Fotbolti.net
@fotboltinetEinar Már Þórólfsson
Völsungur
Völsungur
Lengjudeild karla
GPG völlurinn
2 - 1
Njarðvík
Njarðvík
0 - 114' Bragi Karl Bjarkason (víti)Arnar Pálmi Kristjánsson 58'1 - 1Elfar Árni Aðalsteinsson 88'2 - 1
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Frábær fyrsti sigur Völsungs

Hvað réði úrslitum?

Baráttugleði heimamanna. Eftir virkilega erfiðar fyrstu 40 mínútur þar sem Njarðvíkingar voru miklu betri kviknaði einhver neisti hjá Völsungum sem þeir tóku með sér yfir í seinni hálfleik og áttu frábæra endurkomu.

Bestu leikmenn

1. Elfar Árni Aðalsteinsson

Hann er svo seigur og gerir svo mikið fyrir Völsungsliðið. Skoraði svo að sjálfsögðu sigurmarkið.

2. Arnar Pálmi Kristjánsson

Ég hefði getað sett spánverjana Juan og Xabi hér og einnig Jochum en þeir áttu allir glimrandi leik. Fyrirliðinn fær þetta því hann stendur alltaf fyrir sínu og skoraði gott mark.

Atvikið

Sigurmark Elfars Árna. Þvílíka gleðin sem braust út á GPG-vellinum þegar fólkið sá Völsung loksins í forystu í sumar og það svona rétt undir lokin. Vonandi verður þetta eitthvað til að byggja á.

Hvað þýða úrslitin?

Völsungar fá loksins 3 stig og eru því komnir með 5 stig en sitja þó enn á botni deildarinnar. Njarðvík er enn í 8. sæti með 11 stig eftir 9 leiki. Væntanlega ekki það sem þeir ætluðu sér.

Vondur dagur

Valdimar Jóhannson fékk 4-5 tækifæri til að skora í dag en nýtti þau ekki. Vissulega óheppinn stundum en hann átti að skora allavega eitt mark í dag.

Dómarinn - 4

Heilt yfir ekkert svo slæmt en atvikið milli Elfars og Eiðs þar sem Eiður slapp með rautt verður til þess að ég set hann niður í Lélegur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.