Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Mjólkurbikar karla
Knatthús Hauka
Svalar aðstæður inni en allskonar viðvaranir úti
Grindavík
Grindavík
5 - 3
Keflavík
Keflavík
0 - 1119' Eiður Orri RagnarssonRafael Alexandre Romao Victor 120'1 - 1Rafael Alexandre Romao Victor (misnotað víti) 121'1 - 2121' Eiður Orri Ragnarsson (víti)Eysteinn Rúnarsson (víti) 121'2 - 22 - 3121' Þorlákur Breki Þ. Baxter (víti)Rúnar Ingi Eysteinsson (víti) 121'3 - 3121' Ásgeir Páll Magnússon (misnotað víti)Ingi Þór Sigurðsson (víti) 121'4 - 3121' Marin Mudrazija (misnotað víti)Damir Muminovic (víti) 121'5 - 3
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Grindavík verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit á fimmtudaginn!
Grindavík
121. mín
DAMIR SENDIR GRINDAVÍK Í 16-LIÐA ÚRSLIT!

Damir Muminovic

Þrumar á mitt markið og sendir Grindavík áfram!
Keflavík
121. mín
Klúðrar tvisvar!

Marin Mudrazija

Hjörvar Daði ver bæði vítin frá honum!
Þurfti að taka vítið aftur eftir að Hjörvar Daði steig af línunni.
Grindavík
121. mín
Alveg út við stöng

Ingi Þór Sigurðsson

Ásgeir Orri er í réttu horni en alveg út við stöng!
Keflavík
121. mín
Skýtur yfir markið!

Ásgeir Páll Magnússon

Grindavík
121. mín
Öruggur

Rúnar Ingi Eysteinsson

Keflavík
121. mín
Öruggur

Þorlákur Breki Þ. Baxter

Grindavík
121. mín
Öruggt

Eysteinn Rúnarsson

Sendir Ásgeir Orra í vitlaust horn.
Keflavík
121. mín
Öruggur

Eiður Orri Ragnarsson

Sendir Hjörvar Daða í vitlaust horn.
Grindavík
121. mín
Ásgeir Orri ver fyrstu spyrnuna!

Rafael Alexandre Romao Victor

Ekkert frábær spyrna.
121. mín
Grindvíkingar byrja vítaspyrnukeppnina
Rafael Victor fyrstur á punktinn.
120. mín
Við erum að fara í vítaspyrnukeppni!
Tvö mörk alveg í restina hérna og við fáum vítaspyrnukeppni til að útkljá þetta!
Grindavík
120. mín
ÞEIR JAFNA!!!

Rafael Alexandre Romao Victor (stoðsending: Ingi Þór Sigurðsson)

+2
Damir með frábæran bolta á Inga Þór sem skallar fyrir markið á Rafael Victor sem jafnar leikinn!!

JAHÉRNAHÉR!!!
120. mín
Tvær mínútur í uppbót
Keflavík
119. mín
Keflavík að klára þetta?

Eiður Orri Ragnarsson (stoðsending: Davíð Helgi Aronsson)

KEFLAVÍK SKORAR EFTIR HORN!!
Davíð Helgi flikkar boltanum upp og Eiður Orri nær að stinga sér á milli og skalla boltann í netið!
119. mín
Hornspyrna frá Keflavík sem fellur fyrir Ernir Bjarna og hann þrumar Grindvíkng niður og Keflavík fær annað horn.
Keflavík
117. mín
InnBaldur Logi Brynjarsson
ÚtBaldur Logi Guðlaugsson
115. mín
Ingi Þór tekur spyrnuna en hún er afleit hátt yfir í markmannshornið.
114. mín
Grindavík fær aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Keflavíkur. Axel Ingi brotlgur í baráttunni við Inga Þór.

Vel hægt að skjóta úr þessari spyrnu.
113. mín
Þorlárkur Breki Baxter með fínustu fyrirgjafir hjá Keflavík en vantar bara einhvern á endan á þessum fyrirgjöfum.
Grindavík
108. mín
InnAndri Karl Júlíusson Hammer
ÚtMikael Máni Þorfinnsson
107. mín
Keflavík með innkast sem Stefan Ljubicic flikkar á fjær og Baldur Logi á gott skot á nærstöng sem Hjörvar Daði ver virkilega vel.

Keflavík heldur pressunni og vinnur svo hornspyrnu sem Grindvíkingar koma svo frá.
106. mín
Stefan Ljubicic sparkar okkur af stað í síðasta korterið.
105. mín
Fyrri framlenginar lokið
+1
Enn jafnt eftir fyrri hálfleik framlenginunnar. Þreytumerki farin að sjást á liðunum, eðlilega kannski.

Fáum korter í viðbót til að fá mark í þetta annars bíður okkar vítaspyrnukeppni til að útkljá þetta.
105. mín
Baldur Logi keyrir Rafael Victor niður en sleppur við spjald. Hefði vel verið hægt að rífa upp svörtu bókina þarna.
104. mín
Keflavík reynir að sækja hratt en sendinginn of innarlega beint í fangið á Hjörvari Daða.
103. mín
Eiður Orri í færi en þrumar í hliðarnetið.
102. mín
Baldur Logi lætur vaða að marki en hátt yfir.
101. mín
Aðeins farið að sjást þreytumerki á liðunum.
99. mín
Keflavík í lofandi sókn og Stefan Ljubicic vinnur hornspyrnu.
Grindavík
97. mín
Gult spjald

Eysteinn Rúnarsson

Rífur aftan í Stefan Ljubicic og fær réttilega gult.
92. mín
Keflavík fær hornspyrnu sem litlu mátti muna að Nacho Heras hefði náð að pota boltanum inn úr.
91. mín
Grindvíkingar byrja með boltann í framlenginunni.
90. mín
Það verður framlengt!
Boltinn vill ekki inn og það er markalaust eftir venjulegan leiktíma!
90. mín
+3
Baldur Logi með skot sem Hjörvar Daði ver og Keflavík heldur boltanum og Ásgeir Páll fær svo annað tækifæri og aftur ver Hjörvar Daði.
90. mín
+2
Rúnar Ingi í fínasta skotfæri en hittir ekki á rammann!
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
90. mín
Rafael Victor með snúning og kemur skoti á markið en Ásgeir Orri ver þetta!
Keflavík
87. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtDagur Ingi Valsson
Grindavík
87. mín
InnSindri Þór Guðmundsson
ÚtStefán Jón Friðriksson
Keflavík
87. mín
InnAxel Ingi Jóhannesson
ÚtAnton Kralj
87. mín
Eiður Orri kemur sér í gott skotfæri en þrumar boltanum svo framhjá! Hefur líklega farið í einhvern á leiðinni því Keflavík fær hornspyrnu.
83. mín
Varsla!
Christian Bjarni á flotta fyrirgjöf sem Rúnar Ingi skallar í Anton Kralj og að marki sem Ásgeir Orri þarf að hafa sig allan við að blaka yfir markið!
82. mín
Enn ein hornspyrnan sem ekkert kemur úr í þessum leik og nú frá Kelfavík.
79. mín
Grindavík sækja hratt en Keflavík kemst fyrir skot Heiðars Snærs. Grindavík heldur boltanum og nær öðru skoti að marki en það er auðvelt fyrir Ásgeir Pál í marki Keflavíkur.
Keflavík
75. mín
InnBaldur Logi Guðlaugsson
ÚtHalid Alghoul
Keflavík
75. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtSindri Snær Magnússon
72. mín
Varsla!
Keflavík í hörku færi! Eiður Orri nær að koma boltanum á Dag Inga í fínu færi en Hjörvar Daði nær að loka á hann!

Boltinn vill ekki inn!
70. mín
Keflavík búnir að ýta Grindvíkingum vel aftur.
Grindavík
68. mín
InnHeiðar Snær Ragnarsson
ÚtValur Þór Hákonarson
Grindavík
68. mín
InnEysteinn Rúnarsson
ÚtHaraldur Björgvin Eysteinsson
67. mín
Keflavík í þungri sókn sem endar með skoti hátt yfir markið frá Davíð Helga.
66. mín
Grindvíkingar reyna að leita leiða í kringum varnarmúr Keflavíkur en eru ekki að finna leiðir. Ingi Þór með fínasta sprett og reyndi að lauma Rafael Victor í gegn en tókst ekki.
64. mín
Endana á milli þessa stundina en hvorugu liði tekist að koma marktilraun á rammann.
61. mín
Leikurinn stopp meðan hugað er að Inga Þór hjá Grindavík. Halid Alghoul rann á hann í baráttu um boltann og Ingi Þór fann vel fyrir því.
60. mín
Eiður Orri reynir skot en Damir skallar það frá.
60. mín
Grindvíkingar aðeins að komast í takt aftur.
Grindavík
57. mín
Gult spjald

Haraldur Björgvin Eysteinsson

56. mín
Rúnar Ingi í skotfæri en framhjá fer það.

Grindavík fær þó hornspyrnu en Ásgeir Orri grípur spyrnuna.
53. mín
Allt annað að sjá til Keflavíkurliðins núna í seinni!

Ásgeir Páll býr sér til flott færi en Grindvíkingar verjast vel.
49. mín
Stefan Ljubicic á skot sem Hjörvar Daði ver.

Keflavík mæta með miklum krafti út í seinni hálfleikinn og eru mun grimmari.
48. mín
Bjargað á línu!
Aukaspyrna frá Þorláki Breka Baxter fyrir markið fer á fjærstöngina og Dagur Ingi á skalla sem Grindavík bjarga á línu!
47. mín
Aukaspyrna dæmd þegar Ásgeir Páll er tekinn niður rétt fyrir framan vítateigslínuna hægra meginn.
46. mín
Rafael Victor sparkar þessu af stað aftur.
45. mín
Grindavík verið sterkari aðilinn hér í fyrri hálfleik. Bæði lið fengið sín færi en Grindvíkingar verið i hættulegri færum.

Fáum vonandi einhver mörk í þetta í seinni en við tökum okkur stutta pásu.
45. mín
Einni mínútu bætt við
Einni mínútu bætt við fyrri hálfleikinn.
44. mín
Stefan Ljubicic reynir skot sem er hættulítið beint á Hjörvar Daða.
41. mín
Grindavík vinnur horn eftir flotta sókn en það er afskaplega lítið að koma úr þessum hornum.
36. mín
Færi!
Ingi Þór með flottan sprett upp að endalínu og kemur boltanum fyrir þar sem Valur Þór mætir en Davíð Helgi nær að henda sér fyrir og bjarga í horn.
34. mín
Ásgeir Páll í skotfæri eftir innkast en hittir boltann illa og hann fer beint í hendur Hjörvars Daða.
31. mín
Halid Alghoul leggur boltann fyrir Dag Inga sem ætlar að rista hann en hittir hann ekkert sérstaklega og framhjá fór það.
27. mín
Kraftlaus skalli
Flott fyrirgjöf fyrir mark Grindavíkur en Stefan Ljubicic á lausan skalla í frábærri stöðu sem Hjörvar Daði á ekki í vandræðum með.
26. mín
Stöngin!
Rafael Victor býr sér til frábært skot sem smellur í stönginni og Rúnari Ingi Eysteinsson fær frákastið en dregur boltann framhjá!
24. mín
Varsla!
Grindvíkignar taka aukaspyrnuna og koma boltanum inn á teig þar sem Rúnar Ingi sýndist mér það vera var í frábæru færi en Ásgeir Orri gerði sig breiðan og varði gríðarlega vel!
Keflavík
24. mín
Gult spjald

Ígnacio Heras Anglada

Fyrstur í svörtu bókina eftir að hafa misst boltann frá sér og farið svo í Val Þór.
22. mín
Stöngin!
Ásgeir Páll með frábæran bolta fyrir markið og Dagur Ingi grunsamlega frír á teignum stýrir boltanum í stöngina!
20. mín
Rafael Victor með stungu ætlaða Rúnari Inga en aðeins of föst og Ásgeir Orri er á undan í boltann.
19. mín
Ingi Þór með skemmtilega sendingu inn á teig ætlaða Vali Þór en Ásgeir Orri kemst á milli.
18. mín
Keflvíkingar aðeins farnir að ýta sér ofar.
15. mín
Sindri Snær í flottri fyrirgjafarstöðu en sendingin fyrir markið afleit og endar í innkasti fyrir Grindavík.
13. mín
Halid Alghoul með fyrirgjöf fyrir markið en Damir kemur boltanum frá með herkjum.
12. mín
Grindvíkingar verið hættulegri hérna í upphafi leiks.
11. mín
Grindvíkingar fá fyrstu hornspyrnu leiksins.
9. mín
FÆRI!
Ingi Þór tíar upp Harald Björgvin í frábæru færi en hann skýtur framhjá!

Þetta var dauðafæri!
8. mín
Ingi Þór fær boltann úti vinstra meginn og lætur bara vaða - Fínasta skot en framhjá fer það.
3. mín
Eiður Orri með tilraun sem fer framhjá markinu. Fínasta spil upp hægri en skotið framhjá.
1. mín
Keflavík byrjar með boltann.
Fyrir leik
Grindavík er enn eitt árið að móta sitt lið rétt fyrir sumarið, Keflvíkingar voru snemma tilbúnir með sitt lið og mæta af krafti eftir stuttan rúnt yfir Reykjanesbrautina, -1 á Keflavík er frábærlega boðið
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar.

Mér sýnist á öllu að bæði lið séu að stilla upp nálægt sínu sterkasta liði svo það verður skemmilegt að fylgjast með þessari baráttu.

Stefán Jón Friðriksson, Valur Þór Hákonarson og Rúnar Ingi Eysteinsson komu allir frá Keflavík til Grindavíkur fyrir þetta tímabil svo þeir verða sennilega fullir eldmóðs að mæta sínu gamla félagi.

Annars hafa fleirri leikmenn spilað með báðum þessum liðum hér í dag. Sindri Þór Guðmundsson á bekk Grindavíkur er uppalinn í Keflavík og þá spilaði Stefán Ljubicic með Grindavík í efstu deild.
Fyrir leik
Grindavík
Grindavík sló út Elliða í annari umferð Mjólkurbikarsins með því að leggja þá af velli 2-0 í Árbænum. Mörk Grindavíkur skoruðu Rúnar Ingi Eysteinsson og Valur Þór Hákonarson.

Grindavík döðruðu við falldrauginn í Lengjudeildinni á síðasta tímabili en boða betri tíma í ár en þeir hafa bætt öflugum mönnum við lið sitt fyrir komandi átök í Lengjudeildinni í sumar.

Komnir
Damir Muminovic frá Breiðabliki
Ingi Þór Sigurðsson keyptur frá ÍA (var á láni)
Hjörvar Daði Arnarsson frá ÍBV
Rafael Victor frá Þór
Robert Blakala frá Selfossi
Stefán Jón Friðriksson frá Keflavík
Heiðar Snær Ragnarsson frá KFA
Rúnar Ingi Eysteinsson frá Þrótti V. (var á láni frá Keflavík)
Valur Þór Hákonarson frá Víði (var á láni frá Keflavík)

Farnir
Adam Árni Róbertsson í Þrótt R.
Ármann Ingi Finnbogason í Víking (var á láni frá ÍA)
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni frá HK)
Breki Þór Hermannsson í Vestra (var á láni frá ÍA)
Árni Salvar Heimisson (var á láni frá ÍA)
Terry Lartey-Sanniez til Hollands
Kristófer Leví Sigtryggsson í Fylki
Matias Niemela (var á láni frá Vestra)
Dennis Nieblas Moreno til Gíbraltar

Samningslausir
Haraldur Björgvin Eysteinsson
Kristófer Máni Pálsson
Manuel Gavilan Morales
Darren Sidoel
Arnar Smári Arnarsson
Friðrik Franz Guðmundsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Keflavík
Keflavík mætir til leiks hér í 32-liða úrslitum ásamt öllum liðum Bestu deildarinnar fyrir komandi sumar.

Keflavík fóru upp í Bestu deildina í gegnum umspil Lengjudeildarinnar en þeir enduðu í 5.sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili en toppuðu á hárréttum tíma í haust.

Lið Keflavíkur hefur tekið breytingum frá síðasta tímabili en helstu breytingarnar má sjá hér:

Komnir
Anton Kralj frá Vestra
Davíð Helgi Aronsson fá Víkingi á láni (var hjá Njarðvík á láni)
Þorlákur Breki Baxter frá Stjörnunni (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson frá Stjörnunni
Dagur Ingi Valsson frá KA
Halid Alghoul frá Króatíu
Mirsad Basic

Farnir
Kári Sigfússon í Fylki
Sindri Kristinn Ólafsson til Svíþjóðar
Ari Steinn Guðmundsson
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson í Hauka
Stefán Jón Friðriksson í Grindavík
Valur Þór Hákonarson í Grindavík (var á láni hjá Víði)
Rúnar Ingi Eysteinsson í Grindavík (var á láni hjá Þrótti V.)

Samningslausir
Marin Mudrazija
Marin Brigic
Rúnar Gissurarson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

   19.03.2026 12:00
Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 12. sæti

   19.03.2026 12:30
„Við teljum okkur eiga heima hérna"

   19.03.2026 12:45
Niðurtalningin - Keflvíkingar láta sig dreyma um Forsetabikarinn
Fyrir leik
Velkomin til leiks!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Grindavíkur og Keflavíkur í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla.

Leikurinn fer fram í knatthúsi Hauka.

Mynd: Fótbolti.net - Bjarni Már Svavarsson

   05.04.2026 21:12
Sjáðu bikarmörkin: Markaveisla um páskahelgina


Leikir dagsins - Mjólkurbikar karla
13:00 Grindavík-Keflavík (Knatthús Hauka)
13:00 Fjölnir-HK (Egilshöll)
13:00 ÍA-Haukar (Akraneshöllin)
14:15 Grótta-Álftanes (Miðgarður)
17:00 KR-Valur (Egilshöll)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.