SKÝRSLAN: Kennie og Fred taka yfir Hafnarfjörðinn
Hvað réði úrslitum?
Framarar voru bara betri allan leikinn og þrátt fyrir að vera 3-1 undir þá hættu þeir ekki og jafnvel þegar þeir voru 3-4 yfir þá vildu þeir meira. Kannski er þetta reynsluleysi hjá FH, kannski ekki en það er erfitt að sjá hvern FH getur unnið á þessu tímabili með svona frammistöðu.
Bestu leikmenn
1. Fred Saraiva
Ótrúlegur leikur í dag, var hættulegur í fyrri hálfleik hjá Fram liðinu og líka í seinni. Þessar þrjár stoðsendingar sem hann eldaði upp í dag voru líka mjög góðar og á hárréttum stað. Góð orka og hætti alls ekki.
2. Kennie Chopart
Captain, leader, legend. Alvöru frammistaða í dag, sérstaklega í seinni hálfleik. Mörkin þrjú sem þeir fá á sig í dag voru ekki Kennie að kenna en hvernig hann tók mörkin sín tvö í dag var mjög flott.
Atvikið
Atvikið var kannski hálfleiks flautið. Horfandi á FH þá var þetta eins og að horfa á tvö lið spila gegn Fram. Fyrri hálfleikurinn var góður en FH liðið í seinna mætti ekki til leiks.
Hvað þýða úrslitin?
FH eru enn með eitt stig og sitja í fall sæti með ÍBV, næst er það Breiðablik úti sem er ekkert léttari andstæðingur. Framarar eru í fjórða sæti og fá Val í heimsókn í næsta leik.
Vondur dagur
Öll varnarlína FH var slök í dag og mörkin sem þeir fá á sig voru kannski of létt og var alveg hægt að komast fram hjá þeim. En allt lið FH var slakt í seinni hálfleik, varamennirnir gerðu ekki neitt þegar að þeir komu inn á.
Dómarinn - 7
Hélt línu allan leikinn og dæmdi bara þegar brotin voru mjög harkaleg annars leyfði hann bara leiknum að fljóta og gerði vel.




