SKÝRSLAN: Framarar sýndu gæði sín fyrir austan
Hvað réði úrslitum?
Bara alltof mikill gæðamunur á þessum liðum. Það bara sást strax frá upphafsspyrnu í hvað stefndi.
Bestu leikmenn
1. Taylor Marie Hamlett
Best í dag, Enginn spurning. Þrenna og sífellt ógnandi.
2. Alda Ólafsdóttir
Alda fær þetta , Skoraði og lagði upp og var heilt yfir mjög spræk í dag.
Atvikið
Ekkert sérstakt atvik, Bara eftir annað mark Framara þá gengu þær á lagið og slátruðu þessum leik.
Hvað þýða úrslitin?
FHL dottnar út á meðan Framarar fara skæl brosandi í undanúrslit!
Vondur dagur
FHL áttu enginn svör í dag og áttu aldrei séns, Liðið í heild sinni fær vondan dag, Börðust samt allann leikinn og gáfust ekki upp, Sem er þó vel gert hjá þeim.
Dómarinn - 7
Heilt yfir fínn, Stundum skrýtnar ákvarðanir og Kalli og Dóra þjálfarar FHL voru ekki alltaf sáttir með hann.


