárt ennið.
Vondur dagur
Það átti svo sem enginn slæman dag þannig en það vantaði eitthvað upp á sóknarleikinn hjá Blikum í dag
Dómarinn - 6
Bara ágætis dagur hjá dómarateyminu, ekki mikið að frétta þar


