Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
0 - 2
HK
HK
0 - 141' Dominik Radic0 - 295' Aron Kristófer Lárusson
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Hvar er Valli og rauðu spjöldin

Hvað réði úrslitum?

Þetta var bragðdaufur leikur lengi vel þar sem eina markið kom eftir langt innkast þar sem HK-ingarnir voru einfaldlega bara harðari inn í teig. Svo leystist leikurinn upp í algjöra vitleysu á loka mínútunum. HK-ingar fá tvö rauð spjöld, Fylkismenn því einum færri en ná afskaplega lítið að gera með það. Þá fara gestirnir í eina skyndisókn, Ólafur Kristófer markmaður Fylkis kominn upp á miðlínu og Aron Kristófer þurfti bara að komast framhjá honum og skora í opið markið.

Bestu leikmenn

1. Jóhann Þór Arnarsson (HK)

Erfitt að segja í eins gæða litlum leik eins og þessi leikur var lengi vel, en mér fannst mesta hættan stafa af Jóhanni þegar HK-ingar sóttu.

2. Ólafur Örn Ásgeirsson (HK)

Ólafur fékk ekki mark á sig þó að eigin samherjar hafi reynt að breyta því. Hann fær aðallega þessa nafnbót fyrir að bjarga rosalegu sjálfsmarki hjá Ívari Erni í fyrri hálfleik. Annars þurfti Ólafur lítið að verja.

Atvikið

Það er í raun bara þessar loka fimm mínútur eða svo sem heild. HK-ingar að reyna hvað þeir geta að fækka sér inn á vellinum, Fylkismenn að gera ekkert til að nýta sér það og svo þetta mark. Ef þið ætlið að horfa aftur á leikinn, spólið bara fram á 87. mínútu.

Hvað þýða úrslitin?

Deildin er hálfnuð og Fylkismenn halda 2. sætinu en hleypa öðrum liðum nær sér í toppbaráttunni. HK-ingar koma sér upp í 19 stig, tveim stigum á eftir Fylki en eru enn í 5. sæti á markatölu.

Vondur dagur

Rosalega margir í Fylkisliðinu sem voru í krummafót í dag. Enginn sem á skilið að vera nafngreindur því eftir að einn var búinn að klúðra einhverju svakalega einföldu, þá tók bara næsti maður við og gerði eitthvað enn verra. Versti dagurinn var áhugamenn um treyjur. Þarna mætti lið sem leit út eins og þeir væru á leiðinni að syngja í fyrirtæki á öskudaginn. Annað liðið var klætt eins og "Hvar er Valli?" eina sem vantaði var skotthúfan. Hitt liðið var í blettatígrabúning þar sem vantaði bara andlitsmálninguna.

Dómarinn - 7

Stóru dómarnir voru að mestu réttir, fyrra rauða spjaldið er spurning en mér sýndist Svavar vera síðasti maðurinn. Svo er seinna alveg greinilegt rautt. Hins vegar var Eyþór Wöhler að sleppa í gegn í fyrri hálfleik þegar hann fékk rangstöðu dæmda á sig, sem ég er ekki alveg viss um. Það var þó tæpt. Nokkrir minni dómar sem geta talist skrýtnir en ekkert til þess að hreyfa nálina.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.