Fotbolti.net
14.05.26 - 16:13
Elvar Geir Magnússon

„Heimir Guðjóns er að skáka og máta Jóa Kalla“

Fylkir er að leika sér að FH.

Fylkir er að leika sér að FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Lengjudeildarlið Fylkis er að slátra FH 5-0 í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins þegar þessi frétt er skrifuð.

Hörður Magnússon, fyrrum markahrókur FH, er sérfræðingur RÚV í útsendingu frá leiknum og fór yfir gang mála í hálfleik en þá var staðan 3-0.

Hann setti meðal annars spurningu við viðtal Grétars Snæs Gunnarssonar, fyrirliða FH, sem ræddi stuttlega við RÚV eftir fyrri hálfleikinn.
„Mér fannst þetta viðtal hálf undarlegt. Þú ert 3-0 undir í hálfleik og talar eins og það sé ekkert mál. Ég átta mig ekki á þessari nálgun FH-inga, frammistaða liðsins hefur verið sársaukafull og í raun og veru ekki boðleg," sagði Hörður.

„Leikmenn eins og Kjartan Kári (Halldórsson) og Arnór Borg (Guðjohnsen), tveir af reynslumeiri leikmönnum liðsins, eru bara í felum og taka ekki þátt í þessum leik."

„Ég veit ekki hvert upplegg FH var í fyrri hálfleik en það er ekki að ganga og er í raun og veru ekki boðlegt."

Heimir Guðjónsson stýrir liði Fylkis en FH-ingar ákváðu að láta hann fara eftir síðasta tímabil og réðu Jóhannes Karl Guðjónsson í hans stað.

„Fylkisliðið virkar mjög vel, eins og Heimis Guðjóns lið virka best; kröftug, fyrirgjafir, seinni bolti, hlaup og barátta. Þetta hefur allt gengið upp. Heimir er að skáka og máta Jóa Kalla í þessum fyrri hálfleik," sagði Hörður en hér er bein textalýsing frá leiknum.
„Heimir Guðjóns er að skáka og máta Jóa Kalla“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.