SKÝRSLAN: Veðurtepptir gestir úr Hafnarfirði þurfa að dvelja á tapinu fram á kvöld uppi á Skipaskaga
Hvað réði úrslitum?
Úrslitin réðust á gæðum svo einfalt er það. Skagamenn spila á meðal þeirra bestu á meðan Haukar spila í 2. deild og munurinn sást langar leiðir.
Haukar voru í miklu basli með föst leikatriði Skagamanna.
Bestu leikmenn
1. Viktor Jónsson
Virðist vera í fantaformi í boxinu, stekkur ennþá manna hæst þrátt fyrir að nálgast 32 aldursár. Bæði mörkin komu eftir hornspyrnu frá Gumma og væntanlega fleiri á leiðinni í sumar.
2. Guðmundur Þórarinsson
Nýi maðurinn virkar sprækur í upphafi móts, stýrði miðjuspilinu vel og átti einstaklega góðar fyrirgjafir sem skópu mörk. Aðrir eins og Gísli Eyjólfs gerðu líka tilkall í þetta sæti.
Atvikið
Fyrsta markið hjá Viktori Jónssyni þegar hann stekkur manna hæstur og skallar af krafti í netið.
Ísinn brotnaði þar og örlögin ráðin.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að ÍA fer í 16 liða úrslit á meðan Haukar geta einbeitt sér alfarið að deildinni í sumar.
Vondur dagur
Það er erfitt að tala um vondan dag þannig að ég ætla að gefa veðrinu á Íslandi í byrjun apríl þennan óheiður.
Undirritaður komst ekki á leikinn þar sem Kjalarnesið lokaði og Haukur þurfa að dúsa uppi á Skaga og ofhugsa tapið sem er eflaust ekki frábært.
Dómarinn - 6
Almennt vel dæmdur leikur en voru þarna tvö atriði sem ég man eftir þar sem hornspyrnur voru ranglega teknar af heimamönnum en það kom þó ekki að sök.



