Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Mjólkurbikar karla
Miðgarður
Grótta
Grótta
1 - 0
Álftanes
Álftanes
Tristan Freyr Ingólfsson 10'1 - 0
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Að mínu mati átti Álftanes að fá víti í lokin

Hvað réði úrslitum?

Færin komu af skornum skammti, en Grótta nýtti þau betur og gátu alveg komið sér í tveggja marka forystu ef markvörðurinn var ekki með flotta vörslu.

Bestu leikmenn

1. Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)

Sigurmarkið í dag sem var svakalegt, kannski besta markið þessa umferð. Hefði alveg getað skorað fleiri mörk.

2. Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)

Allt í öllu í dag, var nálægt því að skora en góður í dag.

Atvikið

Álftanes byrjaði sem betri aðilinn en eftir markið tók Grótta yfir leikinn, Álftanes átti sín tækifæri en ógnuðu ekkert sérstaklega.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta er kominn í 16 liða úrslit.

Vondur dagur

Það var nú enginn leikmaður áberandi lélegur í dag en varamenn Álftanes gerðu ekkert sérstakt þegar þeir komu inn á, en það má bæta við að það vantaði 5 menn í byrjunarlið Álftanes heyrði ég frá Álftanesingum.

Dómarinn - 4

Mér fannst dómarinn hefði átt að dæma víti í lokin þar sem leikmaður Gróttu ýtir við boltanum, svo var hann ekki að dæma mjög oft þegar mér fannst hann hefði átt að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.