Fotbolti.net
@fotboltinetSigurjón Árni Torfason
ÍR
ÍR
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
Geggjaðar aðstæður hér í Breiðholti
2 - 1
Grótta
Grótta
Víðir Freyr Ívarsson 54'1 - 01 - 168' Einar Tómas SveinbjarnarsonÍvan Óli Santos 85'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Ívan Óli Santos sneri aftur með látum og refsaði sínum gömlu félögum

Hvað réði úrslitum?

Það sem réði úrslitum var fyrst og fremst að ÍR nýtti sín færi betur á lykilmómentum leiksins. Leikurinn var hins vegar mjög opinn og kaflaskiptur og hefði hæglega getað dottið báðum megin. Bæði lið sköpuðu sér fjölda færa og með betri nýtingu hefði leikurinn jafnvel getað endað 5–5.

Bestu leikmenn

1. Ívan Óli Santos

Ívan Óli Santos stal senunni í Breiðholtinu. Eftir rúmlega þriggja ára fjarveru frá keppnisleikjum kom hann inn á og skoraði sigurmark leiksins. Þegar upp var staðið voru það hans gæði á lykilmómenti sem skildu liðin að og tryggðu ÍR dýrmæt þrjú stig. Endurkoma sem þessi á skilið maður leiksins.

2. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson

Stóð vel fyrir sínu í dag og var öruggur á milli stanganna. Hann fékk nóg að gera, varði nokkur góð skot og gat lítið sem ekkert gert í marki Gróttu. Á heildina litið mjög solid frammistaða og einn af betri mönnum ÍR í leiknum.

Atvikið

Atvik leiksins var án efa þegar Ívan Óli Santos kom inn á völlinn og skoraði sigurmark ÍR. Hann hafði ekki spilað keppnisleik í rúm þrjú ár, eða í 1.005 daga, en lét það ekki stoppa sig. Endurkoman var ævintýraleg og markið reyndist sigurmark leiksins og tryggði ÍR gríðarlega mikilvæg þrjú stig.

Hvað þýða úrslitin?

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir ÍR sem færa sig úr fallsæti upp í 9. sæti deildarinnar. Nú skilja þrjú stig þá frá Ægi og Grindavík á meðan aðeins tvö stig eru upp í Gróttu. Gestirnir halda 7. sætinu en mega ekki missa fókus, því bilið niður fyrir sig er farið að styttast.

Vondur dagur

Andri Freyr Jónasson fær þetta að þessu sinni. Hann komst ítrekað í góð færi og fékk nokkur dauðafæri til að skora, en tókst ekki að nýta neitt þeirra. Á degi þar sem leikurinn gat dottið báðum megin reyndist það dýrt fyrir Gróttu og það er sanngjarnt að gera kröfu um meiri nýtingu í svona leikum.

Dómarinn - 7

Pétur Guðmundsson átti bara fínan leik. Þrátt fyrir smá stapp við Kristján Atla í fyrri hálfleik hélt hann góðri stjórn á leiknum og fór sjaldan eða aldrei út í neina vitleysu. Bara góður dagur hjá góðum dómara leiksins
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.