Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Þróttur R.
Þróttur R.
Besta kvenna
AVIS völlurinn
Sumar í RVK
0 - 0
ÍBV
ÍBV
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Deila stiginu í sólinni

Hvað réði úrslitum?

Vörslur Guðnýjar réðu úrslitum í dag. Mjög jafn leikur en Þróttur fékk klárlega betri færin í þessum leik.

Bestu leikmenn

1. Guðný Geirsdóttir

FRÁBÆRAR vörslur sem leyfir liðinu að halda hreinu. Mjög góð frammistaða.

2. Kristín Klara Óskarsdóttir

Nýkominn úr landsliðsverkefni með U-19 og spilar mjög vel hér í dag. Stoppaði nóg af sóknaraðgerðum Þróttar og leysti öll sín verkefni vel í vörninni.

Atvikið

Allison og Jelena lentu í smá ósætti, þar gerðu þær þó báðar vel í að passa sig þó nægilega til að vera ekki að fjúka útaf með rautt eftir einhverja þvælu.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV heldur sér einu stigi fyrir ofan Þrótt með þessum úrslitum en bæði lið hrapa fyrir neðan Stjörnunna sem vann sinn leik í dag. Niðurstaðan því eftir 8.umferð er að ÍBV er í 4.sæti og Þróttur í því 5.sæti.

Vondur dagur

Bolti í neti, hann hefði eflaust viljað komast aðeins í netið á þessum frábæra sumar degi en ekki varð að því í dag.

Dómarinn - 9

Góður í dag, öll völd á þessu og ekkert að flækja málin með spjöldum. Hélt leikmönnum vel við efnið.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.