Leik lokið!
0-5 sigur gestanna staðreynd og Bikarmeistararnir frá 2024 mættir í 16-liða úrslitin.
90. mín
Mark úr víti!
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Haxi skorar og Hreinn flautar af.90. mín
Víti fyrir KA
Eyþór brýtur af sér. Sá ekki hvort þetta væri rétt.
89. mín
Þetta er að fjara út hérna. Höttur reynir og reynir að ná einu marki.
85. mín
Gult spjald
Birgir Baldvinsson
Klippir niður Eyþór þegar hann kemst á sprettinn. Hárrétt.80. mín
Glæsileg fyrirgjöf frá Hallgrími frá vinstri kanti og Bjarki skallar boltann inn á fjærstönginni.
4-0 og leikurinn búinn.
MAAAARK!
Bjarki Fannar Helgason (stoðsending: Hallgrímur Mar Steingrímsson)
Bjarki Fannar HELGASON tekur “sorry” fagnið enda að skora gegn uppeldisfélaginu. Eitthvað rugl á skýrslunni sem við getum ekki breytt.Glæsileg fyrirgjöf frá Hallgrími frá vinstri kanti og Bjarki skallar boltann inn á fjærstönginni.
4-0 og leikurinn búinn.
78. mín
Filip með alvöru vörslu
Snorri Kristins með hörkuskot rétt fyrir utan teig. Frá sjónarhorni undirritaðs virtist boltinn á leið í markið en Filip með glæsilega vörslu í horn.
76. mín
Höttur reynir að bíta frá sér
Heimamenn hafa aðeins verið að nýta sér það að KA hafa hægt á sér síðustu mínúturnar en ná síðan ekki að nýta sér það á síðasta þriðjungi vallarins.
69. mín
Eyþór Atli með skot
Held að þetta sé fyrsta skot heimamanna á markið. Negla utan af kanti sem Ívar missir aðeins frá sér áður en hann handsamar knöttinn.
64. mín
Aldrei gult - Aldrei auka
Arnar Harri Guðmundsson
Skrýtinn dómur. Arnar Hárri vinnur boltann en Hreinn dæmir auka og gefur honum gult.61. mín
Sveinn Margeir hvernig kláraði hann þetta bara??
Sveinn Margeir Hauksson (stoðsending: Birgir Baldvinsson)
Sveinn Margeir fær frábæra sendingu í gegn frá Birgi Baldvins. Sveinn setur boltann yfir Filip og virðist vera að missa hann aftur fyrir en nær einhvern veginn að segja boltann í netið.58. mín
InnBjarki Nóel Brynjarsson
ÚtHeiðar Logi Jónsson
Þá svara heimamenn með tvöfaldri skiptingu.
58. mín
InnEyþór Atli Árnason
ÚtSteinþór Hrímnir Aðalsteinsson
Þá svara heimamenn með tvöfaldri skiptingu.
57. mín
InnHallgrímur Mar Steingrímsson
ÚtKári Gautason
Tvöföld skipting hjá KA
57. mín
InnSnorri Kristinsson
ÚtRodrigo Gomes Mateo
49. mín
InnPablo Ruiz Gea
ÚtSæbjörn Guðlaugsson
Sæbjörn liggur eftir eftir samstuð og Pablo kemur inn á.
46. mín
InnSveinn Margeir Hauksson
ÚtJakob Snær Árnason
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
KA menn sparka seinni hálfleik af stað! KA setur Svein Margeir inn á fyrir Jakob Snæ.
45. mín
Höfðinglegar móttökur
Hattarmenn láta ekki hlæja að sér. Hér er alvöru móttaka fyrir fjölmiðlafólk og börgerinn af dýrari gerðinni.


45. mín
Gestirnir leiða 0-2 í hálfleik
43. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir KA
Glæsilega varið hjá Filip!
42. mín
Flott skot
Birgir Baldvinsson
Boltinn er hreinsaður út í teiginn þar sem Birgir er mættur á vítateigslínuna og setur boltann flott í markið.41. mín
Jeppe með skot
Af varnarmanni og Filip grípur skotið.
38. mín
Lítið að frétta
KA svona 85% með boltann en skapa sér lítið sem ekkert af alvöru færum.
32. mín
InnSergi Valls Buiza
ÚtHilmir Hólm Gissurarson
Neinei hann er búinn og Sergi kemur inn á.
31. mín
Hilmir liggur óvígur eftir
Spurning hvort hann geti haldið áfram.
26. mín
Allt annar leikur
Nú gætu heimamenn opnast til baka þar sem þeir þurfa að fara ofar á völlinn að sækja jöfnunarmark.
24. mín
Aldrei í hættu
Danijel Dejan Djuric
Setur Filip í vitlaust horn.23. mín
VÍTI
Arnar Harri brýtur á Montiel. Djuric á punktinn. Engin mótmæli og hárréttur dómur.
19. mín
Aukaspyrna fyrir KA
KA fær ódýra aukaspyrnu rétt fyrir utan hornið á vítateignum. Góð fyrirgjöf frá Montiel en skallinn yfir.
17. mín
Stoppar snöggt útspark
Eyþór Magnússon
15. mín
Leikurinn á einum helmingi
KA-menn hafa þrýst heimamönnum niður á völlinn og sækja látlaust þessa stundina. Höttur þarf að ná að halda boltanum aðeins.
12. mín
Snjókoma og textalýsing í síma
Undirritaður biðst afsökunar fyrirfram á því ef lesendur sem hafa miklar væntingar til þessarar textalýsingar vilja meira. Hér er snjókoma og undirritaður hefur enga aðstöðu til að skrifa á tölvu þannig kaldur puttar skrifa í síma.
10. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað
Fyrir KA. En ekkert verður úr því.
3. mín
Smá þreyfingar
Liðin aðeins að reyna að þreyfa fyrir sér hérna í byrjun leiks. Það kyngir niður snjó en völlurinn er upphitaður þannig hann finnur ekki fyrir þessu.
1. mín
Höttur byrjar
Fyrir leik
Þetta fer að bresta á
Þá ganga leikmenn inn á völlinn með Hrein Magnússon dómara í broddi fylkingar
Fyrir leik
Brjálaðir Hattarar út af síðustu færslu
Ef einhver Hattari hefur eitthvað út á síðustu færslu að setja þá beini ég öllum kvörtunum á [email protected] eða Maté[email protected]
Fyrir leik
Saga liðanna í bikarnum
Að því sem undirritaður kemst næst þá hefur Höttur aldrei komist lengra en 32-liða úrslitin í núverandi fyrirkomulagi en KA urðu Bikarmeistarar í fyrsta sinn 2024 þegar þeir lögðu Víking Reykjavík að velli 2-0.

Fyrir leik
Leið Hattar í 32-liða úrslitin
Egilstaðabúar unnu sveitunga sína úr Múlaþingi þegar þeir fengu Neista frá Djúpavogi í heimsókn föstudaginn 27. mars og rótburstuðu þá 5-0.
Eins og flestum fótboltaáhugamönnum ætti að vera kunngjört þá mætir KA til leiks í 32-liða úrslitunum eins og öll önnur Bestu-deildar lið.
Eins og flestum fótboltaáhugamönnum ætti að vera kunngjört þá mætir KA til leiks í 32-liða úrslitunum eins og öll önnur Bestu-deildar lið.
Fyrir leik
Völlurinn
Þrátt fyrir mikinn snjó á austfjörðum síðustu daga virðast héraðsbúar hafa sloppið ágætlega og því ólíklegt að Rafey-völlurinn verði svona útlítandi þegar flautað verður til leiks um kaffileytið í dag.


Fyrir leik
Gleðilegan leikdag í Mjólkinni
Komiði sæl og blessuð kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Rafey-vellinum í Fellabæ þar sem Höttur tekur á móti KA í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.



