SKÝRSLAN: Bragðdauft í Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fengu fínar stöður en hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið. Það var í raun bara eitt dauðafæri í þessum leik sem Rúnar Ingi klikkaði á en Grindvíkingar fengu þó mikið af fínum stöðum sem þeir náðu ekki að nýta. Ægismenn vörðust vel og voru sáttir með stigið eftir leik.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Úlfarsson
Var flottur í vörn Grindavíkur sem hleyptu Ægismönnum í afskaplega fáar stöður og héldu hreinu.
2. Stefan Dabetic
Fyrirliði Ægis var flottur í leiknum og lokaði þessum leik vel og sá til þess að Ægismenn náðu í fínt stig í Grindavík.
Atvikið
Langstærsta atvik þessa leiks var klúður Rúnars fyrir galopnu marki Ægis eftir frábæran undirbúning Gunnleifs Orra. Langbesta marktækifæri leiksins sem fór því miður forgörðum fyrir heimamenn í ljósi þess að lokatölur voru 0-0.
Hvað þýða úrslitin?
Bæði lið eru enn límd við fallbaráttuna en Ægir er enn í fallsæti og Grindavík stigi fyrir ofan. Þetta var svokallaður sex stiga leikur sem hvorugt lið tókst að nýta sér.
Vondur dagur
Ef við köllum bara spaða, spaða, þá verður Rúnar Ingi Eysteinsson að fá þetta fyrir færaklúður sitt. Hann fær opið mark fyrir framan sig og tækifæri til að koma Grindvíkingum yfir í fyrri hálfleik en setur boltann fram hjá sem var ótrúlegt.
Dómarinn - 8
Engin mistök gerð en svosem engar stórar ákvarðanir sem hann þurfti að taka.


