Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Mjólkurbikar karla
Egilshöll
Engar veðurviðvaranir inni í Egilshöll
KR
KR
4 - 2
Valur
Valur
Eiður Gauti Sæbjörnsson 6'1 - 0Finnur Tómas Pálmason 20'2 - 0Aron Sigurðarson 46'3 - 03 - 166' Birkir HeimissonAron Sigurðarson 85'4 - 14 - 290' Bjarni Mark Antonsson
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
KR í 16-liða úrslit!
Ívar Orri flautar til leiksloka. Sigur KR er svo sannarlega verðskuldaður. Valsmenn fóru alla leið í úrslit í fyrra en hafa lokið þátttöku í Mjólkurbikarnum þetta árið. Viðtöl og skýrsla innan skams.
Valur
95. mín
Gult spjald

Ingimar Torbjörnsson Stöle

Brýtur á Aroni Sig og fer í bókina góðu.
94. mín
Guðmundur Andri með tilraun sem fer hátt yfir mark Valsmanna.
KR
92. mín
Gult spjald

Orri Hrafn Kjartansson

Valur
90. mín
Valsmenn klóra í bakkann

Bjarni Mark Antonsson

Frábært vinstri fótar skot hjá Bjarna fyrir utan teig, Arnar Freyr kemur engum vörnum við í marki KR.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
Valur
89. mín
InnPétur Eiríksson
ÚtBirkir Heimisson
Valur
89. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtAdam Ægir Pálsson
KR
86. mín
InnJón Ernir Ragnarsson
ÚtMichael Osei Akoto
KR
85. mín
Aron klárar þetta!

Aron Sigurðarson (stoðsending: Finnur Tómas Pálmason)

Finnur Tómas rennir boltanum á Aron Sig sem þræðir boltanum á milli fóta Harðar Inga og í fjærhornið. KR-ingar svo gott sem komnir í 16-liða úrslitin.
83. mín
Aron Sig með aðra tilraun en að þessu sinni fer hún langt framhjá marki gestanna.
82. mín
Aron Sig reynir að lyfta boltanum yfir Frederik Schram sem handsamar boltann auðveldlega.
79. mín
FREDERIK SCHRAM!
Guðmundur Andri með frábæran sprett og tekur fast skot sem Frederik ver vel, boltinn á Eið Gauta sem skýtur á markið en Frederik fljótur til og ver aftur frábærlega.
Valur
76. mín
Gult spjald

Hermann Hreiðarsson

Hemmi fær gult fyrir mótmæli.
76. mín
„Getur ekki verið annað en rautt spjald“
Valsmenn koma með bolta í gegn. Arnar Freyr markvörður KR hátt uppi á vellinum og fer harkalega í Tryggva Hrafn. Ívar Orri dæmir þó brot á Tryggva Hrafn og KR-ingar fá aukaspyrnu. Höddi Magg situr við hliðina á mér, hann segir Arnar í órétti og heimtar rautt spjald í lýsingu sinni.
KR
75. mín
InnOrri Hrafn Kjartansson
ÚtGabríel Hrannar Eyjólfsson
Arnór Ingvi fer niður í hafsent og Finnur Tómas út í breiddina vinstra megin.
72. mín
KR-ingar leika sér að eldinum. Ætla sér að spila út frá marki en Valsmenn komast inn í sendinguna. Boltinn berst þó beint á Arnar markmann og Vesturbæingar halda í boltann.
70. mín
Stórhætta!
Gabríel Hrannar með glórulausa sendingu sem Birkir Heimis kemst inn í. Arnar Freyr ekki í markinu en Birkir áttar sig ekki á því að hann hefur nægan tíma og flýtir sér í skotið sem fer framhjá. Valsmenn að sækja í sig veðrið!
69. mín
Valur fær hornspyrnu.
Valur
66. mín
Líflína!

Birkir Heimisson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Jakob Franz gefur fyrir á fjær, Tryggvi Hrafn skallar boltann fyrir markið á Birki Heimis sem skallar boltann í netið af stuttu færi. Tekst Valsmönnum að snúa taflinu við?
KR
65. mín
InnGuðmundur Andri Tryggvason
ÚtAmin Cosic
Guðmundur Andri mætir sínu gamla liði.
KR
65. mín
InnGaldur Guðmundsson
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
KR
63. mín
Gult spjald

Amin Cosic

Fer seint í Bjarna Mark og fær gult spjald að launum.
60. mín
Hvað gerðist hérna?
Frederik Schram missir auðveldan bolta frá sér, boltinn fer í Eið Gauta sem kveikir ekki á mistökum markvarðarins og Schram handsamar boltann að lokum. Þetta hefði verið gjöf hefði Eiður verið klár. Mjög furðuleg atburðarás.
Valur
59. mín
InnMyles A Veldman
ÚtMarkus Lund Nakkim
Markus Nakkim biður nú um skiptingu, slæm tíðindi fyrir Valsmenn. Nýi maðurinn Myles Veldman kemur inn í staðinn.
56. mín
KR-ingar hvergi nærri hættir!
Aron Sig með frábæra tilraun, ætlar sér að lyfta boltanum yfir Frederik sem kemur fingurgómunum í boltann. Því næst á Ástbjörn tilraun sem fer í varnarmann. Þarna mátti engu muna!
Valur
52. mín
InnAlbin Skoglund
ÚtJónatan Ingi Jónsson
50. mín
Jónatan Ingi sárþjáður
Liggur niðri, lítur ekki vel út. Snýr á sér ökklann og biður samstundis um skiptingu. Kom inn á fyrir fimm mínútum en neyðist til að fara af velli.
KR
46. mín
Eftir 49 sekúndur!

Aron Sigurðarson

KR-ingar bæta við þegar 49 sekúndur eru liðnar af seinni hálfleik. KR-ingar keyra upp í hraða sókn. Aron Sig lætur vaða, boltinn í varnarmann. Hann fær þó boltann aftur og lyftir honum snyrtilega yfir Frederik Schram og í fjærhornið. KR með annan fótinn í 16-liða úrslitum!
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Eiður Gauti sparkar þessu í gang.
Valur
46. mín
InnJónatan Ingi Jónsson
ÚtDagur Orri Garðarsson
Jónatan Ingi kemur inn!
Dagur Orri tekinn af velli. Hann átti hættulegustu tilraun Valsmanna er hann átti skot í stöngina á 31. mínútu.
45. mín
Hálfleiksmyndir í boði Hafliða
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
KR leiðir sanngjarnt!
Ívar Orri dómari flautar til hálfleiks. KR-ingar með tveggja marka forystu. Eins vel og KR-ingar líta út þá er útlitið ekki jafn bjart fyrir Hlíðarendafélagið, amk. ekki ef miðað er við þessar 45 mínútur.
45. mín
Einni mínútu bætt við
43. mín
KR-ingar fá hornspyrnu. Boltinn fer manna á milli í teignum en Valsmenn koma hættunni að lokum.
40. mín
Arnór Ingvi með góða tilraun! Lætur vaða fyrir utan teig en Frederik Schram ver vel í marki gestanna.
38. mín
Michael Akoto liggur eftir og leikurinn stöðvaður.
37. mín
Lúkas Logi með þrumuskot sem Arnar ver upp í loftið og kýlir loks frá.
33. mín
Aron Sig!
Lætur vaða úr aukaspyrnunni, Frederik nær að setja fingurgómana í boltann og ver vel.
Valur
32. mín
Gult spjald

Jakob Franz Pálsson

Brýtur á Amin Cosic við vítateigshornið og fer réttilega í bókina góðu.
31. mín
STÖNGIN!
Dagur Orri nálægt því að minnka muninn. Fær sendingu frá Tryggva Hrafni og lætur vaða af stuttu færi en boltinn í stöngina.
29. mín
Góð sókn Vals
Adam Ægir byggir upp skemmtilega sókn, sem endar með því að hann gefur fyrir á Tryggva Hrafn sem á kraftlítinn skalla að marki.
26. mín
Tryggvi Hrafn búinn að sleppa í gegn tvívegis með stuttu millibili en í bæði skiptin verið flaggaður rangstæður.
25. mín
Gabríel Hrannar með skalla að marki gestanna en Frederik Schram handsamar boltann örugglega.
KR
20. mín
Finnur tvöfaldar forystuna!

Finnur Tómas Pálmason (stoðsending: Aron Sigurðarson)

KR-ingar fá hornspyrnu, Aron Sig tekur. Finnur Tómas rís manna hæst og stangar boltann að marki. Boltinn fer í Jakob Franz og þaðan í netið. Brekkan verður brattari fyrir Valsmenn.
14. mín
Fyrsta ógn Valsmanna!
Hörður Ingi fær sendingu upp vinstri kantinn, hann kemur með hættulega sendingu fyrir markið en Tryggvi Hrafn nær ekki að reka stóru tána í boltann.
13. mín
Michael Akoto mundar nú skotfótinn en setur boltann yfir mark Vals.
12. mín
Arnór Ingvi Traustason með skot af löngu færi sem fer framhjá marki Vals.
11. mín
Algjör einstefna!
Aron Sig með skot sem fer af varnarmanni og í utanverða stöngina.
10. mín
Óhætt að segja það að KR-ingar líta ansi vel út hérna fyrstu tíu mínúturnar. Valsmenn ekki komist yfir miðju.
8. mín
Gabríel Hrannar!
Gabríel Hrannar með þrumuskot utan af velli en Frederik Schram ver vel í marki Vals.
KR
6. mín
Draumabyrjun KR!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Amin Cosic)

Eiður Gauti brýtur ísinn! Amin Cosic með góða fyrirgjöf á Eið Gauta sem stangar boltann beint á Frederik Schram. Boltinn berst þó aftur á Eið sem setur boltann í autt netið af stuttu færi. Þetta tók ekki langan tíma!
5. mín
KR-ingar halda betur í boltann. Þegar boltinn tapast pressa þeir stíft, eins og við mátti búast.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Dagur Orri Garðarsson á upphafsspark leiksins.
0. mín
Sigurður Breki ekki með
Hinn 16 ára gamli Sigurður Breki Kárason fékk höfuðhögg í landsliðsverkefni og er ekki með KR-ingum í dag. Þetta kom fram í útsendingu RÚV. Strákur sem er gríðarlega spennandi.
   05.04.2026 15:33
„Myndi borga mig inn 100-200 þúsund til að horfa á hann spila"
0. mín
Leikmenn ganga til vallar, Heyr mína bæn í tækunum og liðin fá mikið lófatak úr stúkunni.
0. mín
Fínasta stemning að myndast hérna í Egilshöllinni, Big Sexy í græjunum og fólk farið að tínast inn.
0. mín
Byrjunarliðstíðindi
Þá er búið er að opinbera byrjunarliðin og má sjá þau í heild sinni hér til hliðar. Annars er það helst að Óskar Hrafn byrjar áfram með Arnar Frey Ólafsson í markinu. Þeir Michael Akoto og Finnur Tómas eru þar fyrir framan í hafsentum. Það vekur athygli að Hrafn Tómasson er í byrjunarliði KR en hann var á láni hjá Þrótti í vetur. Þeir Aron Sigurðarson og Arnór Ingvi Traustason eru jafnframt báðir í byrjunarliði Vesturbæinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hrafn Tómasson. Hermann Hreiðarsson byrjar með Frederik Schram í markinu en hann hefur verið að glíma við meiðsli á undirbúningstímabilinu. Þá byrjar Dagur Orri Garðarsson fremstur, en hann gekk til liðs við félagið frá HK í vetur. Jónatan Ingi Jónsson byrjar á bekknum en hann hefur einnig verið að glíma við meiðsli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hemmi og Dagur Orri á tali í leik með HK síðasta sumar.
0. mín
Tvíhöfði í Egilshöll
Upprunalega átti leikurinn að fara fram á Meistaravöllum vestur í bæ en vegna veðurs var hann færður inn í Egilshöll. Leiknum var jafnframt seinkað um klukkustund en það er vegna leiks HK og Fjölnis sem hefst klukkan 13:00. Sjálfur verð ég á báðum leikjum og hvet flesta til þess að gera slíkt hið sama! Til þess má geta að allir leikir dagsins í Mjólkurbikarnum fara fram innanhúss.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Reykjavíkurslagurinn!
Heilir og sælir lesendur góðir og gleðilega páska! Hér verður bein textalýsing frá stórleik 32-liða úrslita í Mjólkurbikarnum þar sem KR tekur á móti Val inni í Egilshöllinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.