Fotbolti.net
Kári Snorrason
Kári Snorrason
Mjólkurbikar karla
Egilshöll
Ferðumst innanhúss
Fjölnir
Fjölnir
3 - 4
HK
HK
Viktor Andri Hafþórsson 26'1 - 0Viktor Andri Hafþórsson 38'2 - 02 - 147' Jóhann Þór Arnarsson2 - 255' Jóhann Þór ArnarssonViktor Andri Hafþórsson (víti) 58'3 - 23 - 374' Dominik Radic3 - 491' Dominik Radic
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Leik lokið!
HK-ingum tókst að snúa blaðinu við!
Heldur betur dramatískur sigur HK-inga. Þeir verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins.

Viðtöl og skýrsla innan skams.
HK
91. mín
Er Radic að stanga HK-ingum í 16-liða úrslit?

Dominik Radic (stoðsending: Atli Þór Gunnarsson)

Keimlíkt fyrra marki Radic!

Lúrir á nærsvæðinu og nær að koma hausnum í boltann og stýrir honum inn af stuttu færi.

HK-ingar hafa snúið þessu við!
91. mín
HK fær hornspyrnu.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
Fjölnir
88. mín
Gult spjald

Patryk Hryniewicki

Fékk aðhlynningu og kemur, að ég held, of snemma inn á. Samkvæmt nýjum reglubreytingum þarf leikmaður að bíða í heila mínútu eftir að leikur byrjar aftur. Hann má koma inn á þegar sú mínúta er liðin og leikurinn stopp.
87. mín
Tumi Þorvars með þrumuskot sem fer yfir mark gestanna.
85. mín
Nú fá gestirnir hornspyrnu, boltinn á Radic sem skallar yfir.
84. mín
Mikil spenna í loftinu þessa stundina. Bæði lið sækja til sigurs.
83. mín
Heimamenn fá hornspyrnu en HK-ingar skalla frá.
HK
81. mín
Gult spjald

Tumi Þorvarsson

Stöðvar skyndisókn og fær réttilega gult.
HK
74. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtÞorvaldur Smári Jónsson
Ungur inn, ungur út.
HK
74. mín
RADIC JAFNAR!

Dominik Radic (stoðsending: Ívar Örn Jónsson )

Þvílíkur leikur sem við erum að fá!

Stangar hornspyrnu Ívars Arnar í netið og jafnar metin.
73. mín
HK-ingar fá hornspyrnu.
70. mín
Atli Þór Gunnarsson með lúmska tilraun úr aukaspyrnu sem fer rétt framhjá marki heimamanna.
Fjölnir
69. mín
InnHelgi Snær Agnarsson
ÚtOrri Þórhallsson
65. mín
HK-ingar grátlega nálægt því að jafna!
Jóhann Þór keyrir að marki með miklu harðfylgi. Nær að pota boltanum undir Snorra markvörð. Enginn í markinu en Jói týnir boltanum og Fjölnismenn koma hættunni frá á ögurstundu.
Fjölnir
64. mín
InnAron Fannar Hreinsson
ÚtBjarni Þór Hafstein
62. mín
Tumi Þorvars með hættulega fyrirgjöf, en Jóhann Þór tekst ekki að reka stóru tána í boltann og Snorri ver. HK-ingar hættulegir!
61. mín
HK fær hornspyrnu, en ekkert kemur upp úr henni.
60. mín
Jóhann Þór með tilraun úr erfiðri stöðu sem fer framhjá marki heimamanna.
Fjölnir
58. mín
Fjölnir leiðir á nýjan leik!

Viktor Andri Hafþórsson

Öruggt var það!

Sendir Óla í rangt horn og fullkomnar þrennuna.
57. mín
Viktor Andri fer á punktinn, tekst honum að fullkomna þrennuna?
56. mín
FJÖLNIR FÆR VÍTASPYRNU!
Þvílíkar mínútur hér í Egilshöll!

Bjarni Hafstein sækir vítaspyrnuna, sá því miður ekki hver var brotlegur.
HK
55. mín
HK-ingar jafna!

Jóhann Þór Arnarsson (stoðsending: Arnþór Ari Atlason)

Þetta tók ekki langan tíma!

Arnþór Ari tekur boltann niður eftir fyrirgjöf, rennir honum á Jóhann Þór sem hamrar boltann í þaknetið úr þröngu færi. Huggulegt mark!
52. mín
HK-ingar þrjár hornspyrnur með stuttu millibili. Sú þriðja endar með skalla yfir frá Sigurði Gunnari.
Fjölnir
50. mín
Gult spjald

Viktor Andri Hafþórsson

Markaskorari Fjölnis spjaldaður fyrir dýfu.
50. mín
Jóhann aftur í færi
Með skot af stuttu færi en Snorri ver vel í marki Fjölnis. Boltinn í hornspyrnu!
HK
47. mín
Gestirnir minnka muninn!

Jóhann Þór Arnarsson (stoðsending: Atli Þór Gunnarsson)

Draumabyrjun HK-inga á þessum síðari hálfleik!

Atli Þór með frábæra sendingu í gegn á Jóhann Þór, sem geysist upp völlinn eins og raketta. Nær að pota boltanum framhjá Snorra, markverði Fjölnis, og setur boltann í autt netið.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
Gestirnir sparka þessu af stað.
45. mín
Heimamenn leiða með tveimur í hálfleik!
+3

Fjölnismenn fara með tveggja marka forystu í hálfleik og það nokkuð sanngjarnt. Heimamenn hafa verið grimmari og fengið betri færi. HK-ingar þurfa betri frammistöðu hér í síðari hálfleik til að eiga séns.
45. mín
Stöngin!
+1

Arnþór Ari með skalla úr teignum sem fer í stöngina. HK-ingar að sækja í sig veðrið rétt fyrir hlé.
44. mín
Bjarni Hafstein vinnur boltann hátt uppi á vellinum og nær tilraun á markið en Ólafur Örn á í litlum vandræðum með að handsama boltann.
Fjölnir
41. mín
Gult spjald

Oskar Wasilewski

Tumi Þorvars geysist upp vinstri kantinn, Oskar brýtur á honum og fær verðskuldað gult spjald að launum.
Fjölnir
38. mín
Viktor tvöfaldar forystuna!

Viktor Andri Hafþórsson

Vel útfærð skyndisókn hjá Fjölnismönnum. Boltinn á Viktor Andra sem lætur vaða úr teignum. Boltinn tiltölulega beint á Ólaf Örn sem ver boltann í netið. Óli eflaust svekktur með sjálfan sig þarna.

2-0!
37. mín
HK-ingar skora en rangstæða dæmd!
Góð sókn HK-inga sem endar með því að Jóhann Þór setur boltann í netið af stuttu færi en flaggið fer réttilega á loft.
34. mín
Aftur fá HK-ingar hornspyrnu sem ekkert kemur upp úr.
32. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, taka það stutt en Atli Þór missir boltann aftur fyrir endalínu og Fjölnismenn fá markspyrnu.
Fjölnir
29. mín
HK-ingar vilja sjá það rauða!

Árni Steinn Sigursteinsson

Hiti í mönnum!

Árni Steinn fer alltof seint í tæklingu á Svavari Erni sem liggur eftir. Menn hópast saman og góla á hvern annan. Jóhann Ingi, dómari leiksins, lyftir þó aðeins upp því gula, HK-ingum til lítillar hrifningar.
Fjölnir
26. mín
Viktor brýtur ísinn!

Viktor Andri Hafþórsson

Viktor á frábæran skalla í fjærhornið eftir huggulega sendingu frá Oskari Wasilewski á hægri kanti.

Heimamenn leiða!
22. mín
Fjölnir klúðrar dauðafæri!
Árni Steinn Sigursteinsson komst einn á móti Ólafi markverði en setti boltann framhjá! Þetta var sannkallað dauðafæri.
20. mín
Fjölnismenn að sækja, eiga tvö skot sem enda í varnarmönnum áður en síðasta skotið fer yfir markið.

Þess má geta að fyrsta mark dagsins er komið. Viktor Jónsson hefur komið ÍA yfir gegn Haukum.
17. mín
Ívar Örn Jónsson tekur hornspyrnu fyrir HK en Fjölnismaður skallar frá.
14. mín
Birgir Þór Jóhannsson flaggaður rangstæður.
HK
13. mín
Gult spjald

Ólafur Örn Ásgeirsson

Markvörður HK var kominn út úr vítateignum á öðrum kantinum og braut af sér. Fær gult spjald og Fjölnir fær aukaspyrnu með fyrirgjafarmöguleika.
12. mín
HK-ingar hafa verið að ná að opna vörn Fjölnis síðustu mínútur og hafa unnið sína fyrstu hornspyrnu.
10. mín
Livey - Horfðu á leikinn í beinni hér:
9. mín
HK kemst í hættulega sókn en Snorri Þór Stefánsson í marki Fjölnis mætir út úr teignum og stöðvar þetta.
8. mín
Aftur fær HK horn. Snorri kýlir boltann út beint á Jóhann Þór sem tekur viðstöðulaust skot en setur boltann langt framhjá.
7. mín
Fjölnismenn fengið tvær hornspyrnu. Ólafur í mark HK grípur seinni hornspyrnuna auðveldlega. Æfingabolti.
4. mín
Bjarni Þór Hafstein með skot sem Ólafur Örn Ásgeirsson, markvörður HK, nær að verja. Var frekar þröngt færi. Fjölnir fær fyrstu hornspyrnu leiksins.
1. mín
Jóhann Ingi búinn að flauta þetta á
Þrír bikarleikir sem voru að hefjast rétt í þessu og þeir eru auðvitað allir í beinum textalýsingum hjá okkur á Fótbolta.net. Auk leiksins í Egilshöllinni þá eru ÍA og Haukar að leika í Akraneshöllinni og þá spila Grindavík og Keflavík í knatthúsi Hauka.

Fjölnismenn leika í átt að Keiluhöllinni í fyrri hálfleik. Góða skemmtun!
Fyrir leik
Ungir leikmenn að spreyta sig
Meðalaldur byrjunarliðs Fjölnis er 23 ár og hjá HK 24 ár. Yngsti leikmaður í byrjunarliðunum er Þorvaldur Smári Jónsson hjá HK sem er 2008 módel, 17 ára gamall miðjumaður. Hann æfði til reynslu hjá Sunderland í vetur.

Mynd: HK

Fyrir leik
Fjölnir-HK öskrar ekki á neitt annað en mörk, þjálfarateymi Fjölnis mun ekki leggjast til baka og verja markið sitt, yfir 4 á epic er 1.91
Fyrir leik
Innanhússfótbolti enda viðvaranir um land allt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir um allt land í dag. Flestum leiðum að höfuðborgarsvæðinu hefur verið lokað. Allir bikarleikir dagsins eru spilaðir innanhúss. Mikið stuð!
Fyrir leik
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aðstoðardómarar: Ragnar Þór Bender og Jón Reynir Reynisson.
Fyrir leik
HK setur stefnuna upp
Mynd: HK

HK-ingar töpuðu úrslitaleik umspilsins í Lengjudeildinni í fyrra þegar þeir fengu skell gegn Keflavík. Gunnar Heiðar Þorvaldsson er tekinn við stjórnartaumunum og Kópavogsliðið ætlar að gera aðra tilraun í að fara upp í Bestu deildina.

Komnir
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR

Farnir
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)

Samningslausir
Atli Arnarson
Fyrir leik
Fallnir Fjölnismenn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjölnismenn féllu úr Lengjudeildinni í fyrra og leika því í 2. deildinni í sumar. Þjálfari liðsins er herra Fjölnir, Gunnar Már Guðmundsson.

Komnir
Viktor Andri Hafþórsson frá Þrótti R.
Aron Fannar Hreinsson frá Ægi
Patryk Hryniewick frá Leikni
Oscar Wasilewski frá Kára
Helgi Snær Agnarsson frá KFG
Axel Freyr Ívarsson frá Kára (var á láni)

Farnir
Rafael Máni Þrastarson til ÍA
Sigurjón Daði Harðarson í Fram
Hilmar Elís Hilmarsson í ÍA (var á láni)
Egill Otti Vilhjálmsson í Fram (var á láni)
Þengill Orrason í Fram (var á láni)
Jón Kristinn Ingason í Þrótt Vogum (var á láni)
Árni Elvar Árnason í Leikni
Kristófer Dagur Arnarsson í Val
Laurits Nörby til Færeyja

Samningslausir
Brynjar Gauti Guðjónsson
Brynjar Elí Jóhannsson
Fyrir leik
Fylgst með í gegnum Livey!
Hér fylgjumst við með gangi mála í leik Fjölnis og HK í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn er sýndur beint og í opinni dagskrá í gegnum Livey og þessi lýsing er í gegnum þá útsendingu.

Leikir dagsins:
13:00 Grindavík-Keflavík (Knatthús Hauka)
13:00 Fjölnir-HK (Egilshöll)
13:00 ÍA-Haukar (Akraneshöllin)
14:15 Grótta-Álftanes (Miðgarður)
17:00 KR-Valur (Egilshöll)

   05.04.2026 21:12
Sjáðu bikarmörkin: Markaveisla um páskahelgina
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.