Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Keflavík
Keflavík
Besta karla
HS Orku völlurinn
Sól og næstum því blíða
1 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 120' Gunnar VatnhamarMarin Brigic 33'1 - 11 - 278' Valdimar Þór Ingimundarson1 - 392' Daníel Hafsteinsson
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Víkingur þurfti að hafa fyrir sigrinum í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Gæði Víkinga undir lok leiks klára þetta. Keflavík hefði vel átt skilið eitthvað meira úr þessum leik en vantaði örlítið upp á hjá heimamönnum í kvöld. Þeir voru betri á löngum köflum í þessum leik en Víkingar kunna að sækja úrslit í leikjum þar sem þeir eru ekki endilega að hitta á sinn besta dag.

Bestu leikmenn

1. Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.)

Kemur inn á 58. mínútu leiksins og breytir leik Víkinga. Leggur upp annað markið og skorar svo þriðja til að klára þennan leik.

2. Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)

Skoraði fyrsta mark leiksins og stóð svo í stöngu aftast á vellinum þegar Keflvíkingar voru að þrýsta Víkingum aftarlega og reyna ógna.

Atvikið

Markið frá Daníel Hafsteins í uppbótartíma endanlega klárar þennan leik fyrir Víkinga. Elías Már gerði þá vel að vinna boltann með tvo í sér og skapa þetta færi sem á endanum varð mark.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar halda pressu á KR við topp deildarinnar og sitja í öðru sætinu með 13 stig. Keflavík er í níunda sætinu með 4 stig.

Vondur dagur

Róbert Orri fer meiddur útaf eftir 8. mínútur og við óskum honum að sjálfsögðu góðs bata. Baráttuleikur á grasvelli í Keflavík og enginn sem að mínu mati var áberandi verri en einhver annar.

Dómarinn - 7

Mér fannst þetta bara þokkalega vel dæmt hjá Helga Mikael og hans teymi í kvöld. Keflavík vildi fá tvær vítaspyrnur í dag og ég skil svo sem þeirra gremju þar. Fannst þeir mögulega hafa eitthvað til síns máls þegar Stefan Ljubicic er rifinn niður í teignum en það var að mínu mati og sennilega Helga Mikaels líka 50/50 barátta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.