Fotbolti.net
Besta deildin
Sölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta deildin
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
1 - 2
Þór
Þór
Dagur Orri Garðarsson 27'1 - 01 - 137' Christian Jakobsen1 - 289' Ingimar Arnar Kristjánsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Leik lokið!
Þórsarar vinna Val!
Þvílíkur leikur hjá Þórsurum en Valsmenn þurfa líta í spegil eftir þennan leik.

Viðtöl og skýrsla detta inn seinna í kvöld, þangað til næst takk fyrir mig og lifið heil!
91. mín
Dauðafæri! - Hendi?!
Valsarar keyra upp í sókn og Aron ver stórkostlega frá Degi Orra af stuttu færi. Dagur fær þá boltann inni á teignum og skallar á markið en Fannar Daði bjargar á línu.

Varsla umferðarinnar og þvílík dramatík hérna í blálokin!
90. mín
4 mínútur í uppbótartíma!
Þór
89. mín
SEEEEENNUUUUUURRR!!!!

Ingimar Arnar Kristjánsson

Þórsarar keyra upp í skyndisókn og skora!

Isaac fær boltann og Hörður brýtur mjög viljandi en þá fær Ingimar Arnar boltann. Hann keyrir lengra upp völlinn, fer yfir á hægri og tekur skotið í fjærhornið sem syngur í netinu.

Það tryllist allt í stúkunni og hjá leikmönnum og þjálfarateyminu!
87. mín
Hólmar nær skallanum en hann er ekki fastur og Aron nær boltanum auðveldlega.
87. mín
Færi!
Hörður fær boltann inn á teignum og fær nægan tíma til að athafna sig. Hann tekur skotið sem Affi kemur í veg fyrir og skallar aftur fyrir í horn.
Þór
85. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtAtli Sigurjónsson
Þór
85. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtSebastian Heimvik Haugland
83. mín
Fáum við drama?
Valsarar líklegri þessa stundina að stela sigurmarkinu. Þórsarar hafa eitthvað slökkt á sér en það er stutt á milli í þessu og þeir þurfa bara eitt færi!
Þór
78. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtChristian Jakobsen
78. mín
Áfram sækja Valsarar og fá aðra hornspyrnu.
77. mín
Bjarni tekur spyrnuna inn á teiginn sem Þórsarar skalla frá en sóknarpressa Vals heldur áfram.
76. mín
Valsmenn fá hornspyrnu!
Þór
73. mín
InnBjarni Guðjón Brynjólfsson
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
Þór
73. mín
InnIsaac Atanga
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
Valur
69. mín
InnEmil Nönnu Sigurbjörnsson
ÚtAlbin Skoglund
68. mín
Valsmenn sækja!
Adam gerir vel og kemur með góðan bolta á Lúkas Loga sem reynir skotið eftir góða snertingu en Aron gerir vel í að verja skotið.
66. mín
Atli fær boltann við vítateigslínuna og reynir skotið sem fer rétt yfir markið.
Valur
63. mín
InnMyles A Veldman
ÚtBirkir Heimisson
Valur
63. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtIngimar Torbjörnsson Stöle
61. mín
Smá barningur inni á teignum sem Valsmenn hreinsa að lokum frá.
60. mín
Þórsarar fá hornspyrnu!
55. mín
DAUÐAFÆRI!
Valsmenn keyra upp völlinn eftir að hafa unnið boltann úr hornspyrnunni. Dagur fær boltann og tekur lélega snertinu inn á vítateignum en reynir við skotið sem Kristófer kemst í veg fyrir og dúndrar boltanum aftur fyrir, rétt framhjá.

Ekkert kemur úr hornspyrnunni.
54. mín
Kristófer tekur skotið fyrir utan teiginn sem fer af varnarmanni og rétt framhjá í horn, þetta kveikir í stúkunni!
Þór
51. mín
Gult á Sigga

Sigurður Heiðar Höskuldsson

Siggi búinn að vera að pirra sig á þriðja liðinu mjög mikið í dag og Helgi hefur séð nóg og veifar gula spjaldinu á hann.
49. mín
Rautt?!
Stöle tæklar einn Þórsarann niður og Helgi flautar aukaspyrnu. Þórsararir tryllast út í þriðja liðið og vilja fá annað gula spjaldið en Helgi hristir bara hausinn.
48. mín
Moli beint úr Njarðvík!
Kollegi minn Stefán Marteinn kom með mjög skemmtilegan mola. Öll liðin sem eru í Bestu deildinni núna hafa á einhverjum tímapunkti orðið Íslandsmeistarar nema Þór Akureyri.
46. mín
Seinni hálfleikurinn hafinn
Dagur Orri sparkar okkur í gang á ný.
45. mín
Tölfræði fyrri hálfleiks
Possesion
59% Valur - Þór 41%

Skot
6 Valur - Þór 4

Skot á mark
3 Valur - Þór 1

Sendingar
256 Valur - Þór 173

Hornspyrnur
2 Valur - Þór 3
45. mín
Allt janft í hálfleik
Líflegur fyrri hálfleikur að baki.

Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori.
45. mín
1 mínúta í uppbótartíma
42. mín
Svona sé ég þetta
Valur (4-3-3)
Frederik
Ingimar Stöle - Jakob - Hólmar - Hörður
Skoglund - Bjarni - Birkir
Tryggvi - Dagur - Lúkas

Þór (4-4-1-1)
Aron
Kristófer - Ragnar - Affi - Ásbjörn
Atli - Greko - Einar - Sigfús
Ágúst
Sebastian
Þór
37. mín
Þórsarar jafna!

Christian Jakobsen (stoðsending: Einar Freyr Halldórsson)

Stangar þetta í netið!

Einar Freyr tekur frábæra aukaspyrnu inn á teiginn sem Christian stangar í netið. Alls ekki nógu góður varnarleikur hjá Völsurum!

Þórsarar í stúkunni tryllast, hvaða áhrif hefur þetta mark á leikinn?
34. mín
Víti?!
Valsmenn ósáttir. Skömmu áður en Ingimar brýtur kemur hár bolti inn á teiginn sem Tryggvi ætlar að skalla í markið en dettur einhvernveginn í loftinu. Valsmenn vilja fá vítaspyrnu og vilja meina að Tryggva hafi verið hrint.

Þetta verður fróðlegt að skoða aftur!
Valur
34. mín
Stoppar hraða skyndisókn

Ingimar Torbjörnsson Stöle

Fær réttilega gult spjald.
32. mín
Leikurinn hefur heldur betur róast eftir mark Dags Orra. Þórsarar orðnir strax frekar pirraðir og hafa ekki verið ánægðir með seinustu mínútur Helga dómara.
Valur
27. mín
Aron Birkir klaufalegur!

Dagur Orri Garðarsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)

Tryggvi Hrafn tekur skotið rétt fyrir utan teiginn sem fer beint á Aron Birki. Aron á að grípa þetta auðveldlega en missir boltann og þar er Dagur Orri mættur. Hann er vel vakandi, stelur boltanum og klárar léttilega.

Valsmenn eru leiða hér strax í upphafi!
24. mín
Kristalskúla Njarðvíkur
Ég fékk kollega minn Stefán Martein, Njarðvíking og lífskúnstner, til að giska á rétt úrslit miðað við þessar fyrstu 20 mínútur og hann heldur að Þórsarar taki þetta 1-0 en kæmi honum ekki á óvart ef þetta dettur hinum meginn líka.

Valsararnir í fjölmiðlastúkunni segja 3-0 fyrir Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

20. mín
Dauðafæri!
Valsarar keyra upp völlinn og eru komnir 3 á tvo eftir að Þórsarar tapa boltanum í aukaspyrnu. Dagur Orri fær boltann á fjærsvæðinu og nær skotinu sem fer rétt framhjá.

Þarna hefðu heimamenn átt að gera mun betur!
18. mín
Þórsarar sækja áfram
Ágúst Eðvald keyrir upp völlinn og er kominn hægra meginn í vítateiginn þegar hann reynir einhverja skot-fyrirgjöf sem fer ofan á þverslána og aftur fyrir.

Þórsarar eru að sækja hedur betur í sig veðrið!
17. mín
Kristófer Kristjáns fær bolta í gegn og er kominn aleinn inn á teiginn. Hann reynir að koma boltanum fyrir en hann fer aftur fyrir og Valsmenn geta andað léttar.
14. mín
Valsmenn eru að vinna sig hægt og bítandi inn í leikinn og eru að ná að halda meira í boltann.
11. mín
Valsmenn fá hornspyrnu
Þórsarar gera vel og verjast þessu örugglega.
8. mín
Valsmenn fá hornspyrnu sem Þórsarar díla vel við og koma hættunni frá.
4. mín
Valsmenn sækja
Skoglund kemur með bolta inn á teiginn sem hrekkur af varnarmanni og beint í fæturnar á Lúkas Loga sem tekur skotið í fyrsta rétt framhjá.
2. mín
Ekki góð spyrna sem endar í höndunum á Frederik Schram.
1. mín
Þórsarar fá hornspyrnu
Frábær byrjun!
1. mín
Ágúst Eðvald kemur þessu í gang
Þá er veislan farin í gang.

Góða skemmtun kæru lesendur!
Fyrir leik
Veislan er að fara að byrja
Þá ganga liðin til vallar og það fer að styttast óðfluga í þetta!
Fyrir leik
Bíllaus lífstíll eða léleg mæting?
Ég viðurkenni það að ég varð fyrir smá vonbrigðum með það hvað það var auðvelt að finna bílastæði. Var að vonast eftir því að það væru aðeins fleiri mættir og erfiðara að finna bílastæði en vonandi fer fólkið að týnast inn.
Fyrir leik
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin í hús!
Valsmenn gera tvær breytingar á sínu lið frá bikarleiknum gegn KR á dögunum. Markus Nakkim og Adam Ægir Pálsson koma úr liðinu fyrir þá Ingimar Stöle og Albin Skoglund.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, gerir eina breytingu á sínu liði frá tapinu gegn FH í bikarnum. Hann Bjarni Guðjón Brynjólfsson dettur úr liðinu fyrir Einar Frey Halldórsson.

Fyrir leik
Hitað upp í útvarpsþættinum
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins er sjálfur Helgi Mikael Jónasson en honum til halds og trausts verða þeir Egill Guðvarður Guðlaugsson og Gylfi Már Sigurðsson. Twana Khalid Ahmed er fjórði dómari en Hjalti Þór Halldórsson er eftirlitsmaður KSÍ í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Spáin góða
Sjálfur Siggi Hall fékk það verkefni að spá í spilin fyrir opnunarumferð Bestu deildarinnar. Svona spáir hann leiknum okkar.

Valur 1 - 0 Þór (17:00 í dag)
Þessi leikur mun bera mikinn vor brag og verður ekki mikið fyrir augað, Valsarar munu knýja fram sigur í gegnum mark frá Tryggva Hrafni.

Fyrir leik
Stór stund fyrir Þórsara
Þórsarar mæta eflaust með kassann úti í leikinn þrátt fyrir að hafa tapað fyrir FH í bikarnum á dögunum, 4-2. Þeir verða að gera betur en í þeim leik til að ná einhverjum úrslitum hér í dag. Þórsarar hafa ekki spilað leik í efstu deild síðan 2011.

Þór byrjar á tveimur útileikjum gegn Val og KR áður en þeir fá Fram í heimsókn í þriðju umferð.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Fyrir leik
Pressa á Hlíðarenda
Valsmenn hafa verið mikið milli tannana á fólki í vetur og mikil pressa sem er komin á Hlíðarendafélagið. Í Lengjubikarnum enduðu þeir í þriðja sæti riðilsins með tvo sigra og tvö töp. Þeir duttu svo snemma út úr bikarnum þegar KR sló þá úr leik með 4-2 sigri í Egilshöllinni.

Valsmenn fá Þór og ÍBV í fyrstu tveimur leikjum deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sú lang Besta!
Veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik Vals og Þórs, einu rauðu lið deildarinnar, í þeirri lang Bestu!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.