Fotbolti.net
Besta deildin
Viktor Ingi Valgarðsson
Besta kvenna
AVIS völlurinn
Sumar í RVK
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 0
ÍBV
ÍBV
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
0-0 Jafntefli niðurstaðan
Mjög jafnleikur og þetta eru bara sanngjörn úrslit að mínu mati. Smá fyrsti leikur eftir landsleikjahlé bragur á þessu en Guðný Geirsdóttir kláralega bjargaði ÍBV hér í dag með sínum 3vörslum.

Takk fyrir mig í dag!
92. mín
Fer að fjara út hér þessi 3stig.
90. mín
Guðný Geirs með mikilvæga vörslu!
Étur einfaldlega skotið frá Brynju Rán sem var kominn ein í gegn.
Bjargar hér ÍBV líkt og í lok fyrri hálfleiks.
89. mín
María Eva Eyjólfsdóttir með skot sem svífur yfir markið.
87. mín
Fyrirgjöf frá hægri hjá Þrótti en hreinsað í burtu af Söndru Voitane
86. mín
ÍBV að liggja á Þrótti um þessar mundir, virðast hungraðri í sigurinn hér.
84. mín
Hornspyrna fyrir ÍBV. Skallað í burtu af nærstönginni og enginn hætta á ferð.
80. mín
Tíu mínútur eftir hér og ÍBV smá líklegri um þessar mundir.
Þróttur R.
77. mín
InnHekla Dögg Ingvarsdóttir
ÚtMadison Jeanne Ditta
Þróttur R.
77. mín
InnÞórdís Nanna Ágústsdóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
ÍBV
75. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtAllison Grace Lowrey
74. mín
Þessar tvær skiptingar áttu sér stað áðan meðan ég var dottinn út
Þróttur R.
72. mín
InnBrynja Rán Knudsen
ÚtSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÍBV
72. mín
InnHelena Hekla Hlynsdóttir
ÚtRagna Sara Magnúsdóttir
72. mín
Afsakið þetta
Datt smá út en það eru búin að vera cirka eitt gott færi á hvort lið.
60. mín
Eftir betri byrjun ÍBV í seinni hefur aðeins jafnast út en voða lítið af færum.
53. mín
Jelena Tinna og Allison Lowrey í alvöru kíting á miðjum vellinum.

Pétur fer aðeins yfir þetta með þeim. Allison vildi meina að Jelena hafi verið aðeins að taka í taglið en hún gaf líka sjálf olnboga frá sér.
51. mín
Brotið núna á Allison Lowrey á hægri kantinum.
50. mín
Fridrikka Marie að sækja horn fyrir ÍBV.
48. mín
Góður kraftur í Eyjakonum hér til að byrja
47. mín
Jón Óli gerir þessa tvöföldu skiptingu á sínu liði í hálfleik.
ÍBV
46. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtMagdalena Jónasdóttir
ÍBV
46. mín
InnFridrikka Marie Clementsen
ÚtErla Hrönn Unnarsdóttir
46. mín
Við erum aftur kominn af stað!
Seinni 45 framundan, skýjin aðeins að skemma en vonandi færa þau sig.
45. mín
Hálfleikur
Mjög jafn leikur hingað til en Guðný Geirs gerði heldur betur vel rétt í lokin til að halda þessu í 0-0
45. mín
Guðný Geirs með 2xvörslu!!!
Fyrst skalli frá Unnuri Dóru og svo mjög stuttu seinna var Þórdís Elva með skot sem hún varði líka.
45. mín
1mín í uppbót
44. mín
Mist Funadóttir gerir vel í að skýla boltanum frá Viktoriju og sækir brot.
41. mín
Allison Grace Lowrey of sein og tæklaði Sóley Maríu, sleppur við spjald en fær aðvörun.
40. mín
Unnur Dóra aðeins of fljót á sér og flögguð rangstaða á hana.
38. mín
Fín tilraun í skoti langt frá marki hjá Madison Ditta.
37. mín
Nóg af hornum sem Þróttur er búið að sækja. Hafa verið ágætar en ekki skilað neinu hingað til.
35. mín
Fín sókn sem endar með skoti frá Eddu Dögg sem fer framhjá.
34. mín
ÍBV vilja hendi víti en Pétur ekki á sömu skoðun og veifar þessu áfram.
33. mín
Stöngin og svo rétt framhjá!
Þarna voru ÍBV heppnar, skot frá vinstri hluta teigsins sem fer í stöngina og svo aftur út í teig þar sem einhver hjá Þrótti náði poti í boltann en rétt framhjá
32. mín
Hornspyrna fyrir Þrótt.

Tóku stutt en svo strax með góðan bolta í þéttan pakka á teignum. Allskonar dæmi í gangi þar en Pétur Guðmundsson flautar brot á Guðný Geirs markmann.
30. mín
Allison Lowrey kominn alla leið í vörnina og á frábæra tæklingu og sækir svo brot til að stoppa sókn Þróttar.
26. mín
Jelena Tinna Kujundzic varð fyrir einhverju smávegis hnjaski en heldur leik áfram.

Jón Ólafur nýtur tímann og fær smá fund með leikmönnum sínum og þær vatnspásu.
25. mín
Mollee gerði mjög vel eftir að grípa hornspyrnuna og grítti boltanum upp hægri kantinn þar sem Björg Gunnlaugs var en Kristín Klara stoppaði hana rétt eftir miðjan völl.
23. mín
Allison Lowrey tekur erfitt skot sem Mollee ver út í horn.
21. mín
Mjög jafnt til að byrja með, bæði liðin eru að koma sér ágætlega í leikinn.
18. mín
Góð varsla!
Mollee Swift ver mjög vel frá Allison Grace Lowrey sem var kominn nálægt markinu frá vinstri vængnum.
15. mín
Þórdís Elva í dauðafæri en það var komist fyrir skotið hennar, einnig flögguð rangstæð.
13. mín
Mollee Swift vel á verði í markinu og þrumar boltanum í burtu frá teignum sínum.
12. mín
Guðný Geirs með gott inngrip á fyrirgjöf frá hægri kanti Þróttar
12. mín
Þórdís Elva í alvöru hlaupi gegnum einhverja 3-4 leikmenn ÍBV en það er Kristín Klara sem nær loksins að stöðva upphlaupið.
8. mín
Flottur bolti úr horninu á fjær en þær fá annað horn hinu megin við.
7. mín
Mist Funa sækir hornspyrnu eftir að fyrirgjöf hennar er hreinsuð af Kristínu Klöru
5. mín
Kristín Klara sem fann Allison Clark í hlaupi á hægri kantinum.
Sóley María gerði þó vel í vörninni til að stoppa einhvern séns á hættu.
4. mín
Fyrsta horn Þróttar
tóku stutt og fá innkast við teigin.
2. mín
Fyrsta skot er Þróttar
Fyrirgjöf sem dettur á fjær þar sem Madison Ditta er mætt en skotið beint í lúkurnar á Guðný Geirs markmanni ÍBV.
1. mín
Leikur hafinn
Komið af stað!
Þróttur á upphafsspark og byrja þennan slag!
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar!
Bilaðslega gott veður í Laugardalnum, alvöru útlanda vindur og sólin skín svo sannarlega.

Áfram Fótbolti og góða skemmtun!
Fyrir leik
Spáin
Fanndísi Friðriksdóttur var fengin til að spá í leik 8.umferðar.
Þróttur R. 2 - 1 ÍBV (14:00 á morgun)
Þróttur rétt nær að vinna þétt lið ÍBV á lokamínútum leiksins.
Fyrir leik
ÍBV
Nýliðarnir byrjuðu mótið heldur betur sterkt með sigra í fyrstu fjórum leikjunum. Það hefur þó aðeins dafnað flugið á liðinu því tvö töp og eitt jafntefli er uppskeran úr síðustu þremur leikjum fyrir landsleikjahlé. Trú ekki öðru en að Eyjaliðið hafi nýtt hléið vel og komi sterkar til leiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þær sitja í 3.sætinu með 13stig, þremur stigum eftir FH sem er í 2.sæti en gætu með sigri á Þrótti hér í dag búið til smá andrými fyrir sig.
Fyrir leik
Þróttur R.
Heimaliðið fór í landsleikjapásuna sem 4.sætið og með 12stig. Í síðustu umferð vann Þróttur 1-0 sigur á Val. Eina mark leiksins skoraði hún Unnur Dóra Bergsdóttir, en liðið var einni færri síðustu 30mín eftir að Alexia Marin Czerwien fékk að líta tvö gul spjöld með 8mín millibili snemma í seinni hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það má alveg búast við hörkuleik í dag því með sigri getur Þróttur tekið 3.sætið af einmitt gestunum í ÍBV.

Fyrir leik
Dómarar leiksins
Pétur Guðmundsson er á flautunni og honum til aðstoðar eru Þráinn Jón Elmarsson og Kristinn Freyr Victorsson.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson.
Dómaraeftirlitsmaður er Þorsteinn Ólafs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deild kvenna mætt aftur!
Verið velkomin í textalýsingu frá AVIS-vellinum í Laugardalnum.
Hér mun leikur Þróttar og ÍBV fara af stað á slaginu 14:00 en leikurinn er partur af 8.umferð Bestu Deildar Kvenna sem er kominn úr landsleikjapásu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.