Fotbolti.net
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
ÍBV
ÍBV
Mjólkurbikar kvenna
Hásteinsvöllur
Smá vindur á annað markið.
3 - 2
FH
FH
Allison Grace Lowrey 4'1 - 01 - 142' Ída Marín HermannsdóttirAllison Patricia Clark 49'2 - 12 - 280' Berglind Freyja HlynsdóttirAvery Mae Vanderven 104'3 - 2
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: ÍBV í undanúrslit eftir sigur í framlengingu

Hvað réði úrslitum?

FH konur voru auðvitað mun meira með boltann í leiknum og sóttu og sóttu. Eyjakonur skoruðu fyrstu tvö mörk sín úr skyndisóknum og síðasta upp úr aukaspyrnu. Það má með sanni segja að ÍBV hafi nýtt færin sín betur heldur en FH og það tryggði sigur þeirra.

Bestu leikmenn

1. Guðný Geirsdóttir

Var gífurlega öflug í markinu hjá ÍBV. Mjög örugg og vel staðsett. Hún átti svo nokkrar fínar vörslur inn á milli. Hefur staðið sig afar vel í síðustu leikjum.

2. Olga Sevcova

Var í dálítið öðru hlutverki en við erum vön að sjá hana í, í þessum leik. Spilaði meira sem bakvörður en kantmaður og stal ótal sendingum FH inga. Les leikinn ótrúlega vel og var svo upp og niður kantinn allan leikinn.

Atvikið

Fyrirliði ÍBV, Avery Vanderven, hefði getað orðið skúrkur leiksins þegar hún misnotaði vítaspyrnu í byrjun framlengingar en endaði þess í stað á því að skora úrslitamark leiksins og var þar með hetjan.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins þetta árið og FH ingar fara með sárt ennið í herjólf.

Vondur dagur

Framherji FH, Nia Raisa Christopher, var alls ekki á sínum degi. Segir ýmislegt að aðal framherji liðsins er tekin útaf á 62. mínútu leiksins í stöðunni 2-1 fyrir ÍBV í bikarleik. Hélt varla bolta þegar hún fékk hann og virkaði einfaldlega áhugalaus á köflum.

Dómarinn - 7

Nokkuð vel dæmdur leikur hjá Arnari Inga. Hefði kannski getað lyft gula spjaldinu í nokkrum atriðum en endaði í spjaldalausum leik. Tók annars góðar ákvarðanir á stórum augnablikum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.