Valverde gæti endað á Old Trafford - Man Utd hefur aukinn áhuga á Ederson og Fernandes - Tekur Alonso við Chelsea?
   mið 13. maí 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Vildi fara á stað þar sem ég er í alvöru hlutverki, er rétt metinn og notaður rétt"
Kom á láni undir lok gluggans frá Fram.
Kom á láni undir lok gluggans frá Fram.
Mynd: Þróttur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magnús þekkir t.d. til Arons Snæs Ingasonar en þeir léku saman með Fram.
Magnús þekkir t.d. til Arons Snæs Ingasonar en þeir léku saman með Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurvin Ólafsson, Venni, er þjálfari Þróttar.
Sigurvin Ólafsson, Venni, er þjálfari Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:30 í dag tekur Þróttur á móti Breiðabliki í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Leikurinn fer fram á AVIS-vellinum í Laugardal og er fyrsti leikurinn í bikarvikunni.

Magnús Ingi Þórðarson skipti á dögunum yfir til Þróttar á láni frá Fram. Sóknarmaðurinn skoraði í sínum fyrsta leik með Þrótti, í 0-3 útisigri á Völsungi á laugardag.

Magnús ræddi við Fótbolta.net um komandi leik og félagaskiptin frá Fram.

„Mér líst bara vel á að mæta Breiðabliki, það er alltaf gaman að spila við bestu liðin a landinu og máta sig við þau. Það má búast við erfiðum leik eins og alltaf á móti Breiðabliki þótt þeir spili kannski öðruvísi núna en á undanförnum árum og við þurfum að eiga okkar besta leik til að slá þá út," segir Magnús.

Þróttarar eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í Lengjudeildinni. Hvernig líður þér með byrjunina hjá ykkur á tímabilinu?

„Byrjunin hefur verið góð hjá okkur, ég horfði á fyrstu tvo leikina í stúkunni, á móti Njarðvík og ÍR, áður en ég var mættur og það voru góðir leikir hjá Þrótti og sannfærandi sigrar. Svo unnum við Völsung í síðasta leik þannig við getum ekki kvartað yfir þessari byrjun."

Hvernig var að koma inn í nýtt félag og byrja strax leik og skora?

„Það er alltaf smá skrýtið að skipta um lið og breyta um umhverfi en strákarnir hafa tekið vel á móti mér og bara gaman að byrja á ferðalagi til Húsavíkur og kynnast strákunum betur. Aron Snær skoraði gott mark á fyrstu mínútunum og svo komumst við í 3-0 eftir 30 mín og kláruðum leikinn en við hefðum átt að skora fleiri mörk í seinni hálfleik. Auðvitað var næs að byrja leikinn og ná inn fyrsta markinu líka til að koma sér inn í þetta almennilega."

Er skýrt að markmið Þróttar sé að vinna Lengjudeildina?

„Þróttur var mjög nálægt því að vinna deildina í fyrra og liðið hefur verið styrkt komandi inn í þetta tímabil þannig það væri skrýtið að setja ekki stefnuna á að gera betur en í fyrra."

Þú persónulega, þú varst t.d. orðaður við félag í Bestu deildinni (Keflavík). Af hverju ertu kominn í Þrótt?

„Ég vildi bara fara að spila og hafa gaman af því að spila aftur og Þróttur fannst mér strax spennandi. Ég hef fylgst vel með þeim síðustu ár og þekki nokkra vel úr liðinu og þeir spila skemmtilegan bolta. Venni vill spila sóknarsinnaðan bolta og það heillaði mig."

„Ég átti einhver samtöl við lið úr Bestu deildinni en mér fannst Þróttur mest spennandi af þeim samtölum þannig ég get ekki sagt hafa verið eitthvað mjög nálægt því að fara eitthvert annað."


Var erfitt að fara frá Fram?

„Jájá það var alveg erfitt að fara á láni frá Fram en ég var í takmörkuðu hlutverki hjá þeim. Ég vildi spila, vildi fara á stað þar sem ég er í alvöru hlutverki, er rétt metinn og notaður rétt."

Hvernig sér byrjun Breiðabliks á sínu tímabili við þér?

„Þeir líta bara vel út af því sem ég hef séð og eru alltaf erfiðir að spila við. Þeir eru hættulegir sóknarlega en við erum það líka og við þurfum líka að hugsa um okkur hvað við ætlum að gera í þessum leik. Við eigum von á erfiðum og skemmtilegum leik."
Slapp
banner
banner
banner