SKÝRSLAN: Sneru taflinu við á 77 sekúndum
Hvað réði úrslitum?
Um miðbik síðari hálfleiks hugsaði ég með mér; Þetta er ekki varan sem ég keypti. Vá hvað mér skjátlaðist. Eins skemmtilegir og KR-ingar hafa verið á undirbúningstímabilinu var það ekki sama upp á teningnum framan af leik í dag. Keflvíkingum tókst að loka vel á Vesturbæinga og ógnuðu sjálfir úr skyndisóknum. Leikplanið var að ganga upp. En þegar um tíu mínútur voru eftir komust KR-ingar á bragðið og sneru þeir taflinu við á augabragði, 77 sekúndur á milli marka. Sanngjörn úrslit? Veit það ekki, Keflvíkingar eiga í hið minnsta hrós skilið fyrir hetjulega baráttu.
Bestu leikmenn
1. Stefan Alexander Ljubicic - Keflavík
Erfitt að velja hann ekki sem mann leiksins þegar hann skorar tvö mörk. Mörkin hefðu getað verið fleiri, vonandi er þetta það sem koma skal hjá framherjanum stæðilega.
2. Alexander Rafn Pálmason - KR
Erfitt að segja til um hver var hlutskarpastur í liði KR. En þegar leikmaður sem er nýorðinn 16 ára skorar sigurmarkið á hann hrós skilið.
Atvikið
Alexander Rafn Pálmason, sextán ára og fimm daga gamall, skorar sigurmark KR og stúkan trylltist.
Hvað þýða úrslitin?
KR-ingar byrja tímabilið sterkt og landa þremur stigum strax í fyrstu umferð. Frammistaða Keflvíkinga var lofandi en skilar engu að síður núll punktum.
Vondur dagur
Nacho Heras hugsar eflaust um færið sem hann fékk undir lok leiks þegar hann fer á koddann í kvöld. Ásgeir Orri, markvörður Keflavíkur, með skalla rétt framhjá sem Nacho var hársbreidd frá því að ná að pota í autt netið. Maður ætlast mikils af Aroni Sigurðarssyni, fyrirliða KR, en hann var ekki á sínum besta degi. Full hart að segja að Aron hafi verið lélegur en hann hefur sett línuna hátt og var hann fyrir neðan þá línu í dag.
Dómarinn - 8
Ívar Orri og félagar voru flottir í dag. Ekkert út á þá að setja.




