SKÝRSLAN: Vestramenn nýttu sér vindinn betur en Ægir
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var að Vestri nýttu sín færi og vindinn betur en Ægir. Vestri spiluðu með vindinn í fyrri hálfleik og skoruðu tvö mörk með hann sem var sterkt fyrir þá. Hins vegar náður Ægir ekki að nýta vindinn nógu vel og sköpuðu ekki mörg færi.
Bestu leikmenn
1. Ibrahima Balde
Það var enginn yfirburðar bestur í dag en Balde var virkilega flottur á miðjunni í dag, hann skoraði mark og vann vel á báða bóga.
2. Gunnar Jónas Hauksson
Gunnar var góður á miðjunni í dag, hann var vinnusamur og góður, sérstaklega varnarlega. Hann varði vörnina vel með því að vinna boltann á miðjunni og pressa vel á menn.
Atvikið
Atvik leikins var varslan hjá Marvin Darra í lok leiks eftir skot frá Kristni Ásgeir, þessi varsla var virkilega mikilvæg fyrir Vestra og vann eiginlega þessi þrjú stig fyrir þá.
Hvað þýða úrslitin?
Þessi sigur Vestra kemur þeim upp í 4. sæti deildarinnar, þeir eiga leik til góða á öll lið deildarinnar svo að það var mikilvægt fyrir þá að vinna þennan leik til þess að halda sér í pakkanum.
Ægir eru aftur komnir í fallsæti eftir sigur ÍR á Gróttu fyrr í dag, en þeir eru enn þá jafnir ÍR og Grindavík á stigum.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti sérstaklega vondan dag, það gerðu nokkrir leikmenn mistök og voru óheppnir í aðdraganda markanna hjá báðum liðum, en enginn sem var lélegur.
Dómarinn - 8
Arnar Þór og hans teymi voru góðir í dag, leikurinn var kannski ekki sá erfiðasti en þeir stóðust öll próf og öll smáatriðin voru vel dæmd.


