SKÝRSLAN: Valsmenn stýrðu ekki leiknum frá A til Ö
Hvað réði úrslitum?
Það var smá skjálfti í Þórsurum til að byrja með en þegar það leið á leikinn unnu þeir sig inn í hann. Myndi segja að gamla góða þolinmæðin og baráttan hafi réðið þessum úrslitum. Þórsarar mættu svo sannarlega til leiks í seinni hálfleiknum. Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, talaði um það í viðtali eftir leik að þeir höfðu verið trekk í trekk í færum og stjórnuðu honum frá A til Ö, það er bara alls ekki rétt hjá Hemma. Maður þekkir nokkra Valsmenn sem líst ekkert á stöðuna eins og hún er núna.
Bestu leikmenn
1. Christian Greko Jakobsen (Þór Ak.)
Fannst hann eiga stórleik í dag á báðum endum vallarins. Skoraði jöfnunarmark Þórsara sem var afar mikilvægt og kom á mikilvægum tímapunkti fyrir Þórsliðið. Frábær leikur hjá Greko í dag.
2. Einar Freyr Halldórsson (Þór Ak.)
Strákurinn ungi var magnaður eins og svo oft áður þegar maður sér hann spila. Lagði upp markið á Greko og lagði sig allan fram í dag og rétt rúmlega það. Stórglæsilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér.
Atvikið
Sigurmark Ingimars undir lokin. Það ætlaði allt um koll að keyra þegar boltinn söng í netinu. Frábært atvik fyrir Þórsara sem eru búnir að stimpla sig inn í deild þeirra Bestu.
Hvað þýða úrslitin?
Þórsarar eru svo sannarlega búnir að stimpla sig inn í deild þeirra Bestu með hádramatískum sigri á Valsmönnum sem byrja árið og sumarið hræðilega. Dottnir úr leik í bikar og tapa í kvöld gegn nýlliðunum á heimavelli í fyrsta leik.
Vondur dagur
Mér fannst Ingimar Stöle eiga skelfilegan leik. Var stálheppin að fá ekki annað gula spjaldið sitt og rautt. Fyrir utan það var hann bara alls ekki góður í dag fannst mér.
Dómarinn - 8
Flottur leikur hjá teyminu og lítið hægt að setja út á þá nema mögulega áttu Valsmenn að fá víti í fyrri hálfleiknum. Annars allt í teskeið hjá Helga. Báðir þjálfarar létu hann samt sem áður heyra það oft á tíðum í dag.




