Fotbolti.net
Grótta
Grótta
Lengjudeild kvenna
Vivaldivöllurinn
4 - 3
Keflavík
Keflavík
Katrín Rut Kvaran 7'1 - 01 - 143' Hilda Rún Hafsteinsdóttir1 - 245' Ariela LewisKatrín Rut Kvaran 47'2 - 2Thelma Björg Gunnarsdóttir 58'3 - 2Díana Ásta Guðmundsdóttir 80'4 - 24 - 387' Alyssa Yana Daily
Dómari: Tómas Wolfgang Meyer

SKÝRSLAN: Markasúpa á Vivaldi

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum í dag var í rauninni vinnusemin og karakterinn sem Grótta sýndi í gegnum leikinn.

Bestu leikmenn

1. Katrín Rut Kvaran

Katrín skoraði auðvitað tvö mörk í leiknum, ógnaði mikið og er verðskuldaður maður leiksins.

2. Lovísa Davíðsdóttir Scheving

Lovísa var allt í öllu í þessum leik, tvær stoðsendingar og stjórnaði miðjunni. Frábær leikur.

Atvikið

Þegar Grótta komst í 4-2 var þetta eiginlega komið hjá þeim. Það voru um það bil 10 mín eftir þegar markið kom og Keflavík náði ekki að jafna leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Grótta sitja í öðru sæti með 15 stk, einu stigi á eftir Haukum.

Vondur dagur

Mér fannst enginn sérstakur eiga vondan dag í dag en vörn Keflavíkur var oft sofandi á köflum og fengu því fjögur mörk á sig.

Dómarinn - 6

Tómas var ágætur í dag, dæmdi lítið af brotum og leyfði leiknum að fljóta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.