SKÝRSLAN: Seigir Árbæingar á þjóðhátíðardeginum
Hvað réði úrslitum?
Grindvíkingar sofandi í vörninni eftir að hafa verið mun betri í síðari hálfleik. Eitt augnablik sem kostar Grindavík sigurinn.
Bestu leikmenn
1. Orri Sveinn Segatta
Sá um að halda vörn gestanna vel þéttri og vann öll skallaeinvígi úti um allan völl.
2. Ólafur Kristófer Helgason
var frábær í marki Fylkis þar sem mikið var að gera hjá honum í seinni hálfleik.
Atvikið
Grindavík fær dauðafæri á lokamínútu uppbótartímans. Hornspyrna og skalli sem er bjargað á línu og síðan frákastið sem Haraldur setur einhvern veginn framhjá.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn halda sér í toppbaráttunni en Grindvíkingar eru enn í botnbaráttunni. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Fylki.
Vondur dagur
Rafael Victor var afar slakur hér í dag og var með vonda líkamstjáningu í gegnum allan leikinn. Mikið að kvarta og var bara ekki góður hér í dag.
Dómarinn - 7
Ekkert til að kvarta yfir gagnvart Helga í þessum leik.


