SKÝRSLAN: Allt Jafnt á Selfossi
Hvað réði úrslitum?
Haukar voru sterkari aðilinn í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir spiluðu sig ítrekað auðveldlega í gegnum miðju Selfoss og stjórnuðu gangi leiksins, en áttu hins vegar erfitt með að skapa sér afgerandi marktækifæri. Þrátt fyrir það hefðu gestirnir hæglega getað farið með stærra forskot inn í hálfleikinn.
Haukar byrjuðu einnig seinni hálfleikinn betur, en eftir um klukkutíma leik tóku Selfyssingar smám saman yfir og komust yfir, 2-1. Gestirnir gáfust þó ekki upp og náðu að jafna undir lok leiks.
Jafntefli verður að teljast sanngjörn niðurstaða þegar á heildina er litið. Ef annað liðið átti þó meira skilið úr leiknum voru það Haukar, sem voru sterkari aðilinn lengst af.
Bestu leikmenn
1. Benjamín Jónsson
Benjamín var flottur í marki Selfoss varði marga góða bolta og var einn af þeim sem hélt þeim inní leiknum í fyrri hálfleik.
2. Pablo Punyed
Hann kom bara með púra gæði á miðjunna og maður sá bara hvað hann er ennþá sturlaður í fótbolta og leikskilning uppá 10.
Atvikið
Slæmu tíðindin fyrir Selfoss voru að Daði Kolviður meiddist strax á 2. mínútu leiksins og þurfti að fara af velli. Eftir leik sást hann á hækjum, sem vekur áhyggjur af alvarleika meiðslanna.
Hvað þýða úrslitin?
Haukar halda toppsæti deildarinnar með 20 stig og eru nú fjórum stigum á undan Selfossi, sem situr í 4. sæti með 16 stig. Selfyssingar hafa aðeins unnið einn af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og ljóst að þeir þurfa að finna leið til að snúa genginu við ætli þeir sér að halda sér í toppbaráttunni.
Vondur dagur
Enginn einstakur leikmaður átti sérstaklega slakan leik að mínu mati. Hins vegar var Selfoss langt frá sínu besta í fyrri hálfleik. Selfyssingar áttu í miklum vandræðum með að halda boltanum og tengja saman sendingar, og það væri áhugavert að sjá sendingatölfræðina úr fyrri hálfleiknum.
Dómarinn - 3
Atli Björn átti hreint út sagt slæman dag dæmdi illa og var of mikið í aðalhlutverki með röngum ákvörðunum og flr. Bæði lið voru vægast sagt ósátt við hann í dag.


