Heil og sæl. Velkomin með okkur í slúðurheima. Tottenham hefur áhuga á Rashford, auknar líkur eru á því að Gordon fari frá Newcastle og Arsenal fylgist með Osimhen. Þetta og fleira í pakka dagsins.
Tottenham hefur áhuga á að fá framherjann Marcus Rashford (28) ef félagið nær að forðast fall. Efasemdir eru hjá Barcelona um að kaupa leikmanninn alfarið. (Sport)
Það eru auknar líkur á því að enski kantmaðurinn Anthony Gordon (25) yfirgefi Newcastle í sumar. (Athletic)
Chelsea hefur sett sig í samband við Andoni Iraola varðandi áhuga hans á að verða stjóri liðsins. Iraola er að yfirgefa Bournemouth í sumar. (Football London)
Andrea Berta yfirmaður fótboltamála hjá Arsenal var í Istanbúl á sunnudag til að fylgjast með Galatasaray en vangaveltur eru um að Arsenal vilji fá nígeríska sóknarmanninn Victor Osimhen. (AS)
Jose Mourinho gæti snúið aftur sem stjóri Real Madrid í sumar en Florentino Perez forseti spænska stórliðsins vill fá hann aftur. (Athletic)
Liverpool vonast til þess að gott samband sitt við RB Leipzig hjálpi félaginu að landa sóknarleikmanninum Yan Diomande (19) snemma í sumarglugganum. (Football Insider)
Liverpool er einnig með augastað á Sam Beukema (27), hollenskum varnarmanni Napoli. Arne Slot stjóri Liverpool hefur lengi fylgst með honum. (Teamtalk)
Everton vill fá Nathan Ake (31) frá Manchester City en hollenski varnarmaðurinn vill fá meiri spiltíma. (Football Insider)
Newcastle og Aston Villa hafa áhuga á Maxi Araujo (26), leikmanni Sporting Lissabon. Úrúgvæski landsliðsmaðurinn getur spilað vinstri bakvörð og á vinstri kanti. (Sport Witness)
Ayase Ueda (27), sóknarmaður Feyenoord, er kominn á lista yfir sóknarleikmenn sem Everton vill fá í sumar. Leeds, Tottenham og Brighton hafa einnig áhuga á japanska landsliðsmanninum. (Teamtalk)
Valencia vill fá belgíska kantmanninn Largie Ramazani (25) alfarið frá Leeds en hann hefur spilað vel á lánssamningi hjá spænska félaginu. (ElDesmarque)





