Fotbolti.net
Tryggvi Guðmundsson
Mjólkurbikar kvenna
Hásteinsvöllur
Smá vindur á annað markið.
ÍBV
ÍBV
3 - 2
FH
FH
Allison Grace Lowrey 4'1 - 01 - 142' Ída Marín HermannsdóttirAllison Patricia Clark 49'2 - 12 - 280' Berglind Freyja HlynsdóttirAvery Mae Vanderven (misnotað víti) 94'Avery Mae Vanderven 104'3 - 2
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins eftir ótrúlegan sigur á FH.

Takk fyrir mig. Viðtöl og skýrsla kemur síðar í kvöld.
121. mín
FH fær annað horn.
121. mín
Ída með skot fyrir utan teig en það fer í varnarmann og aftur fyrir. Síðasti séns fyrir FH út horninu.
120. mín
+1 í uppbótartíma.
120. mín
Þetta er að fjara út fyrir FH stelpur.
120. mín
Andrea chippar boltanum inn á teiginn og Elín Björg er nálægt því að ná til boltans en Kristín Klara gerir vel og skýlir boltanum útaf.
118. mín
Hrönn með fyrirgjöf inn á teig ÍBV en alltof löng og fer aftur fyrir.
116. mín
Hafrún kemst upp að endalínu en nær að koma boltanum fyrir en það er á engann held ég bara. ÍBV hreinsar.
113. mín
ÚFF þetta var nálægt!!
Hrönn fær boltann á miðsvæðinu og snýr með boltann. Hún kemur sér í skotfæri og skotið er rétt fram hjá markinu.
112. mín
Hafrún Birna nálægt því að sleppa ein í gegn en Sandra gerir vel og setur boltann í hana og útaf.
111. mín
Boltinn berst á Elín Björgu sem er í fínu skotfæri inn á teignum. Hún nær ágætis skoti en Guðný er vel á verði og grípur boltann örugglega.
107. mín
Hafrún Birna með skot á vítateigshorninu en það er yfir markið.
FH
105. mín
InnUnnur Thorarensen Skúladóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
105. mín
Seinni hálfleikur framlengingar hafinn
105. mín
Hálfleikur
Fyrri hálfleik framlengingar lokið
ÍBV
104. mín
ÍBV komið yfir !!

Avery Mae Vanderven (stoðsending: Fridrikka Marie Clementsen)

Fridrikka með frábæran bolta inn á teiginn á fjær beint á Avery. Hún er alein á fjær og tekur boltann niður og þrumar boltanum í markið.

Avery búin að kvitta fyrir vítaklúðrið og kemur ÍBV í 3-2!
103. mín
Thelma kemur boltanum á Hafrúnu sem er komin ein gegn Guðnýju en Guðný ver frábærlega frá henni. Flaggið fór síðan á loft.
100. mín
Flott sókn hjá FH. Boltinn kemur útí teiginn frá Thelmu á Hafrúnu en skot hennar fer af varnarmanni og aftur fyrir.
98. mín
Hafrún Birna með fína tilraun. Tekur skotið fyrir utan teig en það fer rétt yfir.
ÍBV
94. mín
Víti misnotað

Avery Mae Vanderven

Aldís ver frá henni!!! setti boltann í þægilega hæð vinstra megin við Aldísi.
94. mín
ÍBV fær víti!!! Sandra er bara rifin niður inn í teig eftir að hafa stolið boltanum.
93. mín
Olga með ágætis tilraun. Fær langan bolta fram frá Avery og kemur sér í skotfæri en skotið er ekki gott og fer yfir markið.
92. mín
Thelma Lóa með fyrirgjöf frá hægri vængnum en Fridrikka nær að skalla boltann aftur fyrir.
90. mín
Framlenging hafin
Við erum farin af stað í framlengingunni!

Thelma Lóa sparkar þessu af stað aftur.
90. mín
Venjulegum leiktíma lokið
framlenging..
90. mín
Avery með langan bolta fram á Allison Clark sem gerir vel og nær fyrirgjöfinni en Aldís er fyrst á boltann.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
90. mín
Berglind Freyja með skotið út teignum en Guðný sér við henni.
89. mín
Fín tilraun hjá Hafrún Birnu. Fær boltann frá Ídu og keyrir inn á teiginn og tekur skotið en það er fram hjá.
88. mín
FÆRI !!!
Thelma með fína sendingu á systur sína Ídu inn á teignum en hún sneiðir boltann fram hjá markinu.
87. mín
Andrea með fyrirgjöf á fjær á Elínu Björgu sem nær skallanum en Guðný ver frá henni.
ÍBV
86. mín
InnErla Hrönn Unnarsdóttir
ÚtEdda Dögg Sindradóttir
82. mín
HÆTTA HJÁ FH!!!!
Aldís fær senndingu til baka og ætlar að lúðra boltanum fram en hittir bara ekki boltann og hann lekur næstum því í markið. Hún rétt nær að sparka boltanum út fyrir áður en hann fer yfir línuna!!
FH
80. mín
Allt orðið jafnt aftur!!

Berglind Freyja Hlynsdóttir

Kom fyrirgjöf frá vinstri inn á markteig ÍBV. Ragna Sara er fyrst á boltann en skallar boltann beint fyrir fæturnar á Berlindi Freyju sem setti boltann örugglega í hornið.

2-2!
79. mín
Thelma með frábæran sprett frá vinstri vængnum inn á teiginn en skotið hennar fer í varnarmann og í burtu.
FH
77. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtIngibjörg Magnúsdóttir
FH
77. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtBirna Kristín Björnsdóttir
72. mín
HÆTTA!!
Thelma vinnur boltann af Söndru inn á teig ÍBV og nær skotinu en Guðný ver frá henni. Sandra að leika sér með boltann inn á teignum og hefði getað verið refsað!!
ÍBV
70. mín
InnViktorija Zaicikova
ÚtAllison Grace Lowrey
ÍBV
70. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtMilena Mihaela Patru
67. mín
Berglind Freyja með skot fyrir utan teig en það er beint á Guðnýju.
64. mín
Ágætis skyndisókn hjá ÍBV
Boltinn barst á Lowrey vinstra megin á vellinum og hún kemur með frábæran bolta inn á teiginn en engin úr ÍBV nær snertingu á boltann.
63. mín
Thelma kemst fram hjá Rögnu Söru og kemur með boltann fyrir markið en boltinn fer í innkast hinum megin.
FH
62. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtNia Raisa Christopher
FH
62. mín
InnBerglind Freyja Hlynsdóttir
ÚtHelena Maree Errington
FH
62. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtMackenzie Elyze Smith
61. mín
Thelma ætlar að lauma boltanum inn á Niu sem er í fínu hlaupi inn á teig ÍBV en Guðný gerir vel og nær að koma boltanum í burtu.
59. mín
Ída með skotið fyrir utan teig en það er beint á Guðnýju. Fínasta tilraun hjá Ídu.
58. mín
Færi hjá FH
Thelma enn og aftur með flotta takta úti hægra megin og kemur boltanum fyrir markið á Helene en hún hittir boltann illa og hann fer fram hjá.
ÍBV
57. mín
InnRagna Sara Magnúsdóttir
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
57. mín
Andrea reynir að þræða boltann inn á Niu en hún nær ekki til boltans.
56. mín
Thelma Lóa gerir virkilega vel á hægri kantinum og kemur sér í skotfæri en Guðný enn og aftur örugg og ver frá henni.
54. mín
Frábært spil hjá FH sem endar á Andera finnur Ídu og hún kemst upp að endalínu. Hún nær fyrirgjöfinni en þar er enginn frá FH til að pota boltanum inn.
52. mín
Hætta á teig ÍBV
Ingibjörg kemur með hættulegan bolta inn á teig ÍBV og Guðný kemur út úr markinu en nær ekki alveg til hans. Helena Hekla nær svo að koma boltanum aftur fyrir.
ÍBV
49. mín
2-1!!

Allison Patricia Clark (stoðsending: Sandra Voitane)

Sandra gerir virkilega vel og kemur boltanum fyrir markið beint á Allison Clark sem alveg ein og óvölduð inn á teignum. Hún tekur eina snertingu og klárar svo örugglega fram hjá Aldísi.

Eyjakonur komnar aftur yfir!
48. mín
Vel spilað hjá Ingibjörgu og Niu. Boltinn endar svo hjá Ingibjörgu inn á teignum en Avery gerir vel og kemur boltanum aftur fyrir.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið í gang aftur!
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik
Það má með sanni segja að ÍBV hafi varist töluvert í fyrri hálfleik og beitt skyndisóknum sem bjó til mark þeirra. FH hafa sótt og sótt en Guðný hefur staðið fyrir sínu í markinu hjá ÍBV.
45. mín
Mackenzie með skotið fyrir utan teig en Guðný blakar boltanum yfir markið og FH fær enn eitt hornið.
45. mín
Fínn sprettur hjá Thelmu upp hægri kantinn. Hún leggur boltann út í teiginn en Eyjakonur koma boltanum í burtu.
45. mín
Ingibjörg kemur sér enn og aftur í fína skotstöðu en boltinn af varnarmanni og afturfyrir og FH fær hornspyrnu.
FH
42. mín
Jöfnunarmarkið búið að liggja í loftinu

Ída Marín Hermannsdóttir

FH fékk hornspyrnu eftir færið áðan. Boltinn barst á Ídu sem tók skotið en fer í varnarmann. Boltinn barst aftur til hennar og hún setur boltann í markið og jafnar fyrir FH.

Allt jafnt, 1-1!!
42. mín
DAUÐAFÆRI HJÁ FH
Fyrst Thelma með skot sem fer af varnamanni og boltinn berst til Ingibjargar. Hún setur boltann fyrir markið og boltinn berst út á Ídu sem skýtur en það fer af varnarmanni og afturfyrir,
40. mín
Helene dansar í kringum teiginn hjá ÍBV og tekur svo skotið fyrir utan teig en það svífur hátt yfir markið.
38. mín
FH sækja og sækja
Aftur vel gert hjá Ingibjörg sem keyrir inn á teiginn. Boltinn berst út á Andreu sem kemur sér í skotfæri en það fer af varnarmanni og í burtu.
37. mín
Ingibjörg með fína tilraun. Kemur inn völlinn og keyrir að teignum og kemur með skotið sem fer rétt fram hjá.
37. mín
Olga með fyrirgjöf ætlaða Allison Lowrey en Aldís er vel vakandi og grípur boltann auðveldlega.
36. mín
Andrea með hornspyrnuna sem svífur yfir allan pakkann og aftur fyrir.
35. mín
FH fær hornspyrnu
Frábærlega gert hjá Ídu!! kemst fram hjá þremur leikmönnum ÍBV og kemur sér í skotfæri en skotið fer af varnarmanni og aftur fyrir.
34. mín
Sandra kemur með langan bolta fram ætlaða Milenu sem er í góði hlaupi en flaggið fer á loft.
33. mín
Ingibjörg gerir vel úti vinstri megin, fer fram hjá tveimur varnarmönnum ÍBV og nær fyrirgjöfinni en Avery hreinsar.
32. mín
FH í sókn
Flott sókn hjá FH ná á að spila í sig í gegnum miðjuna. Endar boltinn berst til Niu en hún nær ekki valdi á boltanum ÍBV kemur boltann frá.
31. mín
Andrea með fyrirgjöf úr aukaspyrnu sem FH fékk nálægt endalínunni en Eyjakonur ná að koma boltanum í burtu.
29. mín
FH fær aukaspyrnu á miðjum vallahelmingi ÍBV. Kom fyrirgjöf inn á teiginn en Helena Hekla kemur boltanum í burtu.
28. mín
Milena reynir að keyra fram hjá Birnu Kristínu en Birna gerir virkilega vel og vinnur af henni boltann.
26. mín
Allison Clark reynir stungusendingu á nöfnu sína Lowrey en sendingin er ekki nógu nákvæm og fer til Aldísar.
23. mín
FH með flott spil upp völlinn sem endar á Ída reynir að þræða Niu í gegn en sendingin er alltof löng og endar hjá Guðnýju.
22. mín
Andrea með fína aukaspyrnu fyrir FH. Setur boltann inn á teig ÍBV en boltinn skoppar í gegnum allan pakkann.
20. mín
Milena gerir virkilega vel. Kemst upp að endalínu og fer svo í návígið gegn Aldísi. Boltinn berst út á Allison Lowrey sem setur boltann í autt markið en dómarinn dæmdi brot á Milenu.
19. mín
Andrea kemur boltanum á Thelmu úti vinstra megin en fyrsta snertingin er léleg og hún missir boltann aftur fyrir.
16. mín
Thelma Lóa fær boltann vinstri megin og keyrir inn á teiginn. Hún tekur skotið sem fer af varnarmanni og aftur fyrir en dómarinn dæmir markspyrnu.
15. mín
Birna Kristín kemur með fyrirgjöf en hún fer yfir alla og aftur fyrir.
10. mín
Flott sókn hjá FH
Ingibjörg með flottan sprett upp hægri kantinn og kemur með boltann fyrir á Niu sem nær skotinu af stuttu færi en aftur ver Guðný vel í markinu. FH fær horn í kjölfarið.
9. mín
ÍBV nálægt því að tvöfalda forystuna
Allison Clark með flotta sendingu í gegn á Olgu sem er komin í þröngt færi. Hún nær skotinu en það fer í slánna og í innkast.
6. mín
FH Í FÆRI!!!
Thelma fór upp vinstri kantinn og lagði boltann út í teig. Andrea nær skotinu en Guðný ver glæsilega frá henni í stöngina!
ÍBV
4. mín
ÍBV leiðir 1-0!!!

Allison Grace Lowrey

Allison gerir virkilega vel í kapphlaupinu við tvo varnarmenn FH. Nær snertingu til vinstri og tekur bara skotið á vítateigsboganum sem fer af varnarmanni og í netið yfirAldís.

1-0!!
3. mín
Ingibjörg keyrir inn á teig ÍBV og nær skotinu en það fer í varnarmann og í innkast.
1. mín
FH konur fá fyrsta horn leiksins. Guðný kemur út og grípur boltann örugglega.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

Heimakonur byrja með boltann og leika í átt að Týsvelli.
Fyrir leik
Öruggir sigrar í 16-liða úrslitunum
Bæði lið mættu Lengjudeildarliðum í 16-liða úrslitunum. FH sigraði Selfoss með sjö mörkum og ÍBV vann fimm marka sigur gegn Tindastóli.

Liðin í Bestu deildinni koma inn í keppnina í 16-liða úrslitunum.
Fyrir leik
Liðin í 1. og 4. sæti Bestu deildarinnar
Bæði lið spila í Bestu deildinni og situr FH á toppi deildarinnar með 19 stig eftir fyrstu átta leikina. ÍBV situr í 4. sæti með 14 stig eftir að hafa fengið tólf stig úr fyrstu fjórum leikjunum. FH hefur unnið fimm deildarleiki í röð en ÍBV er án sigurs í síðustu fjórum.

Liðin mættust í Bestu 20. maí og vann FH þá 3-0 sigur á Kaplakrikavelli. Þær irna Kristín Björnsdóttir, Ída Marín Hermannsdóttir og Helena Maree Errington skoruðu mörk FH í þeim leik.
Fyrir leik
Velkomin til Eyja!
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik ÍBV og FH. Leikurinn er liður í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna, hefst klukkan 16:00 og fer fram á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.