Leik lokið!
Svona fór um sjóferð þá! Víkingar með 6-0 stórsigur á Þór í kvöld!
Takk fyrir samfylgdina,
Viðtöl og skýrsla kemur inn síðar í kvöld!
92. mín
Þórsarar fá hér hornspyrnu Fannar tekur hana en Helgi skallar þetta frá
90. mín
A.m.k. 2 mínútum bætt við
88. mín
Fínast tilraun hjá Bjarna reynir skot af löngu færi en það er rétt framhjá
86. mín
Helgi tekur hronspyrnu fyrir Víkinga, Þórsarar ná að skalla þetta frá
83. mín
Sigfús brýtur á Viktori, taka þetta hratt
82. mín
Erlingur reynir að finna Aron Elís en aðeins of fastur bolti og rennur út fyrir endalínu
81. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtYann Emmanuel Affi
79. mín
InnSigfús Fannar Gunnarsson
ÚtSebastian Heimvik Haugland
79. mín
Ármann með fínan bolta inn á teiginn þar er Elías sem mér sýndist ætla að reyna við hjólhestaspyrnu? Allavega eru báðir fætur komnir fyrir ofan höfuð bara og hann endar á bakinu
78. mín
Ingimar kemur sér í góða stöðu en flaggið góða fer réttilega á loft
75. mín
Gult spjald
Elvar Baldvinsson
75. mín
Daníel tekur aukaspyrnu á fínum stað en Ingimar stekkur manna hæst í teignum og kemur þessu frá
74. mín
InnTarik Ibrahimagic
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
74. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtGunnar Vatnhamar
74. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtÓskar Borgþórsson
72. mín
MAAAARK!
Elías Már Ómarsson
Vitiði ég bara skil ekki þennan varnarleik! Þeir voru svona 5 á 3 og gefa þetta 6 mark Elías Már er væntanlega bara hæst ánægður að bæta við mörkum og ná smá forskoti á hann Aron Sig hjá KR69. mín
Sebastian fær aðhlynningu lendir í hörkusamstuði, bíður eftur að komast aftur inn á
66. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtAtli Sigurjónsson
66. mín
InnElvar Baldvinsson
ÚtÁsbjörn Líndal Arnarsson
66. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtAron Ingi Magnússon
64. mín
Það er greinilegt að Þórsarar sakna Atanga, það er lítið að gerast í sóknarleiknum hjá þeim. Sebastian er bara ekki nógu fljótur til að komast framhjá Oliver
62. mín
InnÁrmann Ingi Finnbogason
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
61. mín
MAAAARK!
Óskar Borgþórsson (stoðsending: Aron Elís Þrándarson)
Það hlaut að koma að því! Búið að liggja í loftinu Aron Elís sendir boltann á Óskar bara svona ca á miðjum vallarhelmingi Þórs en hann er bara svo snöggur að hann er mættur strax í dauðafæri! Leggur boltann svo snyrtilega í fjærhornið61. mín
Óskar Bogga með hööööörkuskot en rétt framhjá
59. mín
Aron Elís finnur Karl Friðleif inn í teig sem á hörkuskot en framhjá
57. mín
Helgi Guðjóns tekur aukaspyrnuna en þar var enginn Víkingur
57. mín
Atli og Aron Ingi taka hornið stutt en það er bara ekki nógu vel útfært og Víkingar breika á þá
54. mín
Kristófer nær að komast inn í boltann, tekur hann með sér en Þórsarar eru eiginlega bara alltof lengi að átta sig og skyndisóknin sem þeir hefðu getað nælt sér í rennur út í sandinn
50. mín
MAAAARK!
Karl Friðleifur Gunnarsson (stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson)
Svona miðað við fagnaðarleysið hjá Víking og endursýningu þá er mjög líklegt að þetta sé bara hreinlega sjálfsmark hjá Aroni Birki en Karl Friðleifur er klárlega í boltanum þannig hann fær þetta allavega! Frábær spyrna hjá Gylfa að vana49. mín
Jói Bjarna reynir skotið en fer af varnarmanni og framhjá
49. mín
Kristófer keyrir upp völlinn, ætlar að taka Oliver á en allt lok, lok, og læs þar!
48. mín
Ragnar Óli reynir sendingu upp á Ágúst en Daníel sterkur og stígur hann út við endalínuna
46. mín
Þetta er hafið á ný!
Gestirnir sparka þessu af stað
46. mín
InnAron Elís Þrándarson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
45. mín
Stemmingsmyndir úr Víkinni







45. mín
3-0 í hálfleik hér í Víkinni!
Víkingar hafa yfirburði á vellinum 63% með boltann og átt 19 skot gegn 6 skotum hjá Þórsurum
45. mín
Gylfi tekur spyrnu á svipuðum stað hinum megin en Yann Emmanuel kemst fyrstur í boltann þar og kemur honum frá
45. mín
Atli Sigurjóns tekur þetta, eiginlega bara frekar slök spyrna og bara heppilegt að þetta fer í pakkann hjá Víking og skýst til baka á Ágúst sem reynir skotið en í varnarmann
45. mín
Valdimar brýtur á sebastian, aukaspyrna á fínasta stað!
43. mín
Heyyyyyyrðuuuu!
Daníel með lúmst skot sem endar bara sem hörkuskot...
39. mín
Oliver brýtur á Sebastian á vallarhelmingi Þórs, þeir taka þetta stutt
39. mín
Óskar með ágætis tilraun en Aron Birkir ver vel
36. mín
Oliver Ekroth þarf að fara á velli í eina mínútu þar sem leikurinn er stoppaður fyrir hann
Það er þessi nýja regla sem var innleidd fyrir tímabil
35. mín
Það hefur lítið verið að gerast eftir mörkin, helst bara að brotunum hafa farið fjölgandi... og meira stopp í leiknum
28. mín
MAAAARK!
Óskar Borgþórsson (stoðsending: Valdimar Þór Ingimundarson)
Ég bara skil ekki hvaða varnarleik Þór er að reyna að spila?? Óskar Bogga má þó eiga það að hann er að taka fínustu hlaup og rugla í varnarmönnunum Hann fær bara bolta í gegn og klárar þetta framhjá Aroni Birki í netið25. mín
MAAAARK!
Elías Már Ómarsson
Þetta er ótrúlega vel gert hjá Óskari, hann laumar sér á bak við Atla sem bara hreinlega gleymir honum, hann er þá bara komin aleinn í gegn keyrir upp og finnur svo Elías sem klárar þetta auðveldlega Elías er þá sem stendur markahæsti maður deildarinnar með 6 mörk!23. mín
Jói Bjarna nær hörkuskalla en smellur í slánni!
22. mín
Aftur eru Þórsarar að ógna Ágúst Hlyns hefur verið að koma sterkur inn
21. mín
Þórsarar ekki sáttir
vilja fá aukaspyrnu á hættulegum stað en markspyrna segir Jóhann dómari
19. mín
ÚFFFF
Atli Sigurjóns á frábæra sendingu inn á Christian Greko sem er allt í einu kominn einn gegn Aroni Snæ en sá nær að komast fyrir boltann, það má ekki vanmeta Þórsarana
14. mín
Valdimar með skot á markið en aftur ver Aron, þetta var fínast tilraun! Ekkert kemur svo úr horninu
13. mín
Yann Emmanuel á fínustu sendingu upp á Sebastian, þetta hefði getað orðið hættulegt en Víkingar ná að koma í veg fyrir það
10. mín
MAAAARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (stoðsending: Óskar Borgþórsson)
Óskar Bogga á frábæran bolta inn á teiginn, Elías lætur hann fara og Valdimar potar þessu inn. Þeir eru svo góðir í þessu Víkingarnir8. mín
ÚFFFF
Valdimar nálægt því að setja hann
7. mín
Brotið á Jóhannesi, þeir taka þetta stutt
6. mín
Gylfi!
Gylfi með höööööörkuskot en Aron Birkir gerir vel í markinu
Hann er greinilega glaður með að vera kominn aftur
5. mín
Jóhannes Kristinn Bjarnason, sem kom til Víkings fyrir tímabilið, er að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir liðið í Bestu deildinni.
„Jói er búinn að gera vel í æfingavikunni og er verðlaunaður með byrjunarliðssæti. Ég hlakka til að sjá hann í fyrsta byrjunarliðsleiknum og er spenntur að sjá frammistöðuna hjá liðinu í dag," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Sýn Sport fyrir leikinn.
Fyrsti byrjunarliðsleikur Jóa Bjarna

08.05.2026 17:33
Jói verðlaunaður með byrjunarliðssæti
4. mín
Oliver á sendingu inn á Jóhannes, sem reynir fyrirgjöf en setur þetta í varnarmann
2. mín
Fínasta sókn hjá Þórsurum, Ágúst nær skotinu en það er framhjá
1. mín
Gylfi hefur leik fyrir heimamenn
0. mín
Veislan fer að hefjast!
Liðin ganga hér á völlinn þetta fer að byrja
Bæði lið búin að pósa fyrir myndavélina, let's go!
0. mín
Kristalkúlan hefur talað
Sólin skín, það verður frábært veður og góð mæting í fossvoginn í dag, - 2(Víkingur vinni með meir en 2 mörkum) á Víking á Epic er mjög vel boðið, Yann Emmanuel Affi er flottur leikmaður en hann er einnig mjög villtur og 3.50 að hann fái gult er gott aukabet með.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) May 8, 2026
0. mín
Byrjunarlið kvöldsins
Víkingur gerir hvorki meira né minna en sjö breytingar á liði sínu frá 1-3 sigri sínum á nýliðum Keflavíkur. Inn koma Aron Snær Friðriksson, Oliver Ekroth, Helgi Guðjónsson, Gylfi Sigurðsson, Daníel Hafsteinsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason og Óskar Borgþórsson. Ingvar Jónsson er ekki með í dag og Jói Bjarna byrjar sinn fyrsta leik.
Þórsarar gera tvær breytingar á sínu liði frá 0-1 tapi gegn KA í síðustu umferð. Inn koma Ásbjörn Líndal Arnarsson og Aron Ingi Magnússon

0. mín
Vetrarglugginn í Bestu
Í gær lokaði glugganum í Lengjudeildinni og viku áður lokaði glugginn í Bestu deildinni. Hér að neðan má sjá þær breytingar sem áttu sér stað hjá liðunum frá því að sumarglugganum í fyrra var lokað.
Víkingur
Komnir
Elías Már Ómarsson frá Kína
Jóhannes Kristinn Bjarnason frá Danmörku
Aron Snær Friðriksson frá Njarðvík
Ármann Ingi Finnbogason frá ÍA (var á láni hjá Grindavík)
Björgvin Brimi Andrésson frá Gróttu (lánaður til baka)
Farnir
Matthías Vilhjálmsson hættur
Pablo Punyed í Hauka
Pálmi Rafn Arinbjörnsson hættur
Atli Þór Jónasson í Fram (lán)
Sveinn Margeir Hauksson í KA (lán)
Haraldur Ágúst Brynjarsson til Njarðvíkur (lán)
Almo til Danmerkur (var á láni hjá Njarðvík)
Þór
Komnir
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Vestra
Atli Sigurjónsson frá KR
Isaac Antanga frá Svíþjóð
Sebastian Haugland frá Noregi
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá FH á láni
Kristófer Máni Sigurðsson frá Hetti (lánaður til baka)
Elvar Baldvinsson frá Völsungi
Birgir Ómar Hlynsson frá ÍBV (var á láni)
Farnir
Ibrahima Balde í Vestra
Orri Sigurjónsson hættur (skipti í Þrótt R.)
Clement Bayiha til Kanada
Rafael Victor í Grindavík
Juan Guardia í Völsung
Ýmir Már Geirsson á láni í Magna
Atli Þór Sindrason á láni í Dalvík/Reyni
Dagbjartur Búi Davíðsson í Völsung (var á láni frá KA)
Víðir Jökull Valdimarsson á láni í Magna
Samningslausir
Kári Jónsson
Rúnar Daði Vatnsdal Sveinsson


0. mín
Júlíus Mar spáir í 6. umferðina
Júlíus Mar Júlíusson, leikmaður Kristiansund í Noregi, spáir í leikina sem framundan eru.
Víkingur R. 2 - 0 Þór (17:30 í dag)
Erfiður leikur fyrir Þórsara sem hafa byrjað vel. Víkingar loka þessum leik og Jói Bjarna setur eitt.

0. mín
Þór
Þórsarar sitja í 7. sæti fyrir 6. umferðina, með 6 stig, líkt og Stjarnan í 6. sæti, en hafa verri markatölu.
Þeir hafa unnið tvo leiki, Val á hlíðarenda og svo Fram á heimavelli.
Stór töp gegn KR og Breiðablik hafa komið á milli sigurleikja og þá töpuðu þeir slagnum um Akureyri 0-1 gegn erkifjendum sínum í KA í síðustu umferð.
Hjá Þórsurum er það helst að frétta að Isaac Atanga, kantmaður liðsins er búinn í aðgerð og því miður fyrir hann og Þór þá spilar hann væntanlega ekki meira í ár. Hann varð fyrir því óláni að meiðast strax á fyrstu mínútu gegn KA en sköflungur hans fór þá í tvennt.
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, er þó brattur fyrir leikinn í kvöld.
„Við þurfum að fara brattir inn í þann leik eftir síðustu tvo leiki, þó að þeir hafi tapast. Við höfum rætt það okkar á milli að síðustu tveir leikir hafa verið lengstu kaflarnir okkar í sumar þar sem við höfum verið góðir. Við förum jákvæðir inn í leikinn, höfum þorað miklu meiru í síðustu tveimur leikjum sem er svakalega mikilvægt."

0. mín
Víkingur
Víkingar sitja í 2. sæti fyrir 6. umferðina, með 13 stig, tveimur stigum minna en KR sem tróna á toppnum og tveimur stigum á undan Blikum í 3. sætinu.
Þeir gerðu jafntefli við Breiðablik í opnunarleiknum en síðan þá hafa þeir verið á góðri siglingu og unnið síðustu 4 leiki gegn KA, FH, ÍA og nú síðast 1-3 gegn Keflavík.
Víkingur er og var í alls konar meiðslaveseni í síðasta leik. Róbert Orri Þorkelsson fór meiddur af velli snemma leiks gegn Keflavík en hann var að glíma við meiðsli í nára.
Fyrirliðinn Oliver Ekroth kom inn á fyrir Róbert en Oliver hafði misst af síðustu leikjum vegna meiðsla.
Miðvörðurinn Sveinn Gísli Þorkelsson er svo líka frá vegna meiðsla eftir að hafa tognað á æfingu.
Þá fór markvörðurinn Ingvar Jónsson af velli í hálfleik þar sem hann gat ekki haldið leik áfram vegna veikinda.

0. mín
6. umferðin
Fimm leikir í Bestu deildinni eru á dagskrá í kvöld en umferðin endar svo á sunnudaginn.
Í kvöld:
17:30 Víkingur R.-Þór
19:15 Fram-Valur
19:15 Breiðablik-FH
19:15 ÍA-Keflavík
19:15 Stjarnan-KR
Sunnudagurinn 10. maí:
16:30 KA - ÍBV

0. mín
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Jóhann Ingi Jónsson og honum til halds og trausts verða Gylfi Már Sigurðsson og Jovan Subic aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og eftirlitsmaður í kvöld er Kristinn Jakobsson

0. mín
Velkomin í hamingjuna!
Heil og sæl kæru lesendur,
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Víkingsvelli þar sem Víkingur tekur á móti Þór í 6. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 17:30!







