Fotbolti.net
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Mjólkurbikar karla
Knatthús Hauka
Svalar aðstæður inni en allskonar viðvaranir úti
Grindavík
Grindavík
5 - 3
Keflavík
Keflavík
0 - 1119' Eiður Orri RagnarssonRafael Alexandre Romao Victor 120'1 - 1Eysteinn Rúnarsson (víti) 121'2 - 1Rúnar Ingi Eysteinsson (víti) 121'3 - 1Ingi Þór Sigurðsson (víti) 121'4 - 1Damir Muminovic (víti) 121'5 - 15 - 2121' Eiður Orri Ragnarsson (víti)5 - 3121' Þorlákur Breki Þ. Baxter (víti)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Fimm lið úr Bestu deildinni detta út í 32-liða

Hvað réði úrslitum?

Það þurfti vítaspyrnukeppni til þess að skera úr um þennan leik. Keflavík komst yfir á 119.mín og héldu að þeir væru að klára þetta þar en allt kom fyrir ekki og Rafael Victor jafnar alveg í blálokinn. Jafnræði með liðunum heilt yfir, Grindavík byrjaði betur og voru sterkari í fyrri hálfleik en Keflavík voru sterkari eftir því sem á leið. Grípa þurfti til vítaspyrnukeppni til þess að fá úr því skorið hvort liðið færi áfram og þar voru Grindvíkingar öflugri.

Bestu leikmenn

1. Damir Muminovic

Stýrði vörn Grindavíkur eins og herforingi. Átti sendinguna sem opnaði vörn Keflavíkur í jöfnunarmarkinu og skoraði svo úr síðustu spyrnu Grindavíkur sem tryggði þeim áfram.

2. Hjörvar Daði Arnarsson

Hefði verið hægt að henda þó nokkrum hérna en ég ætla að gefa Hjörvari Daða þetta. Varði á tíðum virkilega vel fyrir sitt lið í dag sem hélt þeim inni í þessu og tók svo eitt víti í vítaspyrnukeppninni.

Atvikið

Jöfnunarmark Grindavíkur - Þegar allir héldu að þetta væri komið hjá Keflavík kemur Damir með frábæran bolta á fjær sem opnar vörn Keflavíkur og Ingi Þór kemur boltanum svo í hættusvæðið á Rafael Victor sem jafnar leikinn fyrir Grindavík í uppbótartíma framlengingarinnar.

Hvað þýða úrslitin?

Grindavík verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit á fimmtudag. Keflavík einbeitir sér bara að Bestu deildinni í sumar. Eftir þessi úrslit er ljóst að fimm lið úr Bestu deildinni falla út í 32-liða úrslitum; ÍBV, Þór, Fram, Keflavík og svo tapliðið úr leik KR og Vals sem er á eftir.

Vondur dagur

Marin Mudrazija fær tvö tækifæri í vítaspyrnukeppninni en klúðrar í bæði skiptin. Tók sama vítið tvisvar sem Hjörvar Daði sá við.

Dómarinn - 8

Teymið komst heilt yfir bara nokkuð vel frá sínu. Einstaka atvik sem hægt væri að rökræða kannski en yfir allar 120 mínúturnar var þetta bara nokkuð vel dæmt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.