SKÝRSLAN: Blikar fljúga heim með þrjú stig
Hvað réði úrslitum?
Meiri sóknarþungi hjá Blikum. ÍBV byrjaði leikinn vel og skoruðu mark eftir 14 sekúndur og var þar að verki Liam Daði Jeffs með sitt fyrsta mark í efstu deild. Blikarnir voru meira með boltann og sköpuðu sér fleiri færi. ÍBV voru þó mun betri í þessum leik en þeir hafa verið í síðustu leikjum. Blikarnir unnu sanngjarnan 1-2 sigur.
Bestu leikmenn
1. Kristófer Ingi Kristinsson
Skoraði eitt mark og lagði upp annað. Var hættulegasti maður leiksins. Mjög ógnandi og varnarlína ÍBV var í vandræðum með hann.
2. Óli Valur Ómarsson
Var eins og Kristófer ógnandi í sóknarleik Blika. Fór mikið upp kantinn og skapaði mikinn usla og færi fyrir liðsfélaga. Róbert Elís var besti leikmaður ÍBV í leiknum.
Atvikið
Fyrsta mark ÍBV kemur eftir 14 sekúndur eftir skelfileg mistök Antons Ara markvarðar Breiðablik. Var of lengi að hreinsa frá marki og Eyjamenn gengu á lagið. Ágætt að taka fram að Anton Ari var svo bara mjög solid restina af leiknum og kom þetta ekki að sök í lokin.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru komnir með 11 stig og eru í þriðja sæti eins og er. ÍBV vermir enn botnsætið með eitt stig út fimm leikjum.
Vondur dagur
Milan Tomic var ólíkur sjálfum sér í dag. Með mikið af feilsendingum og var að lokum tekinn út af í hálfleik. Þess ber þó að geta að hann varð fyrir höggi í upphafi leiks og hafði það sjálfsagt mikil áhrif á leik hans og hann sjálfur um skiptinguna.
Dómarinn - 8
Flottur leikur hjá ÞÞÞ og engin vafaatriði sem ég man eftir. Blikar vildu þó fá vítaspyrnu í seinni hálfleik en ég tel að ÞÞÞ hafi tekið rétta ákvörðun með að dæma ekki víti.



