SKÝRSLAN: Fylkismenn mæta Aftureldingu í undanúrslitum
Hvað réði úrslitum?
Er hægt að segja úthald? Það dró af Gróttumönnum þegar leið á leikinn og var það sérstaklega augljóst þegar líða tók á framlenginguna og gengu Fylkismenn á lagið.
Bestu leikmenn
1. Theodór Ingi Óskarsson - Fylkir
Var allt í öllu í leik Fylkismanna. Var sá eini sem sýndi lífsmark framan af leik og var mjög drífandi allan leikinn.
2. Guðmundur Rafn Ingason - Grótta
Þrátt fyrir að hafa fengið fjögur mörk á sig var Guðmundur Rafn virkilega flottur í dag. Varði oft á tíðum virkilega vel og átti enga sök í neinu af mörkunum.
Atvikið
Þegar Fylkir jafna á 90. mínútu venjulegs leiktíma. Á þeim tímapunkti var ekkert sem benti til þess að Fylkismenn myndu skora mark í þessum leik þrátt fyrir að vera meira með boltann en augnabliks einbeitingarleysi í vörn Gróttu kostaði þá leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þau þýða það að Fylkismenn eru komnir áfram í undanúrslit þar sem þeir mæta Aftureldingu. Gróttumenn jafna sinn besta árangur í bikarkeppninni og detta út í 8-liða úrslitum.
Vondur dagur
Þrátt fyrir að hafa átt ágætis leik þá verð ég að setja þetta á Caden McLagan. Því miður kostaði sjálfsmarkið hans Gróttumenn sæti í undanúrslitum og nagar hann sig eflaust í handabökin.
Dómarinn - 4
Jóhann átti ekki alveg sinn besta dag. Hann var oft lengi að dæma og mér þótti hann ekki vera samkvæmur sjálfum sér allan leikinn á báða bóga.
Í lok venjulegs leiktíma gerðu Fylkismenn tilkall til vítaspyrnu og var mikið til í þeim óskum. Þá kvartar Rúnar Páll þjálfari Gróttu yfir því að Orri Sveinn hafi verið rangstæður í þriðja marki Fylkis en ég þori ekki að fullyrða um það.


