Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
2 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Joacim Emil Godhei Holtan 82'1 - 0Birkir Már Sævarsson 91'2 - 0
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Engin megavika í Njarðvík

Hvað réði úrslitum?

Þetta var 0-0 leikur en Afturelding stal sigrinum, þeir voru meira með boltann en Njarðvík voru vel skipulagðir og vörðu vel. Megaviku kóngurinn vildi þrjú stig og tók þetta.

Bestu leikmenn

1. Birkir Már Sævarsson

Megaviku kóngurinn með mark og stoðsendingu, hjálpar líka í þessum dálk þegar menn eru með hreint lak. Góður leikur hjá honum í dag.

2. Axel Óskar Andrésson

Það var erfitt að velja í þennan dálk þar sem það voru ekki margir leikmenn sem voru afgerandi góðir. Ég vel Axel í dag, hreint lak og vörnin var þétt. Ekkert komst í gegn.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins er atvikið. Mjög þéttur leikur og þetta var alltaf 0-0 leikur. Þangað til að Njarðvík slekkur á sér í eitt augnablik og þá er Birkir sloppinn í gegn. Njarðvík var búin að skipuleggja sig vel og áttu skilið stig að mínu mati.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding er í þriðja sæti en eiga einn leik inni á Mánudaginn gegn Ægi, með sigri geta þeir komist í annað sætið eða jafnvel fyrsta ef Þróttur tapar á morgun. Njarðvík er í sjöunda sæti, þeir eru fimm stigum frá umsspilsæti.

Vondur dagur

Ætlaði að segja að þetta væri vondur dagur fyrir fótboltann, þar sem leikurinn var mjög rólegur og bæði lið voru með þéttar varnir. En ef það á að velja leikmann þá er það Arnar Helgi sem var að verjast gegn Birki í fyrsta markinu. Vörnin búin að vera þétt en menn gleyma sér í eitt móment og fyrrum landsliðsmaðurinn er sloppin í gegn og rennir svo boltanum fyrir Holtan.

Dómarinn - 5

Þetta var þokkalegt. Stærsta atvikið var hvort að Birkir var rangstæður eða ekki í fyrsta markinu, þetta var tæpt en verður maður ekki að treysta dómaranum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.