SKÝRSLAN: Leiknir sigraði í Breiðholtsslagnum
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur var hálfleiðinlegur að horfa á. Alls ekki mikið fyrir augað þar á bæ. Seinni hálfleikur var mun fjörugri þó. Leiknismenn voru bara betri í seinni hálfleik og vöknuðu þvílíkt til lífs eftir fyrra markið þeirra.
Bestu leikmenn
1. Shkelzen Veseli
Var frábær á kantinum. Skorar frábært mark til þess að innsigla sigurinn fyrir Leikni
2. Sigurður Karl Gunnarsson.
Sigurður stóð sig vel í vörninni, þrátt fyrir þessi tvö mörk. Var stundum eins og algjör veggur.
Atvikið
Verður að vera fyrsta mark leiksins. ÍR var í sókn og Kristján Atli tekur á móti lausum bolta. Sendir hann á Ágúst Unnar sem reynir fyrirgjöfina en þar var enginn til að taka á móti henni, boltinn skoppar svo bara inn í markið. Við þurfum ekki að leita lengur, því við fundum skrýtnasta mark ársins.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn sitja í 6. sæti með 18. stig. ÍR situr í 9. sæti með 11 stig eftir 11 leiki.
Vondur dagur
Bergvin náttúrulega fær þetta rauða spjald. Þetta er bara 50/50 bolti og svo óheppilega til fer hann með takkana í andlitið á Óla.
Mér fínnst ósanngjarnt að setja vondan dag á Óla, þar sem hann náði svo þvílíkt að endurheimta sig í seinni hálfleik með frábærri vörslu sem mögulega bjargaði leiknum.
Dómarinn - 5
Twana var fínn. Lét boltann rúlla en það sem hann dæmdi á var stundum pínu áhugavert



