SKÝRSLAN: Fyrri hálfleikur var lognið á undan storminum í þeim seinni í Dal Draumanna
Hvað réði úrslitum?
Einbeitingarleysi hjá báðum liðum réðu úrslitum og báðir þjálfararnir höfðu orð á slíkt hið sama. Mistök í vörn beggja liða gerðu það að verkum að 0-0 bragðdaufur fyrri hálfleikur breyttist í kjarnorkusprengju í þeim seinni.
Bestu leikmenn
1. Markús Páll Ellertsson
Skoraði tvennu á móti uppeldisfélaginu sínu, var síógnandi með hraða sínum sem vörn Framara og þá sérstaklega Kyle McLagan réði illa við.
2. Sigurjón Rúnarsson
Það er sennilega engin eins kátur og Rúnar Kristinsson að varnarjaxlinn sé kominn til baka eftir meiðsli sem hafa hrjáð hann í vetur. Var langbesti varnarmaður Framara í kvöld og skoraði afar mikilvægt mark þar að auki. Fékk ekki auðvelt verkefni að kljást við Viktor Jónsson en stóð svo sannarlega fyrir sínu.
Atvikið
Skagamenn voru á góðri leið með að tryggja sér stigin þrjú þegar Sigurjón Rúnarsson nýtti sér vandræðagang í vörn ÍA og minnkaði muninn. Það atvik kveikti heldur betur í Frömurum sem fóru í kjölfarið að hafa trú á að þeir gætu jafnað leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði liðin eru sennilega svekkt að hafa ekki tekið stigin þrjú. En þó er eitt stig betra en ekkert. Bæði liðin þurfa að skoða einbeitingu á ögurstundum og laga varnaleikinn.
Vondur dagur
Kyle McLagan fær því miður þennan titil í dag. Sennilega dagur sem hann vill gleyma sem allra fyrst. Gleymdi Markúsi alveg þegar ÍA komst í 2-1 og átti vondan skalla til baka á Viktor sem Markús komst inn og kom Skagamönnum í 3-1.
Dómarinn - 6
Sigurður var ágætur í dag, hallaði smá á Framara að mér fannst. Sömu brotin voru dæmd á Framara en ekki á Skagamenn. Sást líka vel hvað Rúnari fannst um dómgæsluna á hliðarlínunni á köflum.




