SKÝRSLAN: Góður útisigur Stjörnunnar fyrir norðan
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum var að Stjarnan var á tánum fyrir framan mark KA og skoraði öll þrjú mörkin af stuttu færi. Gott líka fyrir þá að fá Emil í gang strax frá byrjun.
Bestu leikmenn
1. Emil Atlason
Skorar 2 mörk og var mjög duglegur
2. Hallgrímur Mar
Sífellt að ógna marki gestanna þó svo að skotin hafi ekki ratað rétta leið í þetta sinn. Stýrði sóknarleik KA
Atvikið
Rangstöðumark KA sem var alls ekki rangstaða og í stað þess að jafna réttilega 1 -1 kemst Stjarnan upp og skorar 0 - 2
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða í sjálfu sér lítið í upphafi móts. En tap á heimavelli er alltaf dýrt. Stjarnan tyllir sér á toppinn með fleiri liðum á meðan KA er stigalaust neðst með fleiri liðum
Vondur dagur
Þetta var eiginlega ekki vondur dagur fyrir neinn nema kannski Montiel sem kom inn á í ca. eina mínútu og meiðist og fer út af.
Danijel Djuric er ekki kominn í sitt besta form og getur betur. Hann átti samt fína spretti. Set hann hér því hann á mikið inni.
Dómarinn - 6
Það var aðstoðardómarinn sem dæmdi markið af. Dómarinn hefði getað séð að það var rangt. Aðstoðardómarinn dregur einkunnina niður.



