Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Besta deildin
Hásteinsvöllur
Það er blíða í eyjum eins og venjulega!
1 - 1
FH
FH
Viggó Valgeirsson 35'1 - 01 - 180' Kári Kristjánsson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Jafntefli í blíðunni á Hásteinsvelli

Hvað réði úrslitum?

Þetta var leikur tveggja hálfleika. Eyjamenn voru mikið sterkari í fyrri hálfleik og sköpuðu nokkuð góð færi. FHingar hins vegar komu sterkari til leiks í síðari hálfleik. Hefðu getað stolið sigrinum undir lokin en jafntefli er sanngjörn niðurstaða.

Bestu leikmenn

1. Viggó Valgeirsson

Var líflegur í holunni, var að taka góð hlaup og finna góðar stöður til þess að fá boltann. Kom sér í góðar skotstöður. Hann skoraði svo sitt fyrsta mark í efstu deild þegar hann kom Eyjamönnum yfir.

2. Marcel Zapytowski

Átti góðan leik milli stanganna hjá ÍBV. Varði nokkrum sinnum vel og varði svo líka vítaspyrnu Kjartans Kára í síðari hálfleik.

Atvikið

Eyjamenn áttu að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik í stöðunni 0-0 þegar Bjarki Björn var tekinn niður inn í teig. Verð svo líka að nefna jöfnunamark FHinga þegar Milan Jezdemirovic sendi skelfilega sendingu til baka á Marcel í markinu og upp úr því kom jöfnunamark FH.

Hvað þýða úrslitin?

Bæði lið sjálfsagt fúl en á sama tíma ánægð með stigið miðað við hvernig leikurinn þróaðist. Fyrsta umferð og stig í hús á bæði lið.

Vondur dagur

Kjartan Kári var líklega hættulegasti maður vallarins en aftur á móti fór hann mjög illa með færin sín og klúðraði að auki vítaspyrnu.

Dómarinn - 5

Ekki hans dagur í dag. Bæði lið geta verið pínu óánægð með hans störf og þó kannski sérstaklega ÍBV sem áttu að fá vítaspyrnu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.