Roma gæti selt Malen aftur til Englands - Man Utd skoðar Danilo - Villa og Newcastle berjast um markmenn - Leeds vill 10 milljónir
Í BEINNI
Lengjudeild kvenna
KR
14:00 0
0
Selfoss
Stjarnan
0
0
ÍA
03.05.2026  -  16:00
Samsungvöllurinn
Besta karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Gísli Gotti spáir
Gísli Gottskálk Þórðarson, efnilegasti leikmaður Bestu deildarinnar árið 2024, spáir í leikina sem eru framundan í deild þeirra bestu. Hann leikur í dag með Lech Poznan í Póllandi.

Stjarnan 2 - 1 ÍA
Þetta verður fínasti leikur. Biddi heldur áfram að delivera og kemur að báðum mörkunum og Stjarnan tekur 3 stig.


Mynd: Lech Poznan

Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Dómarar
Gunnar Oddur Hafliðason er með flautuna á Samsung í kvöld. Hitaði vel upp sem fjórði dómari í leik Þórs og KA í gær og er klár í slaginn.

Honum til aðstoðar eru Kristján Már Ólafs og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Hreinn Magnússon er fjórði dómari og eftirlitsmaður KSÍ er svo Kristinn Jakobsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Stjarnan
Það eru mörk í leikjum Stjörnunar það er klárt. Jökull Elísabetarson myndi samt eflaust þiggja að meirihluti þeirra væri skoraður af hans liði.

Eftir 2 góða 3-2 sigra í byrjun móts hefur hallað undan fæti hjá Garðbæingum. 3-2 tapi gegn Víkingum á útivelli var fylgt eftir með 4-2 tapi gegn Val á heimavelli og markatala Stjörnunar 10-11. Ekki beint vísbending um traustan og öruggan varnarleik þó sóknarlega hafi vissulega gengið betur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
ÍA
Skagamenn hefðu eflaust viljað meira af stigum eftir fjóra leiki en raunin er. 2 stig er uppskeran eftir jafntefli við Fram og KA og töp gegn Breiðablik og Víkingum.

Stóru nöfnin sem fengin voru til liðsins í vetur hafa ekki verið að sýna sitt rétta andlit og vonast Skagamenn eftir því að það breytist fljótt.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Heimaleikjum víxlað og mikið að gera í Garðabæ
Leikurinn átti upphaflega að fara fram á Elkemvellinum á Akranesi. Grasið þar er þó ekki alveg tilbúið og var því brugðið á það ráð að liðin skiptu á heimaleikjum.

Annað vandamál tók þá við en körfuboltalið Stjörnunar á einnig heimaleik í dag. Leiktíminn varð því fyrir valinu. Það verður allavega eitthvað að gera fyrir aðdáendur Stjörnunar í dag.


Sverrir Örn Einarsson
Fyrir leik
Samsungvöllurinn heilsar
Fótbolti.net er mættur á Samsungvöllinn í Garðabæ þar sem fram fer leikur Stjörnunar og ÍA í 5.umferð Bestu deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: