Fotbolti.net
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Þróttur R.
Þróttur R.
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
7 stiga hiti, hægur vindur og léttskýjað
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 145' Davíð Ingvarsson 0 - 269' Kristófer Ingi KristinssonSigurður Egill Lárusson 94'1 - 2
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
Sanngjarn sigur Blika en Þróttur byrjaði betur. Viðtöl og skýrsla á leiðinni
Þróttur R.
94. mín
Ertu að grínast?

Sigurður Egill Lárusson

Óli Valur í ruglinu þarna Missir boltann afar klaufalega en vá þetta var afgreiðsla hjá Sigga Tekur skotið strax með vinstri af löngu færi og smellir honum í netið
91. mín
4 mínútum bætt við
Breiðablik
85. mín
Sá ungi lætur finna fyrir sér

Kristinn Narfi Björgvinsson

84. mín
Villi Kaldal með dauðfæri
Siggi aftur með geggjaða sendingu í þetta skipti með hægri Boltinn beint á kollinn á Villa Kaldal en skallinn ekki alveg nógu góður og auðvelt fyrir Anton
Breiðablik
82. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtAndri Rafn Yeoman
Breiðablik
82. mín
InnKristinn Narfi Björgvinsson
ÚtÁgúst Orri Þorsteinsson
79. mín
Ágúst Orri og Baldur að ýta hvor öðrum
Smá pirringur þarna hjá þeim báðum
73. mín
Kári Kristjáns í fínu færi
Geggjuð sending hjá Sigga Lár á Kára Kristjáns sem er kominn í fínt færi hægri megin og reynir að vippa yfir Anton en boltinn fer yfir.
71. mín
Myndasyrpa af tæklingu Viktors sem orsakaði rautt spjald
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik
70. mín
InnViktor Karl Einarsson
ÚtAron Bjarnason
Breiðablik
70. mín
InnArnór Gauti Jónsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
Breiðablik
69. mín
Þetta voru gæði

Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson)

Ágúst Orri sýndi þarna gæðin sýn á vellinum. Lék á vörn Þróttar þarna nokkuð laglega með hröðum snertingum og snúningum. Gefur svo fyrir að þar er Kristófer Ingi mættastur og setur hann í netið. Virkilega flott hlaup líka hjá Kristófer sem skilur sinn mann eftir og er mættur á hárréttan stað á fjær
Þróttur R.
68. mín
InnStefán Þórður Stefánsson
ÚtÖrn Bragi Hinriksson
Þróttur R.
67. mín
Gult spjald

Hlynur Þórhallsson

Þróttur R.
65. mín
Gult spjald

Sigurður Egill Lárusson

Þróttur R.
63. mín
InnKolbeinn Nói Guðbergsson
ÚtNjörður Þórhallsson
63. mín
Hvað gerist næst
Blikar manni færri nýbúnir að taka Ívar út af og þá fær Viktor Örn Margeirsson beint rautt.
Breiðablik
55. mín
Ljótt brott!!

Viktor Örn Margeirsson

Hvað var þetta, hann tekur tveggja fóta tæklingu í loftinu og fær verðskuldað beint rautt Örn Bragi hinn 18 ára ungi piltur er bara heppinn að sleppa ómeiddur frá þessari tæklingu. Við nánari skoðun virðist hann renna sem lætur þessa tæklingu líta verr út en í við fyrstu sýn. En rautt verðskuldað engu að síður.
Breiðablik
55. mín
InnÁsgeir Helgi Orrason
ÚtÍvar Örn Árnason
Ívar meiddur eða vegna þess að hann fékk gult?
55. mín
Aron Bjarna með hörkutilþrif
Þetta voru tilþrif í lagi. Hörkutækling hjá Davíð sem endar hörkufæri hjá Aron Bjarna sem reynir að skrúfa boltanum í hægra hornið en rétt yfir.
Breiðablik
52. mín
Gult spjald

Ívar Örn Árnason

49. mín
Óli Valur í góðu færi
Flott spil hjá Blikum vinstra megin hjá Davíð og Antoni Loga. Davíð gefur inn í teig og boltinn berst fyrir rest á Óla Val sem á lélegt skot sem vörn Þróttara étur. Blikar eru að byrja seinni eins og þeir enduðu þeim fyrri.
47. mín
Kristófer Ingi með skoti
Löng sending frá Andra og Kristófer er með boltann hægra megin í þröngu færi. Tveir varnarmenn í honum og hann reynir bara skot sem fer bæði yfir og framhjá. Alltaf hætta á ferðinni þegar Kristófer kemst í boltann
46. mín
Seinni hafinn
Blikar byrjar með boltann
Þróttur R.
46. mín
InnVilhjálmur Kaldal Sigurðsson
ÚtMagnús Þórðarson
Maggi sennilega meiddur
45. mín
Þróttur átti þennan leik fyrstu 30 mínúturnar eða svo. Í kjölfarið vöknuðu Blikar og ná að skora rétt fyrir hálfleik. Vörn Þróttar virkaði pínu óskipulögð í restina. Tökum okkur 15
Breiðablik
45. mín
Þetta lá í loftinu

Davíð Ingvarsson

Þróttur hefur gefið helling eftir á síðustu mínútum. Þung sókn sem byrjar hægra megin sem endar með dauðafæri hjá Kristófer Inga sem á skot inni í teig en Laddi ver frábærlega. Frákastið fer í fæturnar á Davíð sem þrumar honum með vinstri í markið. Óverjandi fyrir Ladda.
43. mín
Blikarnir eru að taka fyrir núna
Leikurinn hefur snúist og nú sjást gæðin í Blikum. Aron Bjana og Ágúst Orri hættulegir.
40. mín
Þarna voru heimamenn heppnir
Vörn Þróttar gleymir Ágústi Orra hægra megin rétt fyrir utan teig með nóg pláss og tíma. Hann stingur honum inn í teig á Kristófer sem er einn en þarna var Laddi vel á verði og mættur til að loka markinu. Blikar eru allt í einu að muna að þeir eru í Bestu deild
39. mín
Flottur spilakafli þarna hjá Blikum
Flott samspil á milli Kristófers og Antons Loga sem endar með skoti frá Kristófer en auðvelt fyrir Ladda í markinu.
35. mín
Kristófer Ingi næstum því í dauðafæri
Loksins kom hröð sókn frá Blikum þegar Ágúst Orri er einn hægr megin og keyrir upp kantinn. Gefur svo fyrir og það munaði engu að Kristófer næði til boltans en Hlynur nær að loka á hann og skotið lekur til hliðar.
35. mín
Þung sókn hjá Þrótti
Þróttur aftur búið að taka völdin á vellinum. Aukspyrnur, hornspyrnur, fyrirgjafir og alls konar inn í teig. Endar með bakfallsspyrnu hjá Hlyni sýnist mér eftir horn en boltinn fór nokkuð þægileg yfir. En Þróttur er búið að vera betra liðið það sem af er.
29. mín
Ívar með skalla
Besta marktækifæri gestanna kom eftir hornspynu sem rataði beint á kollinn á Ívari sem skallar honum naumlega yfir.
27. mín
Brauðstangir fyrir fjölmiðla
Það er vel hugsað um okkur í boxinu og fengum rjúkandi heitar brauðstangir Vel gert Þróttur Reykjavík.
25. mín
Brynjar með flotta takta
Leikur hérna á þrjá miðjum blika áður en að Andri Yeoman fær nóg og brýtur á honum. Aukaspyrna dæmd en skemmtileg tilþrif þarna
21. mín
Jafnvægi að komast í leikinn
Blikarnir aðeins farnir að bíta frá sér og leikurinn í járnum Hvorugt liðið nær að tengja saman nógu margar sendingar til að mynda hættulega sókn
16. mín
Aron Snær hættulegur
Geysist upp kægri kantinn einn og óvaldaður eftir hornspyrnu Blika. Kári tekur hlaupið inn í teig ásamt öðrum og fyrirgjöfin kemur en hún fer framhjá pakkanum.
15. mín
Fyrsta horn Blika
Sýndu smá takta þarna og uppskeran er horn. Þróttur hreinsar hana vel og fer svo bara í skyndisókn hinum megin
10. mín
Þróttur R. halda pressunni áfram
Blikar líta út eins og Lengjudeildarliðið á þessum fyrstu 10 mínútum. Þróttur meira með boltann og Blikar hafa ekkert náð að skapa sér færi
5. mín
Anton Ari með klaufalega sendingu
Ætlaði þarna að hefja uppspilið en á slæma sendingu sem hápressa Þróttar étur og Aron Snær komin í góða stöðu. Hann hugsar um að skjóta en ákeður að gefa á Magga til hægri sem á fyrirgjöf en sóknin rennur í sandinn
2. mín
Heimamenn byrja vel
Þróttur er ekki að mæta til leiks sem litla liðið það er alveg á hreinu
1. mín
Það eru heimamenn sem sparka þessu af stað
Fyrir leik
Liðin að labba inn á völlinn
Það styttist heldur betur í þennan risaslag
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár
Mjög athylgisvert að Venni byrjar með Þórhall Ísak Guðmundsson í markinu. Við nánari skoðun þá byrjaði Laddi í síðasta leik í Mjólkurbikarnum á móti ÍBV.
Fyrir leik
MIngi í viðtali
Magnús Ingi Þórðarson skipti á dögunum yfir til Þróttar á láni frá Fram. Sóknarmaðurinn skoraði í sínum fyrsta leik með Þrótti, í 0-3 útisigri á Völsungi á laugardag. Magnús ræddi við Fótbolta.net um komandi leik og félagaskiptin frá Fram:
   13.05.2026 10:30
„Vildi fara á stað þar sem ég er í alvöru hlutverki, er rétt metinn og notaður rétt"
Fyrir leik
Þróttur R. ætla sér stóra hluti í sumar
Þróttur Reykjavík fékk tækifæri til að tryggja sér sæti í Bestu deildinni í fyrra á heimavelli gegn Þór en það tækifæri fór forgörðum eftir 1-2 tap í september í fyrra. Stefnan í ár er einföld og hún er að vinna Lengjudeildina og keppa að meðal þeirra bestu á næsta ári. Liðið er heldur betur búið að styrkja sig í vetur og nýlega líka. En það er ekki einu sinni hálf sagan en Þróttur R. fékk uppáhalds son sinn aftur til baka þegar Kári Kristjánsson sem fór fyrir tímabilið til FH sneri aftur heim. Reynsluboltinn Sigurður Egill Lárusson kom frá Val fyrir tímabilið og hefur verið magnaður það sem af er sumri eða með fullt hús stiga eins og Þróttur sem sitja eini á toppnum með 9 stig eftir þrjár umferðir.
Fyrir leik
Dómgæslan í kvöld
Það er Þórður Þorsteinsson Þórðarson eða ÞÞÞ eins og hann er kallaður sem verður dómari hér í kvöld. Aðstoðardómarar eru þeir Guðmundur Ingi Bjarnason og Kári Mímisson, fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson en Viðar Helgason eftirlitsmaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leiðin að 16-liða úrslitum Breiðablik
Í 32-liða úrslitum fengu Blikar upphitunarleik og mættu Kormáki/Hvöt sem spila í 2. deild. Breiðablik vann þann leik örugglega 6-1 þrátt fyrir langt ferðalag til Sauðakróks, ekkert vanmat í gangi þar. Höskuldur Gunnlaugsson og Kristófer Ingi Kristinsson skoruðu sitt hvora tvennu á meðan Ágúst Orri Þorsteinsson og Óli Valur Ómarsson bættu við sitt hvoru markinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristófer Ingi Kristinsson er markahæsti leikmaður Breiðabliks
Fyrir leik
Leiðin að 16-liða úrslitum Þróttur Reykjavík
Í annarri umferð slóg Þróttur R. ríkjandi Fóbolta.net bikarmeistara Víking Ólafsvík 3-1 út á Avis vellinum með mörkum frá Adami Árni Róbertssyni, Aron Snæ Ingasyni og Baldri Hannesi Stefánssyni Í 32-liða úrslitum fór Þróttur R. til Eyja og unnu ÍBV 4-2 í vítaspyrnukeppni eftir að leiknum lauk með jafntefnli 2-2 að 90 mínútum loknum. Adam Árni Róbertsson skoraði bæði mörk Þróttara í venjulegum leiktíma. Þannig að það er óhætt að segja að Þróttur R. nýtti undirbúningstímabilið sitt fyrir Lengjudeildina í að komast áfram í Mjólkurbikarnum.
Fyrir leik
Upphitunarþáttur Mjólkurbikarsins
Fyrir allra harðasta stuðningsfólk mælum við með að horfa á upphitunarþátt Mjólkurbikarsins þar sem Kári Snorrason og Almarr Ormarsson rýna vel í hvern einasta leik. Þátturinn er tekinn upp í nýja stúdíói Fótbolta.net.
Fyrir leik
Mjólkurbikarinn heldur áfram
Kæru lesendur verið hjartanlega velkomin í þessa beina textalýsingu frá Avis vellinum þegar Þróttur Reykjavík fær Breiðalik í heimsókn og leikurinn hefst klukkan 17.30. 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins fara fram í dag og á morgun og allir leikirnir eru sýndir á RÚV eða Livey: miðvikudagur 13. maí RÚV2 17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn) Livey 19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn) Livey 19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá) Livey 19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn) RÚV2 20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn) fimmtudagur 14. maí Livey 14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn) Livey 14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn) RÚV2 15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN) RÚV2 16:55 Bikarmörkin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.