Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
   fös 08. maí 2026 17:33
Elvar Geir Magnússon
Jói verðlaunaður með byrjunarliðssæti
Jóhannes Kristinn Bjarnason.
Jóhannes Kristinn Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nú er nýhafinn leikur Víkings og Þórs í 6. umferð Bestu deildarinnar.

Jóhannes Kristinn Bjarnason, sem kom til Víkings fyrir tímabilið, er að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir liðið í Bestu deildinni.

„Jói er búinn að gera vel í æfingavikunni og er verðlaunaður með byrjunarliðssæti. Ég hlakka til að sjá hann í fyrsta byrjunarliðsleiknum og er spenntur að sjá frammistöðuna hjá liðinu í dag," sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, við Sýn Sport fyrir leikinn.

Markvörðurinn Ingvar Jónsson og varnarmaðurinn Róbert Orri Þorkelsson eru meiddir og því ekki með Víkingi í dag. Gylfi Þór Sigurðsson kemur hinsvegar aftur inn eftir meiðsli.

Í viðtalinu við Sýn Sport sagði Sölvi að leikurinn í kvöld gæti orðið þolinmæðisverk fyrir sitt lið enda munu Þórsarar væntanlega liggja til baka.

Smelltu hér til að fara í textalýsingu frá leiknum

Besta karla
17:30 Víkingur - Þór (Heimavöllur hamingjunnar)
19:15 Fram-Valur (Lambhagavöllurinn)
19:15 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
19:15 ÍA-Keflavík (ELKEM völlurinn)
19:15 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 9 8 1 0 29 - 5 +24 25
2.    KR 9 7 1 1 33 - 20 +13 22
3.    Fram 8 5 2 1 21 - 13 +8 17
4.    Breiðablik 8 4 3 1 19 - 11 +8 15
5.    Valur 9 5 0 4 18 - 17 +1 15
6.    Keflavík 8 3 2 3 11 - 12 -1 11
7.    KA 8 3 1 4 9 - 10 -1 10
8.    ÍA 8 2 3 3 11 - 16 -5 9
9.    Stjarnan 9 2 1 6 15 - 21 -6 7
10.    Þór 8 2 0 6 6 - 20 -14 6
11.    FH 8 0 2 6 12 - 25 -13 2
12.    ÍBV 8 0 2 6 8 - 22 -14 2
Slapp