Leik lokið!
5-0
Það er heldur betur sannfærandi sigur í dag hjá Fylkis mönnum og nafn þeirra komið í pottinn fyrir 8-liða úrslit.
90. mín
Komnar 90 á klukkuna!
89. mín
Þjálfararnir tveir


88. mín
Ásgeir Steinn tekur skot úr aukaspyrnu sem fer framhjá markinu.
86. mín
Gult spjald
Bjarki Steinsen Arnarsson
85. mín
Boltinn mikið fram og tilbaka á miðjunni um þessar mundir. Ekki mikið að gerast annað en að Fylkir er að hugsa hverja þeir fá í 8-liða úrslitum
80. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtBenedikt Daríus Garðarsson
78. mín
Stöngin út!
Allan Purisevic tekur lúmskt skot sem ratar í fjærstöngina og út í lúkurnar á Ólafi Kristófer.
76. mín
Gult spjald
Guðfinnur Þór Leósson
Fer í tæklingu á miðjunni gegn Róberti Huga og dómarinn telur hann hafa farið of mikið í manninn þarna.74. mín
Ennþá allt galopið!
Þægileg skyndisókn sem myndast og Kári Sigfússon gerir vel í að komast framhjá vörninni. Tekur gott skot sem Jökull ver út í teiginn og þar var Benedikt Daríus að mér sýndist sem átti skot en varnarmenn komust fyrir og hreinsuðu.
70. mín
Fínustu fersku lappir sem Heimir Guðjóns er að henda inn á fyrir Mána og Dag sem hafa verið góðir í dag.
Máni og Dagur....Mánudagur? nei nei
69. mín
InnAllan Purisevic
ÚtGils Gíslason
Varð fyrir einhverju smá hnjaski
69. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtDagur Traustason
68. mín
InnGuðmundur Tyrfingsson
ÚtMáni Austmann Hilmarsson
67. mín
Gengur ekkert hjá FH liðinu að skapa einhver tækifæri þrátt fyrir að vera komnir töluvert meira með boltann um þessar mundir.
65. mín
InnTumi Fannar Gunnarsson
ÚtBirkir Eyþórsson
60. mín
Höddi Magg segir frammistöðu FH sársaukafulla og óboðlega
Hörður Magnússon, fyrrum markahrókur FH, fór í hálfleik yfir frammistöðu Hafnarfjarðarliðsins. Hann er ekki hrifinn...
14.05.2026 16:13
„Heimir Guðjóns er að skáka og máta Jóa Kalla“
59. mín
InnKetill Orri Ketilsson
ÚtBaldur Kári Helgason
59. mín
InnÁsgeir Steinn Steinarsson
ÚtKjartan Kári Halldórsson
59. mín
InnBenjamín Bæring Þórsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
57. mín
Jökull Andrésson að bjarga!
Benedikt Daríus sleppur í gegn rétt vinstra meginn við markið og hleypur af skoti á nær sem Jökull ver virkilega vel í horn.
54. mín
Þetta er svo auðvelt fyrir Fylki!
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Sama saga og held ég bara alltaf....Kári Sigfús með fyrirgjöf sem fer beint í fæturnar Mána Austmann og frábærlega klárað hjá honum framhjá Jökul í markinu.53. mín
Kjartan Kári með skot!
Sem er allt of auðvelt fyrir Ólaf Kristófer í markinu.
52. mín
Gils og Ólafur Kristófer lenda í samstuði rétt á vítateigslínunni.
Standa þetta báðir af sér eins og er.
48. mín
Ja hérna hér!
Dagur Traustason
Fyrsta sókn Fylkis í seinni. Boltinn fyrir markið í átt að Mána Austmann en Jökull er á undan í boltann. Nær þó bara að slá hann út og þar var Dagur Traustason fyrstur til boltans og auðvelt skot í netið! 4-0!!!46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Tíminn er núna fyrir FH ef þeir ætla sér að breyta þessu eitthvað.
45. mín
Myndasyrpa úr fyrri hálfleik - Þema: Fylkismenn fagna






45. mín
Gunnar Freyr bætir engu við og liðin ganga til hálfleiks.
3-0 fyrir Fylkir og eiga það skilið.
43. mín
Mikill barningur í teig Fylkis þegar FH á horn. Mjög þéttur pakki og allir að ýta öllum einhvern veginn.
42. mín
Kjartan Kári með horn sem fer beint á Ólaf Kristófer í markinu.
40. mín
Máni Austmann!
Kári í góðu hlaupi á hægri kantinum sínum. Losar boltann út í teiginn þar sem Máni Austmann mætir á nær og með skotið í fyrsta sem flýgur rétt framhjá.
39. mín
Kári Sigfússon sem tók aukaspyrnuna og lét bara vaða, rúllaði boltanum á nær en framhjá markinu
38. mín
Gult spjald
Arngrímur Bjartur Guðmundsson
Dregur Benedikt Daríus niður fyrir utan teig.36. mín
Jökull í úthlaupi og sparkar í innkast áður en Kári Sigfússon komst í boltann.
35. mín
Hornspyrnur FH ekki að skila miklu en ef einhver hætta kemur í átt að marki Fylkis er það Gils sem er á ferð með boltann.
33. mín
Kári Sigfússon er í algjöru fyrirgjafa stuði í dag. Reyndir góðan bolta inn fyrir vörnina en aðeins of fastur fyrir Mána Austmann og Dagur sem nær síðan til boltans seint er flaggaður rangstæður.
32. mín
Ég get sagt ykkur það 3-0 eftir 30mín. Þetta er bara sannfærandi og sanngjarnt.
28. mín
Kjartan Kári með krullu!
Ólafur Kristófer þar að hafa sig allan að til að slá boltann yfir slána eftir þetta fínasta skot hjá Kjartani Kára.
24. mín
HVAÐ ER AÐ GERAST HÉR!!!
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Dagur Traustason)
Fylkismenn eru bara að valta yfir FH liðið og hafa ekkert fyrir því að skora! 3-0!!! En ein fyrirgjöf sem fer í teig FH, Dagur Trausta lang hæðstur og skallar hann út á miðjan teiginn þar sem Máni Austmann stendur aleinn og setur hann þæginlega undir Jökul á vinstri stöngina.22. mín
GILS GÍSLAAA!!!!!
Sleppur einn í gegn eftir sendingu og þvílíkur kraftur sem býr í þessum dreng. Enginn rangstaða en slúttið rétt framhjá eftir að það sigraði Ólaf Kristófer í marki Fylkis.
19. mín
2-0 FYLKIR!!!!
Hlynur Sævar Jónsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Frábær sending frá Kára Sigfússyni sem fer á galopinn Hlyn Sævar á fjær sem á auðveldan skalla í markið. ALLTOF þæginlegt fyrir Fylkismenn þessar fyrstu 20.mín það er varla líf í FH-ingum.18. mín
Dauðafæri hjá mun betri Fylkisliðinu
Spila vel saman eftir að uppspil FH heldur áfram að klikka. Koma boltanum síðan fyrir en skallinn yfir
15. mín
Dæmt vitlaust innkast á FH
14. mín
Flott pressa skilar þriðja horninu
Segatta flottur að vinna boltann ofarlega og finnur Kára á kantinum. Sem sækir en eitt hornið eftir fyrirgjöf sína.
13. mín
Önnur hornspyrna Fylkis
Birkir Eyþórsson sem nær fínum skalla á nærstönginn en yfir markið.
12. mín
Aðeins að lifna við FH-ingum. Skiljanlega, ekki gott að lenda undir snemma en ef rétt er spilað úr kortunum geta menn notað þetta sem orkuboost.
6. mín
Fyrsta horn...FYRSTA MARK!
Baldur Kári Helgason (sjm)
Boltinn dettur á fjær teiginn þar sem Kári Sigfússon er og hann ætlar að fleygja honum inn í teiginn. Fer í Baldur Kára og yfir Jökul Andrésson í markinu og endar í netinu! Spurning hvort að Máni Austmann kassar hann inn en að mínu mati var boltinn kominn í markið.5. mín
Sækja fyrsta hornið
Fylkis horn
3. mín
Fylkir að fikta smá með boltann, eru að komast betur í takt við leikinn en FH þessar fyrstu mínútur
1. mín
Það eru FH sem sparka okkur af stað í síðasta leik 16-liða úrslita Mjólkurbikarins!
0. mín
Hvernig komust liðin í 16-liða?
Í 32-liða úrslitum fékk Fylkir KFA og unnu þeir þægilegan 2-0 sigur. Sjálfsmark hjá KFA og mark frá Guðmundi Tyrfings.
FH spilaði gegn Þór og fór með sigur þar eftir 4-2 leik. Lentu 1-0 undir í þeim leik en komust í 4-1 með marki frá Arnóri Borg og tvennu frá Adolfi Daða, síðan eitt sjálfsmark Þórs.
0. mín
Bikardagur á Uppstigningardegi
16-liða úrslitum lýkur með þremur leikjum:
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Sjáðu mörkin og úrslitin úr leikjum gærdagsins:
14.05.2026 00:10
Hvenær verður dregið?
Það verður dregið í 8-liða úrslit í beinni útsendingu í samantektarþættinum á RÚV2 en hann fer í loftið eftir leik Fylkis og FH. Áætlað er að hann hefjist 16:55.
Sjáðu öll bikarmörkin: Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR
14.05.2026 08:00
Mætir fyrrum liðsfélögum í dag - „Var ekkert að leitast eftir því að fara frá Gróttu"
0. mín
Upphitunarþáttur
Þeir Kári Snorrason og Almarr Ormarsson fóru yfir alla leikina sem voru framundan í 16-liða úrslitum og Almarr spáði einnig fyrir um úrslit leikja. Umræðan um Fylkir vs FH hefst á 30:34mín.
Fylkir 3-1 FH (15:00)
„Þetta er mögulega áhugaverðasti leikur 16-liða úrslita, nóg af sögulínum. Heimir Guðjóns fór sáttur á koddann þegar hann sá þennan drátt. Ég held að Fylkismenn taki þetta, þeir skora tvö í framlengingu og vinna 3-1 sigur."
0. mín
Dómarateymið
Dómarinn í dag er Gunnar Freyr Róbertsson.
Honum til aðstoðar verða Eysteinn Hrafnkelsson og Þórður Arnar Árnason.
Fjórði dómari er Arnar Þór Stefánsson.
Eftirlitsmaður er síðan Sigurður Hannesson.

0. mín
FH
Hafnarfjarðarliðið kemur í þennan leik í sérstökum gír. Liðið hefur ekki ennþá sótt sinn fyrsta sigur í Bestu Deildinni eftir sex umferðir. Möguleiki hér í dag til að gleyma því svolítið og búa til almennilega bikargöngu. Við sáum það í fyrra að bikar og neðri hluti í Bestu Deildinni er möguleiki, þó að staðreyndir er væntanlega sú að FH-liðið vill ekki vera í fallbaráttu.
Einhverjir leikmenn FH að mæta sínum gamla þjálfara og eflaust virðing þar á milli.
Eitt er alveg víst að þetta er mjög verðugt verkefni fyrir Bestu Deildar lið FH í dag, Jóhannes Karl og leikmenn hans munu þurfa að mæta til leiks frá fyrstu mínútu.

0. mín
Fylkir
Það vantar ekki sögusagnir fyrir þennan leik. Þeir sem þekkja til Íslenskan fótbolta vita af því að Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis í dag. Var lengst af sínum þjálfara ferli með FH-inga. Eftir síðasta tímabil kallaði stjórn FH það gott og hér erum við í dag með Heimir hjá Fylki og Jóhannes Karl Guðjónsson að stýra FH.
Einnig á Bjarki Steinsen Arnarsson leikmaður Fylkis og fæddur 2005 sögu í FH. Hann var í hóp liðsins frá 2022 til 2024. Hann náði þó ekki Bestu Deildar leik. Hann Bjarki Steinsen kom í viðtal hjá okkur um daginn og hafði margt áhugavert að segja um þessa viðureign.
0. mín
Síðasti leikur 16-liða úrslita
Heil og sæl kæru lesendur, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá leik Fylkis og FH. Þetta er síðasti leikurinn í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarins og sigurliðið hér það síðasta til að bæta nafni sínu í pottinn fyrir 8-liða dráttin sem fer fram á RÚV beint eftir leik.
Við erum á Tekk vellinum í dag og mun leikurinn hefjast á slaginu 15:00








