SKÝRSLAN: Markaþurrð á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Það má segja að gæðaleysi og skortur á sjálfstrausti ráði úrslitum. Liðin náðu ekki að skapa sér mörg færi en baráttan var til staðar og án efa eitthvað sem bæði lið taka með sér úr leiknum.
Bestu leikmenn
1. Alessandra Dorothy Augur
Alessandra var örugg í öllum sínum aðgerðum. Hún varði vel þegar þess þurfti og átt nokkrum sinnum fín úthlaup.
2. Ísabella Sara Tryggvadóttir
Ísabella Sara var sérstakleg áberandi í fyrri hálfleik þegar Valur stýrði ferðinni. Hún tekur föst leikatriði og var óheppin að ná ekki stoðsendingu í dag.
Atvikið
Stangarskot Ísabellu Söru var atvik leiksins. Hún tók aukaspyrnu af löngu færi. Það bjuggust allir við „in-swing" fyrirgjöf en þess í stað skaut Ísabella á markið. Skotið fór í stöngina.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýðir að Þór/KA bindur enda á fimm leikja taphrinu sína. Liðið vermir enn botnsætið en er nú með þrjú stig. Valur er með 8 stig í áttunda sæti.
Vondur dagur
Það var engin sérstakur leikmaður sem átti slæman dag. Sóknarleikur beggja liða var ekki upp á marga fiska og þá sérstaklega Valskvenna sem höfðu oft fín tök á leiknum en sköpuðu sér lítið
Dómarinn - 6
Bergrós var flott á flautunni í dag. Hún negldi allar ákvarðanir sem hefðu getað verið stórar, gaf Sóleyju Eddu ekki seinna gula spjaldið og dæmdi ekki víti þegar Tinna Brá fór í úthlaup og náði knettinum af Erin. Það varð einhver miskilningur á mili hennar og aðstoðardómara sem að dæmdi hornspyrnu en á endanum var markspyrna dæmd.



