SKÝRSLAN: Markaflóð í Egilshöllinni
Hvað réði úrslitum?
Ein þreyttasta klisja samtímans er; Leikur tveggja háflleikja, en sú klisja á vel við um þennan leik. Fjölnismenn voru mun betri í fyrri hálfleik og hefði forystan hæglega getað verið 3-0. Mark Jóhanns Arnar á 47. mínútu kom HK-ingum á bragðið og jöfnuðu þeir metin skömmu síðar. Fjölnir komst þó aftur yfir eftir mark úr vítaspyrnu nokkrum mínútum eftir jöfnunarmarkið. Þá reyndist Dominik Radic Fjölnismönnum erfiður en hann skoraði tvö keimlík mörk eftir hornspyrnur.
Bestu leikmenn
1. Viktor Andri Hafþórsson
Þrjú góð mörk sem dugðu þó ekki til. Engu að síður ágætis dagsverk hjá Viktori.
2. Jóhann Þór Arnarsson
Jóhann skoraði mikilvægt mark í upphafi síðari hálfleiks og jafnaði metin skömmu síðar. Radic gerir jafnframt tilkall.
Atvikið
Sigurmark Radic á 91. mínútu setti kirsuberið á kökuna í frábærum leik.
Hvað þýða úrslitin?
HK-ingar verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Þessi viðureign var ágætis upphitun fyrir stórleik 16-liða úrslita Mjólkurbikarsins.
Vondur dagur
Ég vil setja þetta á mennina sem voru á nærsvæðinu í varnarhornum Fjölnis. Orri Þórhallsson, fyrirliði liðsins, var með svæðið fyrri hluta leiks en eftir brotthvarf hans riðlaðist svæðisvörnin. Dominik Radic nýtti sér það og skoraði tvö mörk af nærsvæðinu eftir hornspyrnur.
Dómarinn - 9
Jóhann Ingi og félagar bara mjög flottir í dag. Geta fáir verið reiðir út í tríóið í dag.



