Fotbolti.net
04.05.26 - 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sjúkrateymið tók ákvörðun fyrir Róbert Orra - Ingvar fór í myndatöku

Róbert Orri fékk aðhlynningu frá sjúkraþjálfaranum Rúnari Pálmarssyni á vellinum og fór svo af velli.

Róbert Orri fékk aðhlynningu frá sjúkraþjálfaranum Rúnari Pálmarssyni á vellinum og fór svo af velli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Orri Þorkelsson fór meiddur af velli snemma leiks þegar Víkingur heimsótti Keflavík í gær. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, segir að Róbert sé að glíma við meiðsli í nára og tekin hafi verið ákvörðun um að hann kæmi af velli.

„Hann fann fyrir stífleika í nára, hann var tilbúinn að láta reyna á þetta í leiknum, en við erum með færa menn á bekknum sem geta stundum tekið betri ákvarðanir fyrir leikmennina. Sjúkraþjálfarinn sagði honum að taka ekki neina sénsa og eftir á var það rétt ákvörðun. Þetta hefði getað farið verr ef hann hefði reynt að harka af sér, en við mátum stöðuna þannig að það væri skynsamlegt að taka hann út af. Við metum hann dag frá degi, þurfum að sjá hvernig hann kemur út úr næstu dögum," segir Sölvi.

Fyrirliðinn Oliver Ekroth kom inn á fyrir Róbert en Oliver hafði misst af síðustu leikjum vegna meiðsla. Víkingur er með fjóra öfluga miðverði í sínum leikmannahópi en Sveinn Gísli Þorkelsson er reyndar líka frá vegna meiðsla eftir að hafa tognað á æfingu og ættu að vera um 2-3 vikur í að hann verði klár í slaginn. Fjórði miðvörðurinn er svo Gunnar Vatnhamar sem skoraði fyrsta mark Víkings í gær.
Sölvi: Reynsluleysi hjá mér að gleyma að ég var búinn að skipta markmanninum inn á
TENGT EFNI

Sölvi: Reynsluleysi hjá mér að gleyma að ég var búinn að skipta markmanninum inn á

Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 Víkingur R.
Markvörðurinn Ingvar Jónsson fór þá af velli í hálfleik þar sem hann gat ekki haldið leik áfram. Aron Snær Friðriksson lék seinni hálfleikinn og varði vel undir lokin í stöðunni 1-2.

„Við þurfum að meta stöðuna á Ingvari, hann fór í myndatöku. Hann fór í aðgerð í vetur út af gallsteinum. Hann er aðeins að díla við það, þetta var ekki magakveisa eins og ég sagði í viðtali efitr leikinn í gær, heldur meira en það. Hann var í segulómskoðun og við bíðum eftir að fá út úr henni," segir Sölvi.
Sjúkrateymið tók ákvörðun fyrir Róbert Orra - Ingvar fór í myndatöku
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hemmi svarar og Stjörnuhrap

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.