Fotbolti.net
@fotboltinetEyrún Ingadóttir
KR
KR
Lengjudeild kvenna
Meistaravellir
Sól,blíða og 7 gráður
4 - 3
Selfoss
Selfoss
0 - 118' Stevie Madonna ReynoldsRagnheiður Ríkharðsdóttir 49'1 - 1Makayla Soll 54'2 - 1Rakel Grétarsdóttir 64'3 - 1Makayla Soll 76'4 - 14 - 283' Björgey Njála Andreudóttir4 - 386' Stevie Madonna Reynolds
Dómari: Milan Djurovic

SKÝRSLAN: KR sigur í fyrsta leik og markaveisla í seinni

Hvað réði úrslitum?

Hvernig KR kom inn í seinni hálfleik og keyrðu á þetta og skorðu 4 mörk á stuttum tíma sem gerði þetta svolítið eriftt fyrir Selfoss sem var þá komið 3 mörkum undir eftir að hafa verið yfir í hálfleik. en vel gert hjá þeim að hafa skorað þessi tvö mörk í lokin þrátt fyrir að þær fengu ekki neitt úr leiknum.

Bestu leikmenn

1. Kara Guðmundsdóttir

Var mjög góð og fljót. Valin maður leiksins á vellinum.

2. Makayla Soll

Með tvö mörk og stóð sig vel frammi. Björgey Njála gæti líka verið hér með gott mark og stoðsendingu í fyrsta markinu

Atvikið

Engin stór atvik en þessi tvö Selfossmörk á 83.og 86. mínútu, gerðu þetta mjög spennandi í lokin

Hvað þýða úrslitin?

Einfalt. KR er komið með 3 stig og Selfoss er með 0 stig eftir þessa fyrstu umferð Lengjudeildar kvenna.

Vondur dagur

Engin ein átti vondan dag þannig séð en Selfossliðið átti vondar mínútur þegar þær fengu á sig 4 mörk eftir að hafa verið yfir 1-0 í hálfleik

Dómarinn - 6

Ágætis dómgæsla í leiknum, engin stór atriði
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.