SKÝRSLAN: Að hafa engan í vörn er ekki líklegt til árangurs
Hvað réði úrslitum?
Skagamenn voru betra liðið í leiknum en það sem reyndist leikbreytirinn var á 87. mínútu þegar Viktor skorar og það er ekki ein blá treyja að verjast.
Bestu leikmenn
1. Haukur Andri Haraldsson (ÍA)
Orkumikill á miðjunni og kom með tvær stoðsendingar í leiknum. Mjög skapandi í þessum leik.
2. Markús Páll Ellertsson (ÍA)
Skorar fyrsta markið og er stöðug ógn fram á við, hefði með heppni getað skorað annað.
Atvikið
Haukur Andri er í eigin vítateig og sendir langan bolta fram á Viktor. Allir Stjörnumenn ákváðu að sleppa því að verjast og því var hann kominn einn gegn markmanni á miðlínu. Árni Snær ákveður að vaða lengst út í hann, en Viktor fer mjög auðveldlega fram hjá honum. Þá þurfti hann bara að labba með boltann í autt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Skagamenn ná í sinn fyrsta sigur og eru þá komnir með fjögur stig. Stjörnumenn hafa núna tapað þremur leikjum í röð og eru í heildina með sex stig.
Vondur dagur
Úthlaupið hjá Árna Snæ var alveg galið í markinu hans Viktors, en maður verður að kenna varnarleik liðsins meira um þar. Svo var þetta vondur dagur fyrir Heiðar Ægisson sem kom inn á eftir 68 mínútna leik og var farinn af velli tíu mínutum síðar.
Dómarinn - 8
Gunnar Oddur og hans teymi með góð tök á þessum leik. Svo sem engin risa atvik hins vegar fyrir þá að þurfa takast á við.




