Leik lokið!
92. mín
Elías Már eltir bolta fram og kemur honum á Valdimar Þór sem er í flottu færi og hann kemur honum aftur fyrir markið og boltinn endar á endanum hjá Danna Hafsteins sem klárar þetta fyrir Víkinga.
Víkingar klára þetta!
Daníel Hafsteinsson
Víkingar að klára þetta hérna!Elías Már eltir bolta fram og kemur honum á Valdimar Þór sem er í flottu færi og hann kemur honum aftur fyrir markið og boltinn endar á endanum hjá Danna Hafsteins sem klárar þetta fyrir Víkinga.
91. mín
Þrjár mínútur í uppbót
90. mín
Keflavík þjarma að marki Víkinga!
Aron Elís bjargar á línu og Aron Snær ver frábæran skalla frá Stefan Ljubicic.
Keflvíkignar nálægt því að jafna leikinn.
Keflvíkignar nálægt því að jafna leikinn.
87. mín
Færi!
Þorlákur Breki Baxter í hörku skotfæri en rétt framhjá markinu!
84. mín
InnBaldur Logi Brynjarsson
ÚtErnir Bjarnason
84. mín
InnHalid Alghoul
ÚtMarin Mudrazija
81. mín
Eiður Orri reynir skot yfir markið.
78. mín
Þeir hafa verið að taka stjórn á leiknum hægt og rólega og Danni Hafsteins á sendingu frá D-boganum inn á Valdimar Þór sem klárar framhjá Ásgeiri Orra í marki Keflavíkur.
Víkingar leiða!
Valdimar Þór Ingimundarson (stoðsending: Daníel Hafsteinsson)
Víkingar taka forystu aftur!Þeir hafa verið að taka stjórn á leiknum hægt og rólega og Danni Hafsteins á sendingu frá D-boganum inn á Valdimar Þór sem klárar framhjá Ásgeiri Orra í marki Keflavíkur.
76. mín
Víkingar búnir að ýta liðinu upp og eru hægt og rólega að taka stjórn.
73. mín
Óskar Borgþórs að komast í flotta stöðu og reynir sendingu fyrir markið en sendingin er ekki góð og Keflavík kemur boltanum burt.
71. mín
Alpha Conteh með alvöru sprett og vinnur horn sem hann tekur svo sjálfur en spyrnir boltanum í innkast.
70. mín
InnAlpha Conteh
ÚtMuhamed Alghoul
Frumraun.
69. mín
Helgi Guðjóns reynir sendingu fyrir markið en aðeins of innarlega og beint í fangið á Ásgeiri Orra.
65. mín
Keflvíkingar eru að komast í flottar stöðu en vantar bara örlítið uppá hvort það sé síðasta sendingin eða skot.
Þeir eru yfir í baráttunni eins og staðan er núna.
Þeir eru yfir í baráttunni eins og staðan er núna.
61. mín
Keflvíkingar vilja víti
Stefan Ljubicic fellur í baráttu í teignum við Gunnar Vatnhamar og vill fá vítaspyrnu. Stúkan Kef meginn er sammála Ljubicic en Helgi Mikael ekki.
Má sennilega færa rök fyrir því að Víkingar hafi sloppið þarna við fyrstu sýn en þetta leit út fyrir að vera 50/50.
Má sennilega færa rök fyrir því að Víkingar hafi sloppið þarna við fyrstu sýn en þetta leit út fyrir að vera 50/50.
58. mín
Víkingar búnir með allar sínar skiptingar og ekki klukkutími liðinn af leiknum.
Sölvi Geir greinilega ósáttur með gang mála hér í síðari.
Sölvi Geir greinilega ósáttur með gang mála hér í síðari.
58. mín
InnÓskar Borgþórsson
ÚtÁrmann Ingi Finnbogason
58. mín
InnDaníel Hafsteinsson
ÚtTarik Ibrahimagic
58. mín
InnHelgi Guðjónsson
ÚtKarl Friðleifur Gunnarsson
56. mín
Eiður Orri tekur boltann niður eftir horn og reynir að koma sér í skotfæri en skotið hátt yfir markið.
55. mín
Keflvíkingar eru líklegri til þess að skora þessa stundina. Eru að ógna marki Víkinga þó enn án þess að komast í alvöru færi.
52. mín
Gult spjald
Karl Friðleifur Gunnarsson
Karl Friðleifur fyrstur í svörtu bókina í kvöld.50. mín
Karl Friðleifur hleður upp í skot sem fer hátt yfir markið.
46. mín
Keflavík byrjar seinni af krafti og sækir hornspyrnu.
Kemur ekkert úr þeirri spyrnu og Víkingar koma boltanum frá.
Kemur ekkert úr þeirri spyrnu og Víkingar koma boltanum frá.
46. mín
InnAron Snær Friðriksson
ÚtIngvar Jónsson
Markmannsskipti í hálfleik hjá Víkingum.
Áhugavert..
Áhugavert..
45. mín
Í hálfleik skulum við kynna okkur leikskipulag og leikmenn Framsóknar hér í Reykjanesbæ en þar er efst á blaði Halldóra Fríða, oddviti listans, en hún lék á sínum tíma í vörn en spilar nú einungis léttleikandi Framsóknarbolta.
Þá er framkvæmdsstjóri Keflavíkur, Birgir Már Bragason, í fjórða sæti listans sem skilgreint hefur verið sem baráttusætið en Birgir ógnar með hraða sínum og krafti.
Rúsínan í pylsuendanum er svo Hrafnkell Freyr sem situr í 13.sæti listans en Keli er með einstakt auga fyrir góðu samspili.
- Auglýsing -

Hálfleikur
+3
Allt jafnt þegar liðin ganga til búningsklefa í hálfleik. Bæði lið skorað eftir horn.
Hefur verið ágætis skemmtun hér á HS Orku vellinum en gott má alltaf bæta og vonum við að það verði raunin í seinni hálfleik.

Myndavélin er á lofti hér á HS Orku vellinum

45. mín
Þremur mínútum bætt við
42. mín
Nacho Heras bjargar!
Frábær bolti á Valdimar Þór sem kemur með frábæran bolta fyrir markið ætlaðan Elíasi Már en Nacho Heras nær að henda sér á boltann og trufla það að hann komist til Elíasar.
37. mín
Eiður Orri að koma sér í flotta stöðu en skotið framhjá markinu.
36. mín
Elías Már í skotfæri en skotið yfir markið!
33. mín
Frábært horn sem er flikkað áfram og Marin Brigic sýndist mér það vera sem kemur honum yfir línuna!
ALLT JAFNT!

Keflavík jafnar!
Marin Brigic
Hornspyrnurnar að gefa!Frábært horn sem er flikkað áfram og Marin Brigic sýndist mér það vera sem kemur honum yfir línuna!
ALLT JAFNT!

32. mín
Færi!
Marin Mudrazija pressar sendingu til baka á Ingvar Jóns vel og vinnur boltann og kemur honum á Þorlák Breka Baxter sem á tilraun sem Víkingar koma í horn.
28. mín
Aron Elís fær boltann í höfuðið og liggur eftir.
Fær aðhlynningu og þarf að bíða utan vallar í amk mínútu.
Fær aðhlynningu og þarf að bíða utan vallar í amk mínútu.
24. mín
Keflvíkingar reyna að stíga ofar á völlinn.
20. mín
Hornspyrna frá vinstri teiknuð frábærlega á kollinn á Gunnari Vatnhamar á fjærstöng.

Víkingar leiða!
Gunnar Vatnhamar (stoðsending: Viktor Örlygur Andrason)
VÍKINGAR TAKA FORYSTU!Hornspyrna frá vinstri teiknuð frábærlega á kollinn á Gunnari Vatnhamar á fjærstöng.

16. mín
Víkingar leita svolítið að Ármanni Inga á hægri vængnum.
14. mín
Keflavík með hornspyrnu og Stefan Ljubicic á skalla sem leit vel út en fór framhjá.
11. mín
Ármann Ingi í flottri stöðu og reynir að koma boltanum fyrir markið en Keflvíkingar koma þessu í horn.
8. mín
InnPeter Oliver Ekroth
ÚtRóbert Orri Þorkelsson
Víkingar þurfa að gera breytingu.
7. mín
Róbert Orri liggur eftir þetta innkast og þarf aðhlynningu.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann geti haldið leik áfram.
Vonandi ekkert alvarlegt og hann geti haldið leik áfram.
6. mín
Keflavík með langt innkast sem skapar smá urlsa en Víkingar koma boltanum frá.
3. mín
Víkingar með aukaspyrnu fyrir markið og skallinn yfir markið.
Það er kraftur í Víkingum hér í upphafi.
Það er kraftur í Víkingum hér í upphafi.
1. mín
Elías Már með frábæran snúning og snýr af sér Marin Brigic og reynir að læða boltanum í hlaup fyrir Valdimar Þór sem á ekki gott skot og fer langt framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir í Víking sem byrja með boltann. Viktor Örlygur sparkar okkur af stað.
Fyrir leik
Liðin ganga út á völl
Það þarf fólk eins og þig með Rúnna Júl ómar í kerfinu á meðan liðin ganga út.
Keflvíkingar eru í hefðbundna bláa búning sínum og Víkingar eru hvítir í rauðum stuttbuxum.
Það styttist í upphafsflaut.
Keflvíkingar eru í hefðbundna bláa búning sínum og Víkingar eru hvítir í rauðum stuttbuxum.
Það styttist í upphafsflaut.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár og má sjá hér til hliðar
Keflavík gerir þrjár breytingar á sínu liði frá 1-2 sigrinum gegn KA í síðustu umferð. Inn koma Nacho Heras, Marin Mudrazija og Ernir Bjarnason fyrir Davíð Helga Aronsson, Sindra Snær Magnússon og Dag Inga Valsson.
Víkingar gera einnig þrjár breytingar á sínu liði frá 4-0 sigri sínum gegn ÍA. Inn koma Viktor Örlygur Andrason, Aron Elís Þrándarson og Davíð Örn Atlason.

Víkingar gera einnig þrjár breytingar á sínu liði frá 4-0 sigri sínum gegn ÍA. Inn koma Viktor Örlygur Andrason, Aron Elís Þrándarson og Davíð Örn Atlason.

Fyrir leik
Innkastið verður í beinni útsendingu á X977 í kvöld sunnudag klukkan 21:00 en þar verða leikir fimmtu umferðar Bestu deildarinnar gerðir upp.
Þetta verður í fyrsta sinn sem hlaðvarpsþátturinn Innkastið verður sendur út í beinni útsendingu Stefnan er sú að þátturinn verði framvegis af og til í beinni útvarpsútsendingu á X-inu, þegar vel liggur á. Það verður þá auglýst sérstaklega hér á síðunni.
Í hljóðveri verða Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Sérstakur gestur er Almarr Ormarsson.
Innkastið verður í beinni á X977 í kvöld klukkan 21

Innkastið verður í beinni útsendingu á X977 í kvöld sunnudag klukkan 21:00 en þar verða leikir fimmtu umferðar Bestu deildarinnar gerðir upp.
Þetta verður í fyrsta sinn sem hlaðvarpsþátturinn Innkastið verður sendur út í beinni útsendingu Stefnan er sú að þátturinn verði framvegis af og til í beinni útvarpsútsendingu á X-inu, þegar vel liggur á. Það verður þá auglýst sérstaklega hér á síðunni.
Í hljóðveri verða Elvar Geir Magnússon og Valur Gunnarsson. Sérstakur gestur er Almarr Ormarsson.
Fyrir leik
Innbyrðis viðreignir
Samkvæmt vef KSÍ þá hafa þessi lið mæst 66 sinnum í mótsleik á vegum KSÍ.
Það er nokkuð jafnt með liðunum í innbyrðis viðureignum í þessi 66 skipti.
Keflavík hefur 28 sinnum hrósað sigri.
Víkingar hafa 27 sinnum hrósað sigri.
Liðin hafa 11 sinnum skilið jöfn.
Síðast mættust liðin í Bestu deild karla 2023.
Víkingur 4-1 Keflavík
Keflavík 3-3 Víkingur

Spámaðurinn spáir sínu fyrrum félagi öruggum sigri
Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.

Keflavík 0 - 3 Víkingur R.
Mínir menn taka þetta sannfærandi. Sölvi er ekki að fara tapa svona leik. Nokkuð gefið að Valdi skori allavegana eitt, en ef Sveinn Gísli væri ekki frá vegna meiðsla þá yrði sigurinn stærri það er 100%.

Dómarateymið
Helgi Mikael Jónasson fær það verkefni að munda flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Patrik Freyr Guðmundsson og Þórður Arnar Árnason.
Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Fyrir leik
Keflavík komið skemmtilega á óvart í upphafi móts
Það voru ekki margir sem bjuggust við miklu frá Keflavík í upphafi móts og var nýliðunum af mörgum spekingum ekki spáð mikilli stigasöfnun í upphafi móts.
Keflavík hefur hins vegar verið að spila flottan fótbolta og komið skemmtilega á óvart. Eftir að hafa tapað fyrstu tveim leikjum sínum í deildinni gegn KR og Fram hafa þeir sótt stig gegn Breiðablik og nú síðast sigur á Akureyri gegn sprækum KA mönnum.

Það má alveg færa rök fyrir því að í liði Keflvíkinga sé einn heitasti framherji deildarinnar í dag, Stefan Alexander Ljubicic en hann hefur farið vel af stað og skorað þrjú mörk það sem af er móti. Hann hefur látið vel fyrir sér finna í vítateig andstæðingana og varnarmenn eiga í stökustu vandræðum með hann í boxinu.

Þorlákur Breki Baxter hefur einnig komið virkilega vel inn í lið Keflavíkur og styrkt miðsvæði nýliðana vel. Virkilega skemmtilegt að fylgjast með þessum leikmanni í búningi Keflavíkur en hann átti einnig frábært tímabil fyrir ÍBV á síðasta tímabili. Hann er álitinn ein af kaupum tímabilsins.

Víkingsvélin byrjuð að malla
Víkingar sitja í 2.sæti deildarinnar fyrir fimmtu umferð Bestu deild karla. Eftir að hafa gert jafntefli við Breiðablik í opnunarleiknum þá hafa þeir unnið síðustu þrjá leiki í röð gegn KA, FH og nú síðast ÍA.

Elías Már Ómarsson hefur farið vel af stað með Víkingum í vor en hann er markahæstur í deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni í KR með 5 mörk eftir fjórar umferðir.
Elías Már Ómarsson er auðvitað uppalinn Keflvíkingur og er því að mæta uppeldisfélaginu í fyrsta sinn í kvöld.

Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá HS Orku vellinum í Keflavík þar sem heimamenn og nýliðar Keflavíkur taka á móti Íslandsmeisturum Víkinga.

Viðtöl og skýrsla væntanleg.